Stigbreyting er hugtak í málfræði.
Sum orð, nánast eingöngu lýsingarorð og atviksorð, stigbreytast og geta þá komið fyrir í frumstigi, miðstigi og efsta stigi. Stigbreytingu skal ekki rugla saman við fallbeygingu. Strikið tilstrik (n-strik, strik sem er jafnbreytt bókstafinum n) er notað við upptalningu beygingarmynda.
Flest lýsingarorð stigbreytast, en orðmyndir geta myndast eftir frumstigi, miðstigi og efsta stigi. Stigbreytingin sjálf nefnist regluleg er ef stigin eru mynduð af sama stofni, dæmi um það er orðið ríkur sem stigbreytist ríkur – ríkari – ríkastur þar sem stofninn er rík-. Miðstigið myndast af því að bæta við stofninn -ar- eða -r- og þar fyrir aftan endingum veikrar beygingar lýsingarorða. Á efsta stigi eru tilsvarandi viðskeyti -ast- eða -st- og þar fyrir aftan koma annaðhvort endingar sterkrar eða veikrar beygingar lýsingarorða. Stundum verða hljóðavíxl í stofni lýsingarorða sem stigbreytast reglulega en dæmi um það er lýsingarorðið stór (stigbreyting stór - stærri - stærstur) og lýsingarorðið djúpur (stigbreyting djúpur – dýpri – dýpstur).
Stigbreytingin er óregluleg ef miðstig og efsta stig myndast af öðrum stofni en frumstig eins og lýsingarorðið illur (stigbreyting illur – verri – verstur).
Sum lýsingarorð hafa hafa mynd í frumstigi og eru miðstigið og efsta stigið þá oftast mynduð af atviksorðum og forsetningum. Flest þessara orða gefa til kynna átt, stefnu eða röð í tíma og rúmi:
Sum lýsingarorð stigbreytast ekki og eru óbeygjanleg með öllu, þessi orð enda flest á a eða i. Í stað stigbreytingar má skeyta framan við þau orðunum meira og mest:
Nokkur lýsingarorð beygjast í föllum og kynjum en ekki í stigum.
Flest atviksorð stigbreytast.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Stigbreyting, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.