14. Apríl: Dagsetning

14.

MarAprílMaí
SuÞrMiFiLa
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930
2024
Allir dagar

apríl er 104. dagur ársins (105. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 261 dagur er eftir af árinu.

Atburðir

  • 69 - Fyrsti bardaginn við Bedriacum: Vitellius sigraði heri Othos sem framdi sjálfsvíg.
  • 193 - Septimius Severus var hylltur af mönnum sínum sem keisari Rómar.
  • 1028 - Hinrik 3. varð keisari hins Heilaga rómverska ríkis.
  • 1191 - Selestínus 3. páfi tók við eftir lát Klemens 3.
  • 1205 - Orrustan um Adríanópel milli Búlgara og hers Latverska keisaradæmisins í Konstantínópel.
  • 1695 - Hafís barst inn á Faxaflóa í fyrsta sinn síðan 1615. Ísinn barst suður með Austurlandi og svo vestur með Suðurlandi og fyrir Reykjanes.
  • 1790 - Ólafur Stefánsson var skipaður stiftamtmaður, fyrstur Íslendinga.
  • 1814 - Napóleon Bónaparte sagði af sér keisaratign eftir ósigur í Sjötta bandalagsstríðinu.
  • 1849 - Ungverjar hófu uppreisn og lýstu yfir sjálfstæði frá Austurríki.
  • 1912 - Farþegaskipið RMS Titanic sigldi á borgarísjaka rétt fyrir miðnætti.
  • 1927 - fyrsti Volvo-bíllinn var framleiddur í Gautaborg.
  • 1931 - Þingrofsmálið: Alþingi var rofið og boðað til nýrra þingkosninga. Þingrofið var mjög umdeilt.
  • 1935 - Frakkar, Bretar og Ítalir gerðu með sér Stresasamkomulagið
  • 1962 - Handritastofnun Íslands sem síðar fékk nafnið Árnastofnun var stofnuð með sérstökum lögum þegar hillti undir lausn Handritamálsins.
  • 1963 - Hrímfaxi, flugvél Flugfélags Íslands, fórst við Osló og fórust tólf manns, flest Íslendingar.
  • 1975 - Söngleikurinn Chorus Line var frumsýndur á Shakespearehátíð í New York-borg.
  • 1980 - Fyrsta hljómplata Iron Maiden, Iron Maiden, kom út í Bretlandi.
  • 1983 - Ólafsvík fékk kaupstaðarréttindi.
  • 1984 - Friðarpáskar voru settir í Reykjavík.
  • 1985 - Alan García var kjörinn forseti Perú.
  • 1986 - Allt að 1 kílóa þung högl féllu í Bangladess með þeim afleiðingum að 92 létust.
  • 1986 - Fyrsti matsölustaður Hlöllabáta var opnaður í Reykjavík.
  • 1987 - Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli var vígð.
  • 1989 - Game Boy kom fyrst á markað í Japan.
  • 1990 - Bandaríski verðbréfasalinn Michael Milken játaði sig sekan um fjársvik.
  • 1991 - Þjófar stálu 20 verkum úr Van Gogh-safninu í Amsterdam. Myndirnar fundust innan við klukkutíma síðar í yfirgefnum bíl í nágrenninu.
  • 1992 - Ráðhús Reykjavíkur var tekið í notkun. Bygging þess kostaði á fjórða milljarð króna.
  • 1997 - 343 fórust í eldi í tjaldbúðum pílagríma í nágrenni Mekka.
  • 1999 - Kosóvóstríðið: Flugvélar NATO réðust á bílalest með albönskum flóttamönnum fyrir mistök og drápu 79 flóttamenn.
  • 2003 - Kortlagningu gengamengis mannsins í Human Genome Project lauk.
  • 2007 - 42 létust í hryðjuverkaárás í Karbala í Írak.
  • 2008 - Bandalag hægriflokka undir forystu Silvio Berlusconi vann sigur í þingkosningum á Ítalíu.
  • 2010 - Eldgos hófst í Eyjafjallajökli. Eldfjallaaskan sem dreifðist yfir Evrópu olli miklum truflunum á flugumferð í álfunni.
  • 2013 - Nicolás Maduro var kjörinn forseti Venesúela.
  • 2014 - 276 stúlkum var rænt úr skóla í Chibok í Nígeríu.
  • 2014 - 75 létust þegar bílsprengja sprakk í höfuðborg Nígeríu, Abuja.
  • 2018 - Borgarastyrjöldin í Sýrlandi: Bandaríkin, Bretland og Frakkland fyrirskipuðu loftárásir á herstöðvar Sýrlandshers vegna saríngasárásanna.
  • 2020Donald Trump lýsti því yfir að Bandaríkin myndu stöðva fjárframlög til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.

Fædd

Dáin

Tags:

Gregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

KansasSagnmyndirBaldur Már ArngrímssonWilliam SalibaKnattspyrnufélagið VíkingurTíðbeyging sagnaEgils sagaGerjunBrennu-Njáls sagaGoðafossSkólakerfið á ÍslandiEggert ÓlafssonÍslensk mannanöfn eftir notkunJöklar á ÍslandiAndlagSundlaugar og laugar á ÍslandiDavíð OddssonGarðabærSvissSeyðisfjörðurGamli sáttmáliNafnháttarmerkiViðtengingarhátturForseti ÍslandsÓmar RagnarssonIndónesíaKríaJarðskjálftar á ÍslandiKalínForsetakosningar á Íslandi 2024Kylian MbappéHvíta-RússlandSamtengingParísPálmi GunnarssonHow I Met Your Mother (1. þáttaröð)Skarphéðinn NjálssonÁstþór MagnússonMatarsódiGvamDýrHallgrímskirkjaRauðsokkahreyfinginGrísk goðafræðiEllen KristjánsdóttirÞjóðhátíð í VestmannaeyjumStefán HilmarssonEimreiðarhópurinnNjáll ÞorgeirssonSteinþór Hróar SteinþórssonHöfuðborgarsvæðiðSvíþjóðHvalfjörðurFullveldiLéttirGreinirListi yfir íslenskar kvikmyndirNo-leikurBloggArnar Þór JónssonFlámæliLundiSúrefnismettunarmælingMorð á ÍslandiKynþáttahaturRisahaförnXboxHowlandeyjaHTMLFreyjaLeviathanSkúli MagnússonC++Egill EðvarðssonListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurNoregur🡆 More