Trúarbrögð eru trú á yfirnáttúrulegar verur, guði eða dýrlinga ásamt siðfræði, venjum og jafnvel stofnunum tengdum trúnni.
Víðari skilgreining er að trúarbrögð sé skýring á sambandi mannsins við alheiminn sem hann þrífst í. Trúarbrögð geta verið allt frá stórri skipulagðri stofnun eins og kaþólsku kirkjunni (sem byggir á eingyðistrú, rithefð og sterku félagslegu skipulagi) til trúarbragða ýmissa ættbálka í Afríku og Ástralíu (sem eru fjölgyðistrúar, byggja á munnlegri hefð og hafa yfirleitt fremur óformlegt skipulag) til þeirrar trúar að ekkert guðlegt afl sé til (guðleysi eða sterkt trúleysi, sem ekki má rugla saman við veikt trúleysi eða vantrú). Með fullri vissu má þó segja að flest trúarbrögð feli í sér trú á eitthvert form af guði eða skyldu afli.
Það er talið að séu um 10.000 trúarbrögð í heiminum. Fjölgyðistrú var hið dæmigerða trúarbragðaform fyrir útbreiðslu kristni og íslam. Sem dæmi eru flest form af hindúisma, fjölgyðistrú, og er hindúismi elsta (fjölgyðis) trúin stunduð í nútímanum.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: Vantar ártöl og heimildir |
Fimm fjölmennustu trúarbrögð heims eru eftirfarandi (tölurnar eru fjöldi fylgjenda):
Séu trúlausir og guðlausir ekki taldir saman sem ein trúarbrögð er í fimmta sæti búddismi með 376 milljónir fylgjenda.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Trúarbrögð, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.