Hera Björk Þórhallsdóttir (f.
29. mars 1972) er íslensk söngkona. Hún ólst upp í Breiðholti og gekk í Ölduselsskóla og seinna í Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Hera Björk | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | Hera Björk Þórhallsdóttir 29. mars 1972 Reykjavík, Ísland |
Störf | Söngvari |
Ár virk | 1986–í dag |
Hera Björk byrjaði ung að syngja og söng meðal annars inn á auglýsingar og barnaplötuna „Göngum við í kringum“ fyrir 12 ára aldur. Hún hóf söngnám í Söngskólanum í Reykjavík haustið 1989 og lærði söng hjá söngvurunum Rut Magnússon, Bergþóri Pálssyni, Elínu Ósk Óskarsdóttur, Ernu Guðmundsdóttur ofl. Hera Björk keppti í Hæfileikakeppni Suðurlands árið 1988 og hafnaði þar í fyrsta sæti með lagið „Perfect“ sem hljómsveitin Fairground Attraction gerði frægt á sínum tíma. Seinna keppti Hera Björk í Söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd Fjölbrautarskólans í Breiðholti og lenti þar í öðru sæti með lagið „Án þín“.
Hera Björk hefur tekið þátt í uppfærslum á Rocky Horror Picture Show, Evitu, Litlu hryllingsbúðinni, og Kysstu mig Kata. Hún lék og söng einnig í sýningunni Sirkús Skara Skrípó í Loftkastalanum 1996-1997. Hera Björk hefur komið víða við í íslensku skemmtanalífi, var m.a. í hljómsveitunum Orgill, Sweetý og 17Vélar. Hún hefur sungið inn á fjölmargar plötur, bæði sóló sem og bakraddir. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu Ilmur af jólum árið 2000 og fékk hún góða dóma og viðtökur. Hera Björk stjórnaði sjónvarpsþættinum Stutt í Spunann á RÚV veturinn 1999-2000 ásamt leikaranum Hjálmari Hjálmarssyni. Hún kom einnig fram í Áramótaskaupinu 2005.
Árið 2010 tók hún þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir hönd Íslands með laginu „Je ne sais quoi“. Hún sigraði einnig Söngvakeppnina 2024 með laginu „Við förum hærra“/„Scared of Heights“.
Hera Björk bjó um tíma í Kaupmannahöfn og hefur starfað sem söngkona og söngkennari víða um Evrópu. Í dag starfar hún sem fasteignasali í Reykjavík.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hera Björk Þórhallsdóttir, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.