Gísli Á Uppsölum: Íslenskur bóndi og einbúi á Vestfjörðum (1907-1986)

Gísli á Uppsölum, skírður Gísli Októvíanus Gíslason (29.

október 1907 – 31. desember 1986), var bóndi og einbúi í Selárdal á Vestfjörðum. Millinafn Gísla „Októvíanus“ er mjög oft misritað sem „Oktavíus“ í íslenskum fjölmiðlum eða annarstaðar. Foreldrar hans hétu Gísli Sveinbjörnsson (1852–1916) og Gíslína Bjarnadóttir (1867–1949). Hann átti þrjá bræður sem voru: Gestur (1901–1980), Bjarni (1903–1988) og Sigurður Jóhannes (1909–1991).

Hann varð þjóðþekktur þegar Ómar Ragnarsson sótti hann heim í Stikluþætti sem var frumsýndur hjá Ríkissjónvarpinu á jóladagskvöldi árið 1981. Þá fékk Stikluþáttur Ómars misgóð viðbrögð. Sumir voru á því máli að búskaparhættir hans gæfu innsýn inn í fortíðina á meðan aðrir gagnrýndu þáttinn. Meðal gagnrýnenda var Þorbjörn Broddason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands sem skrifaði: „Ómar hefur gert mikið og á heiður og aðdáun skilið fyrir sitt lífsverk en ég hef alltaf litið á þennan þátt hans um Gísla sem hans versta axarskaft. Þarna er maður sem er hreinlega fatlaður, utanveltu og veit ekkert hvaðan á sig stendur veðrið. Þá kemur allt í einu einhver maður að sunnan með græjur og eltir hann um túnið og hann hrökklaðist undan honum eins og sært dýr. Mér fannst þetta óskaplega sorglegt, var misboðið og var alveg gáttaður þegar ég sá undirtektir fólks. Að það væri að hrífast af þessu.“

Þá er það ekki ljóst hvort það var Gísli sem einangraði sig frá samfélaginu eða hvort honum var útskúfað fyrir að vera öðruvísi. Það er hinsvegar vitað að hann var oft einmanna og var ekki ánægður með þær aðstæður sem hann lifði við.

Tilvísanir

Ítarefni

Tags:

SelárdalurVestfirðir

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Loftskeytastöðin á MelunumForsetakosningar á Íslandi 1980Friðrik DórSvartfuglarÍslensk sveitarfélög eftir sveitarfélagsnúmerumGóði dátinn SvejkHvannadalshnjúkurLeifur heppniÓbeygjanlegt orðSkólakerfið á ÍslandiSkátahreyfinginIvar Lo-Johansson2020Ísland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaPáskarListi yfir borgarstjóra ReykjavíkurÓlafur Ragnar GrímssonHerra HnetusmjörWiki CommonsNo-leikurVaranleg gagnaskipanRómverskir tölustafirJónas HallgrímssonHollenskaLuciano PavarottiAtviksorðListi yfir íslensk kvikmyndahúsFramsóknarflokkurinnÁrmann JakobssonJarðskjálftar á ÍslandiHermann HreiðarssonVísindaleg flokkunNafnhátturTjaldurHrafn GunnlaugssonFyrsta krossferðinFlámæliSamtengingJarðgasÍslensk mannanöfn eftir notkunÚrvalsdeild karla í körfuknattleikEldfellAuður djúpúðga KetilsdóttirSongveldiðListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969SamfélagsmiðillOkkarínaNafnháttarmerkiEinar Sigurðsson í EydölumSkúli MagnússonMannslíkaminnKommúnismiLundiSveitarfélög ÍslandsÞingkosningar í Bretlandi 1997MannsheilinnGrænlandWiki FoundationBlaðamennskaSálin hans Jóns míns (hljómsveit)LeviathanGuðrún ÓsvífursdóttirListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðPurpuriOrkumálastjóriMæðradagurinnNáttúruvalVatnajökullPálmi GunnarssonRíkisstjórn ÍslandsGreinirÞýskaSamkynhneigðÍslenska karlalandsliðið í knattspyrnuAkureyri🡆 More