Guðni Th. Jóhannesson: 6. forseti Íslands og sagnfræðingur

Guðni Thorlacius Jóhannesson (fædd­ur í Reykjavík 26.

júní">26. júní 1968) er íslenskur sagnfræðingur. Hann var kjörinn forseti Íslands í forsetakosningunum 25. júní 2016 með 39,08% atkvæða og tók við embættinu 1. ágúst 2016. Hann er sjötti forseti Íslands.

Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson: Menntun, Störf, Lífsskoðanir
Forseti Íslands
Núverandi
Tók við embætti
1. ágúst 2016
ForsætisráðherraSigurður Ingi Jóhannsson
Bjarni Benediktsson
Katrín Jakobsdóttir
Bjarni Benediktsson
ForveriÓlafur Ragnar Grímsson
Persónulegar upplýsingar
Fæddur26. júní 1968 (1968-06-26) (55 ára)
Reykjavík, Ísland
Maki1. Elín Haraldsdóttir (skilin)
2. Eliza Jean Reid
Börn5
ForeldrarJó­hann­es­ Sæ­munds­son­
Mar­grét­ Thorlacius
BústaðurBessastaðir
HáskóliWarwick-há­skóli
Háskóli Íslands
Oxford-háskóli
StarfKennari
Sagnfræðingur
Forseti

Menntun

Guðni lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­an­um í Reykja­vík árið 1987 og BA-gráðu í sögu og stjórnmálafræði við Warwick-há­skóla í Englandi 1991. Árið 1997 út­skrifaðist Guðni með meist­ara­gráðu í sagn­fræði frá HÍ. Tveim­ur árum síðar lauk hann MSt-gráðu í sögu frá Oxford-há­skóla í Englandi.

Störf

Guðni hef­ur meðal ann­ars starfað sem kenn­ari við Há­skóla Íslands, Há­skól­ann í Reykja­vík, Há­skól­ann á Bif­röst og Uni­versity of London. Hann hefur starfað sem lektor í sagn­fræði við Há­skóla Íslands en hlaut ráðningu sem prófessor í júlí 2016. Eft­ir hann liggja rit­ á sviði sagn­fræði, meðal ann­ars um Þorskastríðin, efnahagshrunið 2008 og for­seta­embættið. Hann hefur ritað ævi­sögu Gunn­ars Thorodd­sens og um embætt­istíð Kristjáns Eld­járns. Hann hefur þýtt nokkrar bækur eftir Stephen King.

Lífsskoðanir

Guðni stend­ur utan trú­fé­laga en var alinn upp í kaþólskri trú. Hann yf­ir­gaf kaþólsku kirkj­una í kjöl­far frétta af glæp­um ým­issa kaþólskra presta. Hann heldur upp á mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna fremur en trú á einn guð: „Hver maður er bor­inn frjáls, jafn öðrum að virðingu og rétt­ind­um. Menn eru gædd­ir vits­mun­um og sam­visku og ber þeim að breyta bróður­lega hver við ann­an.“ Guðni hefur lýst því yfir að fullveldi þjóða sé teygjanlegt hugtak og háð aðstæðum á hverjum tíma. Guðni er fyrsti forsetinn sem tilheyrir ekki Þjóðkirkjunni.

Fjölskylda

Guðni er son­ur hjón­anna Mar­grét­ar Thorlacius, kenn­ara og blaðamanns, og Jó­hann­es­ar Sæ­munds­son­ar, íþrótta­kenn­ara og íþrótta­full­trúa. Hann á tvo bræður, þá Pat­rek, íþrótta­fræðing og fyrr­ver­andi landsliðsmann í hand­bolta, og Jó­hann­es, kerf­is­fræðing. Faðir þeirra lést úr krabba­meini árið 1983, 42 ára að aldri, og sá móðir þeirra um upp­eldi þeirra bræðra. Guðni stundaði hand­bolta í æsku en faðir hans var meðal ann­ars hand­boltaþjálf­ari.

Eiginkona hans er Eliza Reid frá Kanada og eiga þau fjögur börn. Guðni á dóttur af fyrra hjónabandi.

Framboð til forseta

Guðni ákvað að bjóða sig fram til forseta Íslands í maí 2016. Hann vill meðal annars bæta þjóðaratkvæðagreiðsluákvæði í stjórnarskrána. Guðni var kjörinn forseti og er sá yngsti sem hefur tekið embætti.

Forsetaferill

Kjörtímabil 2016-2020

Guðni Th. Jóhannesson: Menntun, Störf, Lífsskoðanir 
Guðni og Shinzo Abe forsætisráðherra Japans.
Guðni Th. Jóhannesson: Menntun, Störf, Lífsskoðanir 
Guðni og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Guðni Th. Jóhannesson braut blað í sögu forsetaembættisins þegar hann varð fyrsti forseti Íslands til að ávarpa gesti Gleðigöngunnar. Hann hefur stofnað Facebook vefsíðu fyrir embættið og ætlar að gera sitt besta í að svara spurningum þar. Eftir tæpan mánuð í embætti lýstu 68% fólks sig ánægt með Guðna í embætti samkvæmt könnun MMR.. Í könnun í desember voru rúm 97% ánægð með Guðna.

Guðni fór í sína fyrstu opinberu heimsókn í janúar til Danmerkur. Hann snæddi meðal annars hátíðarkvöldverð í Amalíuborg með Danadrottningu og fleirum. Í könnun í sama mánuði sögðust 81,4% aðspurðra vera ánægðir með störf hans.

Í febrúar vakti Guðni heimsathygli eftir opinbera heimsókn í Menntaskólann á Akureyri, en þar sagði hann í gríni að hann myndi vilja banna ananas á pizzur.

Í mars sagði Guðni í tímaritinu Lögréttu varðandi Landsdóm að: það hafi verið feigðarflan eftir hrun að nýta forn og úrelt ákvæði í stjórnarskrá um landsdóm. Það hafi sýnt sig að niðurstaða dómsins hafi fremur sundrað en sameinað og það á versta tíma. Þá sagði hann um synjunarvald forsetaembættisins að sanngjarnara og lýðræðislegra væri að í stjórnarskrá væru ákvæði um að ákveðinn fjöldi kjósenda geti krafist þess að lögum verði synjað staðfestingar.

Í lok mars 2017 sótti Guðni ráðstefnu um málefni norðurslóða í Arkhangelsk í Rússlandi. Þar hitti hann meðal annars Vladímír Pútín. Hann talaði um málefni hafsins, aðgerðir gegn mengun og súrnun sjávar og fiskveiðar. Hann fór einnig í opinbera heimsókn til Noregs hitti norsku konungsfjölskylduna, Ernu Solberg forsætisráðherra og heimsótti ýmsa staði.

Guðni fór í maí 2017 í heimsókn til Færeyja.

Í nýársávarpi Guðna 1. janúar 2020 ákvað hann að bjóða sig fram til annars kjörtímabils forseta Íslands.

Kjörtímabil 2020-2024

Guðni hlaut tæp 90% atkvæði í Forsetakosningunum 2020 á móti Guðmunds Franklín Jónssyni.

Guðni ákvað í nýársávarpi sínu 2024 að bjóða sig ekki fram að nýju til embættis forseta Íslands.

Bækur

  • Kári í jötunmóð. Saga Íslenskrar erfðagreiningar og Kára Stefánssonar (Reykjavík: Nýja bókafélagið, 1999).
  • Völundarhús valdsins. Stjórnarmyndanir, stjórnarslit og staða forseta Íslands í embættistíð Kristjáns Eldjárns, 1968–1980 (Reykjavík: Mál og menning, 2005).
  • Óvinir ríkisins. Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi (Reykjavík: Mál og menning, 2006).
  • Þorskastríðin þrjú. Saga landhelgismálsins 1948–1976 (Reykjavík: Hafréttarstofnun Íslands, 2006).
  • Hrunið. Ísland á barmi gjaldþrots og upplausnar (Reykjavík: JPV, 2009).
  • Gunnar Thoroddsen. Ævisaga. (Reykjavík: JPV, 2010).
  • Fyrstu forsetarnir. Embætti þjóðhöfðingja Íslands á 20. öld. (Reykjavík. Sögufélag, 2016).

Tenglar

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Ólafur Ragnar Grímsson
Forseti Íslands
(2016 – Enn í embætti)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

Guðni Th. Jóhannesson MenntunGuðni Th. Jóhannesson StörfGuðni Th. Jóhannesson LífsskoðanirGuðni Th. Jóhannesson FjölskyldaGuðni Th. Jóhannesson Framboð til forsetaGuðni Th. Jóhannesson ForsetaferillGuðni Th. Jóhannesson BækurGuðni Th. Jóhannesson TenglarGuðni Th. Jóhannesson TilvísanirGuðni Th. Jóhannesson196826. júníForsetakosningar á Íslandi 2016Forseti ÍslandsReykjavíkSagnfræði

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Steinn SteinarrAntígva og BarbúdaÁsgeir ÁsgeirssonEvrópaListi yfir forsætisráðherra ÍslandsKommúnistaflokkur KínaLettneskaListi yfir fangelsi á ÍslandiAristótelesTakmarkað mengiLandnámsmenn á ÍslandiSigga BeinteinsSkátafélagið ÆgisbúarFlott (hljómsveit)InternetiðSpænska veikinÍslenskur fjárhundurSundlaugar og laugar á ÍslandiHugmyndSamtengingNapóleon BónaparteEiríkur BergmannKínaSauryTjaldHelga ÞórisdóttirKynþáttahyggjaLæsiFeneyjatvíæringurinnRíkisstjórnSérnafnBerserkjasveppurHólmavík25. aprílBjarnfreðarsonHeimspeki 17. aldarH.C. AndersenSkátafélög á ÍslandiContra Costa-sýsla (Kaliforníu)ViðtengingarhátturListi yfir skammstafanir í íslenskuPatricia HearstHöfuðborgarsvæðiðListi yfir íslenskar hljómsveitirBrúttó, nettó og taraListi yfir íslensk mannanöfnHörLjóðstafirReykjavíkFylki BandaríkjannaListi yfir morð á Íslandi frá 2000Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnuRjúpaRáðherraráð EvrópusambandsinsElvis PresleyLandvætturTaugakerfiðFjallkonanCowboy CarterSnorra-EddaSódóma ReykjavíkTékklandBúddismiNjálsbrennaOrmurinn langiManntjónÁstandiðBjarni Benediktsson (f. 1970)SjómílaThomas JeffersonFritillaria przewalskiiPeter MolyneuxÍslandspóstur🡆 More