Úkraína: Ríki í Mið- og Austur-Evrópu

Úkraína (úkraínska: Україна/Úkrajína) er land í Austur-Evrópu.

Úkraína er næststærsta Evrópulandið á eftir Rússlandi. Landið á landamæri að Rússlandi í austri og norðaustri, Hvíta-Rússlandi í norðri og Póllandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Rúmeníu og Moldóvu í vestri. Úkraína á strönd að Svartahafi og Asovshafi í suðri. Landið er rúmir 600 þúsund km² að stærð með rúmlega 40 milljón íbúa. Það er 8. fjölmennasta land Evrópu. Kænugarður er stærsta borgin og höfuðborg landsins.

Úkraína
Україна
(Úkrajína)
Fáni Úkraínu Skjaldarmerki Úkraínu
Fáni Skjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Derzjavnyj Hímn Úkrajíny
Staðsetning Úkraínu
Höfuðborg Kænugarður
Opinbert tungumál Úkraínska
Stjórnarfar Forsetaþingræði

Forseti Volodymyr Zelenskyj
Forsætisráðherra Denys Sjmyhal
Þingforseti Rúslan Stefantsjúk
Sjálfstæði frá Sovétríkjunum
 • Yfirlýst 24. ágúst 1991 
 • Þjóðaratkvæðagreiðsla 1. desember 1991 
 • Staðfest 25. desember 1991 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
45. sæti
603.628 km²
7
Mannfjöldi
 • Samtals (2021)
 • Þéttleiki byggðar
27. sæti
41.362.393
74/km²
VLF (KMJ) áætl. 2020
 • Samtals 429,947 millj. dala (48. sæti)
 • Á mann 10.310 dalir (108. sæti)
VÞL (2019) Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting 0.779 (74. sæti)
Gjaldmiðill hrinja, гривня (UAH)
Tímabelti UTC+2 (+3 á sumrin)
Þjóðarlén .ua
Landsnúmer +380

Ummerki um mannabyggð þar sem Úkraína er nú eru allt að 34.000 ára gömul. Á miðöldum var landið miðstöð menningar Austur-Slava og varð hluti af Garðaríki. Garðaríki klofnaði í mörg minni furstadæmi á 13. öld, og eftir innrásir Mongóla tókust ýmsar þjóðir á um yfirráð yfir landinu, þar á meðal Pólsk-litháíska samveldið, Tyrkjaveldi og Rússneska keisaradæmið. Höfuðsmannsdæmi kósakka var stofnað þar á 17. öld, en landinu var á endanum skipt milli Póllands og Rússlands. Í kjölfar rússnesku byltingarinnar 1917 var Alþýðulýðveldið Úkraína stofnað. Það reyndist skammlíft og eftir síðari heimsstyrjöld varð vesturhluti þess Sovétlýðveldið Úkraína sem hluti af Sovétríkjunum. Sovétlýðveldið lýsti yfir sjálfstæði við upplausn Sovétríkjanna 1991.

Eftir að landið fékk sjálfstæði lýsti Úkraína yfir hlutleysi í alþjóðamálum, en átti þátt í stofnun Samveldis sjálfstæðra ríkja auk þess að hefja hernaðarsamstarf við Atlantshafsbandalagið 1994. Árið 2013 ákvað forseti Úkraínu, Víktor Janúkovytsj sem tilheyrði rússneska minnihlutanum í landinu, að slíta samstarfssamningi við Evrópusambandið og mynda nánari tengsl við Rússland. Þetta leiddi til mótmæla og að lokum var honum steypt af stóli. Í kjölfarið innlimaði Rússland Krímskaga eftir að hafa sent þangað herlið og haldið atkvæðagreiðslu. Rússneskumælandi héruð í Donbas í austurhluta Úkraínu lýstu í kjölfar yfir sjálfstæði og hafa barist gegn úkraínskum stjórnvöldum með aðstoð Rússa síðan þá.

Árið 2016 óskaði Úkraína eftir að gera fríverslunarsamning við Evrópusambandið. Landið sótti formlega um aðild að Evrópusambandinu árið 2022.

Úkraína er þróunarland og er í 74. sæti vísitölu um þróun lífsgæða. Landið er það fátækasta í Evrópu, ásamt Moldóvu. Fátækt er útbreidd og alvarleg spilling einkennir stjórnmálin. Úkraína á víðáttumikið ræktarland og er einn stærsti kornútflytjandi heims. Úkraínuher er þriðji stærsti her Evrópu, á eftir Rússlandsher og Frakklandsher. Stjórnarfar í Úkraínu er forsetaþingræði með þrískiptingu ríkisvaldsins. Landið á aðild að Sameinuðu þjóðunum, Evrópuráðinu, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, GUAM-stofnuninni, Lublinþríhyrningnum og er einn af stofnaðilum Samveldis sjálfstæðra ríkja, þótt landið hafi aldrei gerst formlegur aðili.

Saga

Úkraína var miðja fyrsta slavneska ríkisins, Garðaríkis sem stofnað var af Væringjum (sænskum víkingum) og var stærsta og öflugasta ríki Evrópu á 10. og 11. öld. Innbyrðis deilur og innrás Mongóla veiktu ríkið sem var þá innlimað í Stórhertogadæmið Litáen sem seinna varð að Pólsk-litáíska samveldinu. Menningarleg og trúarleg arfleifð Garðaríkis hélt lífinu í úkraínskri þjóðernishyggju næstu aldirnar. Nýtt ríki kósakka var stofnað í Úkraínu um miðja 17. öld eftir uppreisn gegn Pólverjum, ríkið var formlega hluti af Rússneska keisaradæminu en var í raun nánast alveg sjálfstætt í meira en 100 ár. Á seinni hluta 18. aldar lögðu Rússar undir sig megnið af landi Úkraínu.

Eftir fall Rússneska keisaradæmisins 1917 lýsti Úkraína yfir sjálfstæði sínu um skamma hríð (1917–1920) en var þá innlimað á ný, nú inn í Sovétríkin. Tvær hungursneyðir af mannavöldum riðu yfir landið (1921–1922 og 1932–1933) þegar samyrkjubúskapur var innleiddur með valdi í landinu, yfir átta milljónir manna létu lífið í þessum hörmungum. Úkraína varð að blóðugum vígvelli í Síðari heimsstyrjöld þar sem herir Þýskalands og Sovétríkjanna börðust hatrammri baráttu sem kostaði sjö til átta milljónir mannslífa. Sjálfstæði náðist á ný með falli Sovétríkjanna 1991 en mörg vandamál blasa við hinu unga lýðveldi. Völd ríkisins eru enn þá gríðarleg og spilling er mikil sem hefur tafið fyrir efnahagsumbótum, einkavæðingu og innleiðslu borgaralegra réttinda.

Frá 2014 hafa verið átök eða stríð milli Rússlands og Úkraínu. Úkraína hefur hneigst í átt að Evrópusambandinu og NATÓ sem hefur angrað Rússland. Rússland innlimaði Krímskaga árið 2014. Vopnuð átök í Donetsk og Lúhansk í austurhluta Úkraínu voru milli rússneska minnihlutans og úkraínska meirihlutans. Rússar sendi þeim fyrrnefndu vopnabúnað. Í febrúar 2022 lýsti Vladímír Pútín yfir sjálfstæði lýðvelda sem kennd eru við héruðin þar sem flestir rússnesk ættaðir voru. Skömmu síðar réðst Rússland inn í Úkraínu frá austri, suðri og norðri. Loftárásir voru gerðar um allt land á hernaðarmannvirki og á almenna borgara. Milljónir flýðu land.

Landfræði

Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting 
Útsýni yfir Karpataþjóðgarðinn og Hoverla sem er hæsta fjall Úkraínu, 2.061 metrar á hæð.

Úkraína er stórt land í Austur-Evrópu og liggur að mestu leyti á Austur-Evrópusléttunni. Úkraína er annað stærsta Evrópulandið á eftir Rússlandi. Landið er 603.628 km² að stærð með 2.782 km langa strandlengju við Svartahaf og Asovshaf. Úkraína er milli 44. og 53. breiddargráðu norður og 22. og 41. lengdargráðu austur.

Landslag Úkraínu einkennist af frjósömum sléttum (eða gresjum) og hásléttum, sem margar ár renna um á leið sinni til Svartahafs. Meðal þeirra eru Dnjepr, Donets, Dnjestr og Pívdennyj Búg. Í suðvestri liggja landamæri Úkraínu að Rúmeníu við Dónárósa. Einu fjöll Úkraínu eru Karpatafjöll í vestri. Hæst þeirra er Hoverla fjall, 2061 metrar á hæð, og Krímfjöll á Krímskaga, syðst við ströndina. Í Úkraínu eru líka hálendissléttur, eins og Volyn-Podillia-sléttan í vestri, og Dnipro-hálendið við bakka Dnjepr. Í austri eru suðvesturásar Mið-Rússlandshásléttunni þar sem landamærin að Rússlandi liggja. Donets-hryggurinn og Asovshálendið eru við Asovshaf. Snjóbráð úr fjöllunum rennur út í árnar og fossar myndast þar sem er skarpur hæðarmunur.

Helstu náttúruauðlindir Úkraínu eru járngrýti, kol, mangan, jarðgas, olía, salt, brennisteinn, grafít, títan, magnesín, kaólín, nikkel, kvikasilfur, timbur og mikið ræktarland. Þrátt fyrir þessar auðlindir stendur landið frammi fyrir áskorunum í umhverfismálum, eins og skorti á drykkjarvatni, loft- og vatnsmengun og skógeyðingu, auk geislamengunar eftir Tsjernobylslysið í norðaustri. Endurvinnsla á eitruðum heimilisúrgangi er skammt á veg komin.

Héraðaskipting

Úkraína skiptist í 24 héruð (úkraínska: область), 1 sjálfstjórnarlýðveldi (Sjálfstjórnarlýðveldið Krím) og 2 borgir með sérstöðu: Höfuðborgina Kænugarð (Kyjív) og Sevastopol:

Hérað Fáni Úkraínskt heiti Höfuðborg
Vínnytsjafylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Вінницька область Vínnytsja
Volynskfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Волинська область Lútsk
Dníprópetrovskfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Дніпропетровська область Dnípro
Donetskfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Донецька область Donetsk
Zjytomyrfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Житомирська область Zjytomyr
Zakarpatska-fylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Закарпатська область Úzjhorod
Zaporízjzja-fylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Запорізька область Zaporízjzja
Ívano-Frankívskfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Івано-Франківська область Ívano-Frankívsk
Kænugarðsfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Київська область Kænugarður
Kyrovohradfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Кропивницька область Kropyvnytskyj
Lúhanskfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Луганська область Lúhansk
Lvívfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Львівська область Lvív
Mykolajívfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Миколаївська область Mykolajív
Odesafylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Одеська область Odesa
Poltavafylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Полтавська область Poltava
Rívnefylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Рівненська область Rívne
Súmyfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Сумська область Súmy
Ternopílfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Тернопільська область Ternopíl
Kharkívfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Харківська область Kharkív
Khersonfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Херсонська область Kherson
Khmelnytskyjfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Хмельницька область Khmelnytskyj
Tsjerkasyfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Черкаська область Tsjerkasy
Tsjernívtsífylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Чернівецька область Tsjernívtsí
Tsjerníhívfylki Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Чернігівська область Tsjerníhív
Sjálfstjórnarlýðveldið Krím Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Автономна Республіка Крим Símferopol
Kænugarður Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Київ Kænugarður (Kyjív)
Sevastopol Úkraína: Saga, Landfræði, Héraðaskipting  Севастополь Sevastopol

Tilvísanir

Tags:

Úkraína SagaÚkraína LandfræðiÚkraína HéraðaskiptingÚkraína TilvísanirÚkraínaAsovshafAustur-EvrópaHvíta-RússlandKænugarðurMoldóvaPóllandRúmeníaRússlandSlóvakíaSvartahafUngverjalandÚkraínska

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

OlísÞór (norræn goðafræði)SmáríkiME-sjúkdómurKanadaBlýanturBorgarstjóri ReykjavíkurÍþróttafélagið Þór AkureyriPortúgalLímaBleyjaÓsérplægniÆgirEignarfornafnListi yfir íslensk skáld og rithöfundaSigurjón KjartanssonBrúðkaupsafmæliEinhverfaLettlandYrsa SigurðardóttirGuðmundur Ingi GuðbrandssonBlálangaListi yfir íslenska málshættiÍslensk mannanöfn eftir notkunÁsdís Rán GunnarsdóttirListi yfir íslensk mannanöfnSjálfstæðisflokkurinn eldriSkálholtJón Páll SigmarssonSjálfstæðisflokkurinnKommúnismiJökull JakobssonÞórshöfn (Langanesi)SauðnautGullbringusýslaMadeiraeyjarLátrabjargSýslur á ÍslandiBilljónIssi20. aprílSúfismiRudolf HössHera Björk ÞórhallsdóttirKári StefánssonSturla SighvatssonSveitarfélagið ÁrborgTýrKaffiTómas GuðmundssonSagnorðHjálmdofriÍslenskt mannanafnAngkor WatLaufey (mannsnafn)Listi yfir íslenskar hljómsveitirHvalirÍslenski þjóðbúningurinnForsætisráðherra ÍslandsGreinirListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðSvampur SveinssonStandpínaSódóma ReykjavíkHöfuðborgarsvæðiðAndrea GylfadóttirBaldur (mannsnafn)KirkjubæjarklausturJóiPé og KróliGuðmundar- og GeirfinnsmáliðSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022Gamelan🡆 More