Daði Freyr Pétursson (f.
30. júní 1992) er íslenskur tónlistarmaður búsettur í Berlín í Þýskalandi.
Daði Freyr | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Daði Freyr Pétursson 30. júní 1992 Reykjavík, Ísland |
Störf | Tónlistarmaður |
Ár virkur | 2012–í dag |
Hljóðfæri |
|
Meðlimur í | Daði og Gagnamagnið |
Vefsíða | dadifreyr |
Daði fæddist í Reykjavík en ólst upp í Danmörku til níu ára aldurs en þá flutti fjölskylda hans til Íslands og settist að á Suðurlandi, fyrst í Laugalandi og síðar í Ásahreppi. Daði lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands árið 2012 og BA-námi í tónlistarstjórnun og hljóðvinnslu í Berlín árið 2017.
Í æsku æfði Daði sig á trommur og lærði á píanó og bassagítar. Hann hóf tónlistarferil sinn með hinni skammlífu hljómsveit Orchestra of Few en í þeirri hljómsveit var meðal annars Kristján Pálmi Ásmundsson. Árið 2011 stofnuðu þeir hljómsveitina RetRoBot og fengu til liðs við sig Gunnlaug Bjarnason, söngvara, og Guðmund Einar Vilbergsson, gítarleikara en þeir höfðu kynnst í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Árið 2012 vann hljómsveitin Músíktilraunir og Daði var valinn rafheili ársins. RetRoBot gaf út eina plötu, Blackout, ári síðar.
Árið 2014 flutti Daði Freyr til Berlínar þar sem hann hóf háskólanám í upptökustjórnun og hljóðvinnslu við tónlistarskólann dBs Music. Sama ár byrjaði hann að spila undir nafninu Mixophrygian og ári síðar gaf hann út plötuna Forever.
Árið 2017 tók Daði þátt í Söngvakeppninni með laginu „Hvað með það?“ („Is This Love?“) en það flutti hann ásamt eiginkonu sinni Árnýju Fjólu Ásmundsdóttur tónlistarkonu og hljómsveitinni Gagnamagninu. Þau höfnuðu í öðru sæti á eftir Svölu Björgvinsdóttur sem flutti lagið „Paper“. Daði Freyr og hljómsveit hans Gagnamagnið tóku svo aftur þátt í Söngvakeppninni árið 2020 og unnu þá með laginu „Gagnamagnið“ („Think About Things“). Eftir að keppninni árið 2020 var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins, var hann valinn aftur til að keppa fyrir hönd Íslands árið 2021. Ásamt Gagnamagninu flutti hann lagið „10 Years“ og endaði í 4. sæti í lokakeppninni sem var þriðji besti árangur Íslands í Eurovision.
Daði kom fram í tónlistaratriði í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2023 í Liverpool þar sem hann tók ábreiðu af lagi bresku sveitarinnar Atomic Kitten.
Daði Freyr er í hjónabandi með Árnýju Fjólu Ásmundsdóttur, listakonu, og eiga þau eina dóttur fædda árið 2019. Þau eignuðust aðra dóttur árið 2021.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Daði Freyr Pétursson, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.