Indóevrópsk tungumál eru ætt 443 tungumála og mállýskna sem um þrír milljarðar manna tala.
Þessari málaætt tilheyra flest tungumál Evrópu og Vestur-Asíu, sem tilheyra sömu ættkvísl. Nútímamál sem tilheyra þessari ætt eru t.d. bengalska, enska, franska, þýska, hindí, persneska, portúgalska, rússneska og spænska (hvert með fleiri en 100 milljón málhafa). Íslenska er einnig indóevrópskt tungumál.
Auk þessara hefðbundnu tíu greina sem hér eru taldar eru nokkur útdauð tungumál sem lítið er vitað um.
Indó-evrópskum tungumálum er oft skipt í satem-mál og kentum-mál eftir því hvernig uppgómmælt lokhljóð þróuðust. Hægt er að sjá muninn á því hvort fyrsta hljóðið í orðinu yfir „hundrað“ er með lokhljóði (t.d. latína: centum) eða önghljóði (t.d. hindí: satám). Almennt séð eru „austrænu“ málin (slavnesku og indó-írönsku málin) satem-mál, en „vestrænu“ málin (germönsku, ítölsku og keltnesku málin) eru kentum-mál. Satem-kentum mállýskumörkin skilja að annars náskyld mál eins og grísku (kentum) og armensku (satem).
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Indóevrópsk tungumál, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.