Íbúar á Íslandi voru 383.726 þann 1.
janúar 2024. Ísland er á meðal fámennustu fullvalda ríkja í heiminum, í 172. sæti af 195. Íbúar eru 3,75 á hvern ferkílómetra lands sem gerir Ísland einnig að einu dreifbýlasta landi heims, en stór hluti landsins er þó óbyggður og íbúarnir búa flestir í þéttbýli. 64% landsmanna búa á höfuðborgarsvæðinu.
Miðað við önnur Evrópulönd hefur íbúum fjölgað hratt á Íslandi það sem af er 21. öldinni. Það er bæði vegna náttúrlegrar fjölgunar þar sem fæðingar hafa verið mun fleiri en andlát en þó enn fremur vegna aðflutnings fólks. Erlendir ríkisborgarar voru 16,6% íbúa 2024 og hefur það hlutfall vaxið hratt á undanförnum árum.
Íslendingar eru í megindráttum Norðurlandaþjóð hvað varðar menningu og tungumál. Samkvæmt elstu ritheimildum byggðist landið upphaflega af norrænum mönnum, einkum frá Noregi og frá nýlendum víkinga á Bretlandseyjum en með þeim í för voru meðal annars kristnir Írar og Bretar. Íslendingar hafa í gegnum tíðina átt mest samskipti við helstu fiskveiðiþjóðir á Norður-Atlantshafi.
Á síðari tímum hafa ýmsar kenningar um uppruna þjóðarinnar verið settar fram með erfðafræðilegum rökum. Þá er talað um að flestar konur sem hingað komu hafi verið upprunnar á Bretlandseyjum en karlarnir aftur norrænir. Þessar kenningar hafa verið gagnrýndar með erfðafræðilegum rökum. Aðrar erfðafræðilegar rannsóknir benda til þess að nútímaíslendingar séu blandaðri en meðaltal Evrópu.
Íbúafjöldi landsins sveiflaðist á milli um 30.000 og 80.000 við hefðbundinn efnahag í bændasamfélagi fyrri alda. Frá miðri 19. öld fjölgaði Íslendingum hins vegar ört, bæði vegna framfara í læknavísindum og breyttra atvinnuhátta. Nú eru íbúar landsins tæplega 398.000 auk þúsunda af íslenskum uppruna sem ekki eru búsett á Íslandi.
Innflytjendur á Íslandi voru þann 1. mars 2023: 66.823 eða 17,14% mannfjöldans.
Pólverjar eru fjölmennastir innflytjenda og eru 36% allra innflytjenda. Þar á eftir koma innflytjendur frá Litáen (8%) og Rúmeníu (6%). Árið 2022 voru pólskir karlar 35,8% allra karlkyns innflytjenda. Litháískir karlar voru næst fjölmennastir (6,2%) og síðan karlar með uppruna frá Rúmeníu (5,1%). Pólskar konur voru 32,2% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim voru konur frá Filippseyjum (5,4%), þá konur frá Litháen (4,7%).
Eftirfarandi tafla sýnir fjöldi íbúa eftir landsvæðum þann 1. nóvember 2023.
Landsvæði | Íbúafjöldi |
---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 253.028 |
Norðurland eystra | 32.335 |
Suðurland | 35.341 |
Suðurnes | 32.570 |
Vesturland | 18.008 |
Austurland | 11.504 |
Norðurland vestra | 7.517 |
Vestfirðir | 7.463 |
Eftirfarandi tafla sýnir fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum þann 1. janúar 2023.
Flestir íbúar Íslands eru í hinni evangelísk-lúthersku þjóðkirkju.
Trú- og lífsskoðunarfélag | Hlutfall |
---|---|
Þjóðkirkjan | 58,61% |
Kaþólska kirkjan | 3,83% |
Fríkirkjan í Reykjavík | 2,57% |
Fríkirkjan í Hafnarfirði | 1,94% |
Ásatrúarfélagið | 1,5% |
Siðmennt | 1,39% |
Óháði söfnuðurinn | 0,82% |
Hvítasunnukirkjan á Íslandi | 0,54% |
Utan trú- og lífsskoðunarfélaga | 7,71% |
Önnur trúfélög og ótilgreint | 18,73% |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Íbúar á Íslandi, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.