Litla hryllingsbúðin er söngleikur eftir Alan Menken (tónlist) og Howard Ashman (texti).
Söngleikurinn, sem byggður er á samnefndri kvikmynd frá árinu 1960 í leikstjórn Roger Corman, var frumsýndur í útjaðri leikhússlífsins í New York, í WPA-leikhúsinu 6. maí 1982, en 27. júlí sama ár var söngleikurinn sýndur í Orpheum-leikhúsinu í New York, sem svokölluð Off-Broadway sýning. Þegar sýningum var hætt, eftir 2209 skipti, hafði söngleikurinn fengið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar og af söngleikjum sem sýndir hafa verið í lengstan tíma samfellt var Litla hryllingsbúðin í þriðja sæti.
Tónlistin í Litlu hryllingsbúðinni er í anda sjöunda áratugar 20. aldar. Mörg þekkt lög eru í söngleiknum og þekktustu lögin á Íslandi eru eflaust Þú verður tannlæknir og Gemmér (í þýðingu Megasar). Einnig er vitnað í dægurmenningu sjöunda áratugarins, til dæmis koma fram persónur í söngleiknum sem heita Chiffon, Crystal og Ronnette, en þær heita eftir vinsælum hljómsveitum sjöunda áratugarins.
Litla hryllingsbúðin hefur verið sýnd víða um heiminn og meðal annars var gerð kvikmynd eftir söngleiknum árið 1986. Söngleikurinn hefur einnig verið vinsælt viðfangsefni áhugaleikfélaga.
Litla hryllingsbúðin segir frá munaðarleysingjanum Baldri sem lifir frekar óspennandi lífi. Hann vinnur í lítilli blómabúð í skuggahverfi borgarinnar, hjá Músnikk, sem tók Baldur í fóstur. Viðskiptin ganga fremur illa og blómabúðin er um það bil að leggja upp laupana. Í blómabúðinni vinnur einnig Auður, sæt ljóska sem Baldur er ástfanginn af. En hún á kærasta, leðurklæddan og ofbeldisfullan tannlækni, sem ferðast um á mótorhjóli og beitir Auði ofbeldi. Dag einn kaupir Baldur dularfulla plöntu, sem hann nefnir Auði II. Eftir því sem plantan vex og dafnar aukast viðskiptin stöðugt meira í blómabúðinni og Baldur verður sífellt vinsælli. Kvöld eitt uppgötvar hann að plantan getur talað og hún lofar honum frægð og frama, gulli og grænum skógum. En sá galli er á gjöf Njarðar að plantan nærist á mannablóði og vill helst fá ferskt mannakjöt að borða. Matarvenjur plöntunnar hafa skelfilegar afleiðingar.
Á Íslandi hefur Litla hryllingsbúðin verið sett upp þrisvar sinnum í atvinnuleikhúsum. Samhliða þessum þremur uppfærslum var tónlistin úr sýningunum gefin út á plötum/geisladiskum. Einnig hefur Hryllingsbúðin verið sýnd af áhugamannaleikhópum víða um landið, s.s. í grunn- og framhaldsskólum.
Fyrsti atvinnuleikhópurinn sem sýndi Litlu hryllingsbúðina á Íslandi var Hitt leikhúsið. Sýnt var í Gamla bíó (Íslensku óperunni) við Ingólfsstræti í Reykjavík og fór frumsýningin fram 13. janúar 1985. Sýningum lauk í byrjun desember sama ár og voru þær þá orðnar fleiri en 100. Sýningargestir urðu u.þ.b. 50.000 og fram að þeim tíma hafði aðeins eitt leikhúsverk verið betur sótt á Íslandi: Fiðlarinn á þakinu. Yfirumsjónarmenn sýningarinnar voru Sigurjón Sighvatsson og Páll Baldvin Baldvinsson. Einar Kárason þýddi laust mál í sýningunni en Magnús Þór Jónsson (Megas) þýddi söngtextana.
Leikarar í sýningunni voru:
Hljóðfæraleikarar í sýningunni voru: Pétur Hjaltested (Hljómborð, hljómsveitarstjórn), Haraldur Þorsteinsson (Bassi), Björgvin Gíslason (Gítar) og Ásgeir Óskarsson (Trommur).
Á hljómplötu/segulbandsspólu sem kom út með tónlistinni úr sýningunni voru eftirtalin lög:
Leikfélag Reykjavíkur var annað atvinnuleikfélagið sem sýndi Litlu hryllingsbúðina. Hún var sýnd á stóra sviði Borgarleikhússins, frumsýnt var 4. júní 1999. Að þessu sinni var það Gísli Rúnar Jónsson sem þýddi og staðfærði verkið, en áfram var notast við söngtexta Megasar. Sýningin var 468. verkefni Leikfélags Reykjavíkur. Sýningar urðu samtals 66 og sýningargestir urðu 29.603. Leikstjóri var Kenn Oldfield. Leikarar í sýningunni voru:
Hljómsveit sýningarinnar skipuðu: Jón Ólafsson (Hljómborð og tónlistarstjóri), Karl Olgeirsson (Hljómborð), Jón Elvar Hafsteinsson (Gítar), Friðrik Sturluson (Bassi), Jóhann Hjörleifsson (Trommur, slagverk).
Geisladiskur kom út með nokkrum lögum úr sýningunni, á honum er að finna þessi lög:
Þriðja íslenska atvinnuleiksýningin á Hryllingsbúðinni var sett upp af Leikfélagi Akureyrar, í samstarfi við Íslensku óperuna og var hún frumsýnd 24. mars 2006 í Samkomuhúsinu á Akureyri. Sýnt var á Akureyri allt vorið, en í maí var farið með sýninguna til Reykjavíkur og var hún frumsýnd í Íslensku óperunni við Ingólfsstræti þann 13. maí. Sýnt var í Reykjavík í maí og júní, en í september voru sýndar nokkrar aukasýningar á Akureyri. Einar Kárason þýddi laust mál og enn var notast við söngtextaþýðingar Megasar. Andrea Gylfadóttir hlaut Grímuverðlaunin 2006 sem besti söngvari fyrir hlutverk sitt í söngleiknum, en auk þess var Ástrós Gunnarsdóttir, danshöfundur sýningarinnar, tilnefnd til sömu verðlauna sem danshöfundur ársins. Leikstjóri sýningarinnar var Magnús Geir Þórðarson. Leikarar í sýningunni voru:
Hljóðfæraleikarar í sýningunni voru þeir Kristján Edelstein (Gítar, hljómsveitarstjóri), Arnór Vilbergsson (Hljómborð, aðstoðarhljómsveitarstjóri), Stefán Ingólfsson (bassi) og Halldór G. Hauksson (trommur).
Eins og áður var tónlistin úr sýningunni gefin út á geisladiski og er eftirtalin lög að finna á honum:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Litla hryllingsbúðin (söngleikur), which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.