Kólera: Bakteríusýking í smáþörmum

Kólera er bakteríu-smitsjúkdómur sem berst inn í líkamann með menguðu vatni eða matvælum.

Bakterían (Vibrio choler) myndar eiturefni sem festist í slímhúð þarmanna. Kólera getur valdið gríðalegum niðurgangi á stuttum tíma og einnig alvarlegu vökvatapi og vatnsskort. Ef ekki er brugðist nógu fljótlega við getur fólk dáið. Bráð kólerusýking getur leitt fólk til dauða 2-3 klukkustundum frá því að fyrstu einkenni koma fram, en algengara er að það taki um 18 klukkustundir. Meðgöngutíminn er mjög stuttur en er hann einungis 1-5 dagar.

Það getur verið flókið að greina kóleru frá öðrum gerðum af bráðaniðurgangi út frá einkennum og viðbrögðum eingöngu, þess vegna þarf að rækta sýkilinn úr blóð- eða saursýnum sjúklinga til að staðfesta að kólera sé sjúkdómurinn. Kólera dreifist með menguðu vatni og matvælum. Þegar skyndilega koma upp miklir kólerufaraldrar er orsakarinnar oftast að leita í menguðum vatnsbólum. Niðurgangurinn getur fyllt í allt 1 lítra á klukkustund, lyktin minnir á fiskifýlu og í útliti minnir hann helst á vatn með flekkjum af hrísgrjónum. Þessir flekkir eru í raun slím ásamt sýkli og þekjuvef. Sjúklingarnir missa ekki bara vatn heldur missa þeir líka mikið af nauðsynlegum söltum. Ofþornunin lýsir sér á mjög marga hætti og er það meðal annars hraður hjartsláttur, sokkin augu og mikill þorsti.

Mestan hluta 20. aldar var kólera ekki þekkt í vesturheimi en skaut síðan aftur upp kollinum við lok aldarinnar. Kóleru-bakterían var fyrst einangruð og borin kennsl á af Ítalanum Filippo Pacini 1854. Fyrstu einstöku bólusetninguna framkvæmdi og þróaði spænski læknirinn og bakteríusérfræðingurinn Jaume Ferran i Clua 1885, sem ennfremur var þar með fyrsti einstaka bakteríu-bólusetning manneskju en áður hafði aðeins tekist að bólusetja gegn vírusum.

Áætlað er að 1,3–4 milljón einstaklinga veikjast af kóleru árlega og 21.000–143.000 deyja. Langflest tilfelli eru í þróunarlöndum og þá einkum Afríku sunnan Sahara. Erfitt er að áætla nákvæmlega fjölda árlegra tilfella vegna vangetu ríkja til að skrá niður tilfelli ásamt því að ríkji hræðast áhrif þess á ferðaiðnað og önnur viðskipti.

Til eru bóluefni gegn kóleru með þokkalegri virkni en þau eru ekki á skrá á Íslandi. Samkvæmt íslenskum lögum er skylda að tilkynna smit um kóleru til landlæknis.

Heimildir

Tags:

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HávamálTom BradyÍslenska stafrófiðRómverskir tölustafirIndónesíaListi yfir landsnúmerGuðrún ÓsvífursdóttirTahítíBóndadagurÁrmann JakobssonSandgerðiMaríuhöfnKári StefánssonIngvar E. SigurðssonJóhann G. JóhannssonForsetakosningar í BandaríkjunumJapanHvannadalshnjúkurGunnar Helgi KristinssonForsetakosningar á Íslandi 2012RómWayback MachinePáll ÓskarAkranesHrafn GunnlaugssonRSSVistkerfiMannakornNo-leikurDrakúlaÍslenskt mannanafnGvamAndri Snær MagnasonHernám ÍslandsSeyðisfjörðurVatnajökullTrúarbrögðHeiðarbyggðinSigurjón KjartanssonÍslenskaMannslíkaminnFrosinnNúmeraplataAldous HuxleySjálfsofnæmissjúkdómurmoew8Hafþór Júlíus BjörnssonSveppirDreifkjörnungarÞór (norræn goðafræði)Þingkosningar í Bretlandi 1997Sigmund FreudNafnorðDaniilRjúpaIlíonskviðaFimleikafélag HafnarfjarðarEiríkur Ingi JóhannssonAaron MotenÍbúar á ÍslandiPragLitla hryllingsbúðin (söngleikur)HvalirOfurpaurCristiano RonaldoHTMLSkarphéðinn NjálssonHjaltlandseyjarSönn íslensk sakamálSvartfuglarHamasJósef StalínFlateyjardalurNjáll ÞorgeirssonPétur J. Thorsteinsson (sendiherra)🡆 More