Ský er sýnilegur massi samþjappaðs vatns eða ískristalla í andrúmsloftinu á Jörðinni eða annarri reikistjörnu.
Þau endurvarpa öllum sýnilegum bylgjulengdum ljóss og eru því hvít, en geta virðst grá eða jafnvel svört ef þau eru það þykk að ljós nær ekki í gegnum þau. Vatnsdropar í skýjum eru að jafnaði 0,01 mm í þvermál og verða því sýnilegir þegar þeir safnast saman og mynda ský.
Ský á öðrum reikistjörnum en Jörðinni eru oft úr öðrum efnum en vatni (t.d. metani) en það fer þó eftir umhverfisaðstæðum.
Ský myndast þegar vatnsgufa í andrúmsloftinu myndast þá litlir vatnsdropar og ískristallar. Þetta gerist einkum á tvennskonar hátt:
1. Loftið kólnar og mettast. Þetta gerist þegar loftið kemur í tæri við kalt yfirborð eða yfirborð sem hefur kólnað af geislum. Auk þess getur loft kólnað vegna þess að það stígur. Fyrir því eru þrjár ástæður:
2. Hitastig loftsins breytist ekki heldur tekur til sín meiri raka og mettast þannig.
Ský eru þung. Vatnið í venjulegu skýi getur vegað mörg milljón tonn en þar sem rúmmálið er líka mikið reynist nettó þéttleiki vatnsgufunnar það lítill að loftstreymi yfir og undir skýjunum getur haldið þeim uppi. Flest ský myndast þegar vatnsgufa þéttist í kringum þéttimiðju sem ýmist getur verið reykur, gas, aska eða salt. Í yfirmettuðum tilvikum geta vatnsdropar einnig virkað sem þéttimiðja. Flugslóðar eru dæmi um manngerð ský, sem myndast út útblæstri þotuhreyfla.
Ský skiptast í háský, miðský, lágský og háreist ský.
Háský eru í 6-12 km hæð, til þeirra teljast:
Miðský eru í 2-6 km hæð, til þeirra teljast:
Lágský eru í 0-2 km hæð, til þeirra teljast:
Háreist ský eru í 0-12 km hæð, til þeirra teljast:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ský, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.