Tenerífe er stærst og fjölmennust Kanaríeyja sem tilheyra Spáni og liggja við strönd Vestur-Afríku í Atlantshafinu.
Tenerífe er jafnframt fjölmennasta eyja Spánar. Höfuðborg eyjarinnar er Santa Cruz de Tenerife. Flatarmál Tenerífe er 2.034 km² og er eyjan í laginu eins og þríhyrningur.
Árið 2022 bjuggu 980.000 íbúar á eyjunni. Eyjan er mjög vinsæll áfangastaður ferðamanna. Árlega heimsækja um fimm milljónir ferðamanna eyjuna. Tenerífe er vinsælasta eyjan af Kanaríeyjunum og einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna á Spáni.
Á Tenerífe er eldfjallið Teide (3,718 m á hæð) sem er hæsta fjall Spánar og þriðja stærsta eldfjall í heimi. Á norðurhluta Tenerífe er borgin San Cristóbal de La Laguna sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Í höfuðborginni er árlega haldin ein stærsta kjötkveðjuhátíð í heimi, á eftir kjötkveðjuhátíðinni í Rio de Janeiro í Brasilíu, kjötkveðjuhátíðin í Santa Cruz de Tenerife.
Talið er að frumbyggjar Tenerife (Guanches) hafi komið til eyjarinnar á árinu 1000 f.k. Krist. Talið er að þeir hafi komið frá norður-Afríku. Þeir áttu ríka goðafræði með mörgum guðum og öndum og blönduðust sumir siðir þeirra trúarbrögðum og siðum síðari íbúa Tenerife. Eyjan var í fyrstu nefnd Achinet.
Á 15. öld komu trúboðar frá Katalóníu til eyjarinnar. Eftir yfir 100 ára átök Evrópulanda um völd á eyjunni var hún innlimuð í Spánarveldi árið 1496 undir stjórn Ísabellu 1. af Kastilíu.
Borgin San Cristóbal de La Laguna varð í fyrstu höfuðborg Kanaríeyjum, þar til á 19. öld þegar Santa Cruz de Tenerife tók við. Englendingar réðust árið 1797 á eyjuna. Biðu þeir ósigur.
Helstu ferðamannastaðir eyjarinnar eru: Teide, hæsta fjall á Spáni og þriðja stærsta eldfjall í heimi. Parque Nacional del Teide er mest heimsótt á Spáni og er á heimsminjaskrá UNESCO.
Tenerife er einnig þekktur fyrir að vera mikill ferðamannastaður á Spáni og erlendis og fær meira en fimm milljónir ferðamanna á ári.
Borgin San Cristóbal de La Laguna er heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 1999. Borgin hefur fjölda kristinna kirkna og klaustur. Þar er Dómkirkjan í San Cristóbal de La Laguna, aðsetur biskups Vestur-Kanaríeyja.
Anaga er skóglent fjalllendi á norðurhluta eyjarinnar og var verndað síðan 2015.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Tenerífe, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.