27. Mars: Dagsetning

27.

FebMarApr
SuÞrMiFiLa
12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31
2024
Allir dagar

mars er 86. dagur ársins (87. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 279 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1272 - Gregoríus 10. (Tedaldo Visconti) varð páfi.
  • 1513 - Juan Ponce de Leon sá strönd Flórída og hélt að hún væri eyja.
  • 1625 - Karl 1. var krýndur konungur Englands og Skotlands.
  • 1764 - Innréttingar Skúla fógeta brunnu. Þrjár vefstofur og tíu vefstólar ásamt öðrum tækjum urðu eldinum að bráð auk hráefnis og fullunnins varnings. Alls var tjónið metið á 3706 ríkisdali og sex skildinga.
  • 1782 - Charles Watson-Wentworth, markgreifi af Rockingham, varð forsætisráðherra Bretlands.
  • 1884 - Fyrsta langlínusímtal sögunnar átti sér stað þegar hringt var á milli New York og Boston.
  • 1943 - Breski togarinn War Grey var staðinn að ólöglegum veiðum við Stafnes. Togarinn sigldi af stað áleiðis til Englands með stýrimann varðskipsins Sæbjargar um borð og stöðvaði ekki fyrr en varðskipið Ægir hafði skotið að honum þrjátíu skotum.
  • 1945 - Þjóðverjar skutu síðustu V-2 flugskeytum sínum á England og Belgíu.
  • 1956 - „Hræðslubandalagið“, kosningabandalag Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, var stofnað.
  • 1958 - Nikita Krústsjov var formlega gerður að forsætisráðherra Sovétríkjanna.
  • 1963 - Mikill jarðskjálfti, um sjö stig, átti upptök norður af mynni Skagafjarðar. Skjálftinn fannst víða og flúðu sumir hús sín.
  • 1968 - Júrí Gagarín, fyrsti maðurinn til að fara út í geim, fórst í flugslysi.
  • 1977 - Mannskæðasta flugslys sögunnar varð þegar tvær farþegaþotur, frá KLM og Pan Am skullu saman á flugvellinum á Tenerífe með þeim afleiðingum að 583 fórust.
  • 1979 - Samtök olíuframleiðsluríkja samþykktu að hækka verð hráolíu um 20%. Við þetta hófst olíukreppan 1979.
  • 1980 - Norski olíuborpallurinn Alexander Kielland brotnaði í Norðursjó með þeim afleiðingum að 123 af 212 manna áhöfn fórust.
  • 1981 - Mikil bílasýning, Auto '81, var haldin í Reykjavík. Þar voru meðal annars sýndir Rolls Royce- og Lamborghini-bílar.
  • 1990 - Bandarísk stjórnvöld hófu sjónvarpsútsendingar í áróðursskyni til Kúbu. Sjónvarpsstöðin heitir TV Martí.
  • 1991 - Fyrsta GSM-símtalið var flutt yfir finnska farsímanetið Radiolinja.
  • 1993 - Jiang Zemin tók við embætti sem forseti Kína.
  • 1994 - Bandalag hægriflokka undir forystu athafnamannsins Silvio Berlusconi sigraði þingkosningar á Ítalíu.
  • 1998 - Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna samþykkti lyfið Sildenafil frá Pfizer sem var selt undir heitinu Viagra.
  • 1999 - F-117 Nighthawk-flugvél frá Bandaríkjaher var skotin niður yfir Kosóvó.
  • 2002 - 30 létust þegar palestínskur sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp á hóteli í Netanya í Ísrael.
  • 2007 - Samningur um landamæri Lettlands og Rússlands var undirritaður.
  • 2008 - Mótmæli vörubílstjóra á Íslandi 2008 hófust með því að hópur bílstjóra lagði bílum sínum í Ártúnsbrekkunni í Reykjavík og stöðvaði þannig alla umferð.
  • 2008 - Fjöldi greina á Wikipediu náði 10 milljónum.

Fædd

Dáin

Tags:

Gregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Jón Kalman StefánssonSuðurskautslandiðGarðabærSamfylkinginListi yfir lönd eftir mannfjöldaStuðmennIngvar E. SigurðssonUndirskriftalistiAsíaFlugumýrarbrennaHeimskautarefurGunnar HámundarsonBrúðkaupsafmæliÍslenska þjóðkirkjanHerra HnetusmjörGuðrún Eva MínervudóttirVerðbæturSagaBæjarins beztu pylsurNúmeraplataNeskaupstaðurHallgerður HöskuldsdóttirListi yfir ráðuneyti ÍslandsSkaftáreldarIcesaveSigríður AndersenNelson MandelaEgill HelgasonRauðsokkahreyfinginSjónvarpiðTékklandLýðræðiKróatíaInnrásin í NormandíFiann PaulVísindaleg flokkunArgentína2024RúmmálLýsingarorðForsætisráðherra ÍslandsAfríkaListi yfir risaeðlurJeff Who?Eigið féVetrarólympíuleikarnir 1988NáttúraSvíþjóðDavíð StefánssonHafnarfjörðurGerald FordÚtvarpsþátturÖndBruninn í Kaupmannahöfn árið 1728Gunnar Smári EgilssonÁstralíaDýrin í HálsaskógiÍslenska sauðkindinSkúli ThoroddsenÁsdís Halla BragadóttirKristján EldjárnÍslendingasögurRokkurUppeldisfræðiSigmundur Davíð GunnlaugssonGuðrún ÓsvífursdóttirListi yfir skráð trú- og lífsskoðunarfélög á ÍslandiListi yfir gjaldmiðla í notkunStjórnarráð ÍslandsGeðklofiÝsa🡆 More