Þingeyjarsveit er sveitarfélag á Norðurlandi eystra, kennt við Þingey í Skjálfandafljóti.
Þingeyjarsveit | |
---|---|
Hnit: 65°43′23″N 17°21′32″V / 65.723°N 17.359°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðausturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | |
Stjórnarfar | |
• Sveitarstjóri | Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir |
Flatarmál | |
• Samtals | 12.021 km2 |
• Sæti | 1. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 1.410 |
• Sæti | 29. sæti |
• Þéttleiki | 0,12/km2 |
Póstnúmer | 601, 641, 645, 650, 660 |
Sveitarfélagsnúmer | 6613 |
Vefsíða | thingeyjarsveit |
Sveitarfélagið varð til 9. júní 2002 við sameiningu fjögurra hreppa: Ljósavatnshrepps, Bárðdælahrepps, Hálshrepps og Reykdælahrepps. Í kjölfar atkvæðagreiðslu 26. apríl 2008 sameinaðist Þingeyjarsveit svo Aðaldælahreppi. Í atkvæðagreiðslu 5. júní 2021 samþykktu íbúar sveitarfélagsins sameiningu við Skútustaðahrepp með 65,2% greiddra atkvæða. Sveitarfélögin sameinuðust undir nafni Þingeyjarsveitar í kjölfar sveitarstjórnarkosninga 2022.
Þingeyjarsveit er stærsta sveitarfélag Íslands að flatarmáli og þekur um 12% landsins en byggð í sveitarfélaginu takmarkast við Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Köldukinn, Bárðardal, Laxárdal, Aðaldal, Reykjadal og Mývatnssveit. Þéttbýliskjarnar eru á Laugum og Reykjahlíð. Megnið af landi sveitarfélagsins er í óbyggðum og nær það alveg inn á Vatnajökul. Þrjú stór vatnsföll renna um Þingeyjarsveit, Laxá í Laxárdal, Fnjóská í Fnjóskadal, Skjálfandafljót í Bárðardal. Í því síðarnefnda er Goðafoss nálægt Fosshóli við Þjóðveg 1. Að auki markar Jökulsá á Fjöllum mörk sveitarfélagsins í austri og þar er Dettifoss. Mývatn og umhverfi þess er mikið aðdráttarafl ferðamanna. Í Fnjóskadal er Vaglaskógur, vinsælt útivistarsvæði.
Grunnskólar sveitafélagsins eru Stórutjarnarskóli á Stórutjörnum í Ljósavatnsskarði, Þingeyjarskóli á Hafralæk í Aðaldal og Reykjahlíðarskóli í Reykjahlíð. Á Laugum er einnig framhaldsskóli.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Þingeyjarsveit, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.