Sanskrít (devanagarí: संस्कृता वाक्) er klassískt indverskt tungumál, helgisiða tungumál í búddisma, hindúatrú og jaínisma auk þess að vera eitt af 22 opinberum helgisiðatungumálunum Indlands.
Það hefur sömu stöðu í Nepal.
Sanskrít संस्कृतम् saṃskṛtam | ||
---|---|---|
Málsvæði | Indlandi og Nepal | |
Heimshluti | Suðaustur-Asía | |
Fjöldi málhafa | Uþb. 50.000 | |
Sæti | Á ekki við | |
Ætt | Indóevrópskt Indóírönskt Indóarískt Sanskrít | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál | Indland | |
Stýrt af | engum | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | sa | |
ISO 639-2 | san | |
SIL | SKT | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Staða þess í menningarheimi Suðaustur-Asíu er álík stöðu latínu og grísku í Evrópu og á Miðjarðarhafssvæðinu og mörg nútímamál á meginlandi Indlands hafa þróast út frá sanskrít.
Svo sem geta má nærri um mál sem teygir sig nokkuð á landi og í tíma er greint á milli nokkurra forma; vedísk sanskrít er elst og kennd við helgirit hindúa, Rigveda, Samaveda, Yajurveda & Atharvaveda. Epísk sanskrít er kölluð mál sagnljóðabálka (Ramayana & Mahabharata) frá 8 f.Kr. - 1 e.Kr. Klassísk sanskrít hefur lifað áfram til þessa dags sem ritmál eftir að hafa dagað uppi sem daglegt talmál.
Greint er á milli eintölu, fleirtölu og tvítölu í hvort tveggja beygingu nafnorða og sagnorða.
Föll nafnorða eru 8: nefnifall, þolfall, þágufall, eignarfall, tækisfall, staðarfall, ávarpsfall og siptifall. Engin einföldun á sér stað í föllum frá vedískri sanskrít til klassískrar en hinsvegar einfaldast sagnbeygingar að mun, viðtengingarháttur til dæmis horfið eða fallið saman við boðhátt.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sanskrít, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.