Einar Kárason (f.
24. nóvember 1955) er íslenskur rithöfundur og ljóðskáld. Hann byrjaði á því að birta ljóð í tímaritum undir lok áttunda áratugarins, en fyrsta skáldsagan hans, Þetta eru asnar Guðjón, kom út árið 1981. Árið 1983 sló hann svo eftirminnilega í gegn með skáldsögunni Þar sem djöflaeyjan rís sem varð fyrsta bókin í þríleik um líf alþýðufjölskyldu í Reykjavík á eftirstríðsárunum. Eftir Djöflaeyjunni hefur verið gert vinsælt leikrit og samnefnd kvikmynd eftir Friðrik Þór Friðriksson (1996).
Einar fylgdi velgengni „eyjabókanna“ eftir með fjölskyldusögu úr samtímanum um Killiansfólkið, Heimskra manna ráð og Kvikasilfur. Árið 1998 kom út Norðurljós, söguleg skáldsaga sem gerist á 18. öld, og frá 2001 hafa komið út eftir hann fjórar sögulegar skáldsögur sem allar snúast um atburði Sturlungaaldar, Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld.
Einar hefur hlotið ýmis verðlaun og tilnefningar fyrir skrif sín, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin 2008. Þá hefur hann fjórum sinnum verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs (1987, 1996, 2005 og 2010).
Einar á uplestrarferð í Árósum
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Einar Kárason, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.