64°38′27″N 17°31′40″V / 64.64083°N 17.52778°V / 64.64083; -17.52778
Bárðarbunga er hæsti punktur á norðvestanverðum Vatnajökli, um 2.000 m að hæð innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Undan henni gengur skriðjökullinn Köldukvíslarjökull auk fleiri smærri jökla. Bárðarbunga er stór og öflug megineldstöð og jafnframt víðáttumesta eldstöð landsins, talin vera nálægt 200 km löng og allt að 25 km breið. Bárðarbunga er önnur stærsta eldstöð og næsthæsta fjall landsins. Í Bárðarbungu leynist svo 850 m djúp askja.
Undir Vatnajökli leynast sjö megineldstöðvar sem hafa verið nefndar, en þær eru ásamt Bárðarbungu: Grímsvötn, Þórðarhyrna, Kverkfjöll, Breiðabunga, Esjufjöll og Öræfajökull. Bárðarbunga er þeirra stærst og undir henni er gríðarmikið kvikuhólf og þykir jarðeðlisfræðingum ekki ósennilegt að kvikuinnskot sem ættir eiga að rekja þangað hafi verið á flakki í sprungum og rásum undir yfirborði jarðskorpunnar. Fjölmörg hraun bæði á Tungnáröræfum og í Ódáðahrauni eru talin ættuð úr Bárðarbungukerfinu. Þeirra á meðal eru Þjórsárhraun og Bárðardalshraun, Tröllahraun og Holuhraun. Líkur eru á að gos í Bárðarbungu geti orðið mjög stórt og mikið öskufall fylgi í kjölfarið, ásamt jökulhlaupum og eyðileggingu af völdum hvors tveggja. Í kjölfar slíks stórgoss mætti búast við hlaupi ofan í Skjálfandafljót, Jökulsá á Fjöllum og jafnvel í fljót sem koma undan bæði vestan- og sunnanverðum jöklinum, auk þess sem gosefni sem mikið bærist af upp í loftið myndu breyta veðurfari tímabundið og mjög til hins verra, eins og gerðist í Móðuharðindunum þegar gaus í Lakagígum.
Árið 2014 varð fjöldi jarðskjálfta í Bárðarbunguöskjunni frá miðjum ágúst, sá stærsti 5,7 að stærð. Yfir 75 skjálftar hafa verið yfir 5 stig..
Í byrjun september urðu menn þess varir að ísinn yfir Bárðarbunguöskjunni var tekinn að síga. Sigið mældist mest 59 metrar í janúar 2015. Ástæðan fyrir þessu var talin sú að sjálf askjan væri að síga vegna kvikuflæðis frá kvikuhólfi undir henni og út í sprungurnar (ganginn) sem beindu bergkviku að gígum Holuhrauns. Eldgosið þar stóð yfir frá september 2014 fram í febrúar 2015 og olli umtalsverðri loftmengun en litlu öðru tjóni. Hluti af skjálftavirkninni undir öskjunni og þar með taldir stóru skjálftarnir urðu samfara þessu sigi.
Niðurstöður rannsókna á öskjusiginu voru birtar í vísindatímaritinu Science. Hátt í fimmtíu vísindamenn frá fjórtán háskólum í níu löndum tóku þátt í rannsókninni.
Þann 14. september 1950 fórst þar íslensk flugvél Loftleiða án þess að nokkur léti lífið. Bandarísk DC-3 flugvél var send til þess að bjarga áhöfninni og gat hún lent á jöklinum en ekki hafið sig til flugs aftur.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Bárðarbunga, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.