Mýrdalshreppur er sveitarfélag sunnan Mýrdalsjökuls, vestast í Vestur-Skaftafellssýslu.
Það varð til 1. janúar 1984 við sameiningu Dyrhólahrepps og Hvammshrepps.
Mýrdalshreppur | |
---|---|
Hnit: 63°25′10″N 19°00′35″V / 63.4194°N 19.0097°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Suðurkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Vík |
Stjórnarfar | |
• Sveitarstjóri | Þorbjörg Gísladóttir |
Flatarmál | |
• Samtals | 749 km2 |
• Sæti | 29. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 881 |
• Sæti | 37. sæti |
• Þéttleiki | 1,18/km2 |
Póstnúmer | 870, 871 |
Sveitarfélagsnúmer | 8508 |
Vefsíða | vik |
Hreppurinn afmarkast af Jökulsá á Sólheimasandi og Sólheimajökli að vestan og Blautukvísl á Mýrdalssandi og Kötlujökli að austan. Aðalbyggðin er í Mýrdal, sem hreppurinn dregur nafn af, og er sveitin öll jafnframt kölluð Mýrdalur. Sveitin er víða mjög grasgefin og græn en þar eru jafnframt miklir sandar og stórbrotin náttúra, klettótt fjöll og hrikaleg gljúfur, og andstæður því miklar. Mýrdalsjökull með eldstöðinni Kötlu gnæfir yfir Mýrdal.
Þorpið Vík í Mýrdal stendur við sjó austan Reynisfjalls og er eina sjávarþorpið á Íslandi sem ekki hefur höfn. Aðalatvinnuvegur hreppsbúa er landbúnaður og á síðari árum einnig ferðaþjónusta. Mýrdalshreppur er syðsti hreppur landsins með syðstu veðurathugunarstöð landsins, að Vestmannaeyjum undanskildum, og er veðurathugunarstöðin á Reyni í Reynishverfi.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Mýrdalshreppur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.