30. Júlí: Dagsetning

30.

JúnJúlíÁgú
SuÞrMiFiLa
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
2024
Allir dagar

júlí er 211. dagur ársins (212. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 154 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 657 - Vítalíanus páfi tók við embætti.
  • 1514 - Rússar hertóku pólsku borgina Smolensk.
  • 1588 - Englendingar unnu sigur á Flotanum ósigrandi.
  • 1609 - Franski landkönnuðurinn Samuel de Champlain tók þátt í orrustu milli Húronindíána og Írókesa og skaut tvo höfðingja Írókesa til bana.
  • 1619 - Burgeisaþingið, fyrsta þing landnema í Norður-Ameríku kom saman í Jamestown, Virginíu.
  • 1626 - Um tíu þúsund manns létust þegar jarðskjálfti reið yfir Napólí á Ítalíu.
  • 1627 - Ítölsku bæirnir Torremaggiore og San Severino hrundu í jarðskjálfta.
  • 1797 - Geir Vídalín var vígður biskup og fór vígslan fram á Hólum, en aðsetur biskups skyldi vera í Reykjavík.
  • 1874 - Kristján 9. Danakonungur kom til Íslands til að vera viðstaddur þjóðhátíð í byrjun ágúst. Hann var fyrsti konungur Íslands sem kom til landsins.
  • 1907 - Friðrik 8. Danakonungur kom til Íslands og ferðaðist um Suðurland auk þess að fara til Ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar.
  • 1909 - Giftar konur fengu kosningarétt á Íslandi, svo og þær vinnukonur sem greiddu opinber gjöld.
  • 1912 - Taishō keisari tók við völdum í Japan.
  • 1927 - Fyrsta ólympíuskákmótinu lauk með sigri Ungverja.
  • 1930 - Fyrstu heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu lauk í Úrúgvæ.
  • 1932 - Sumarólympíuleikar voru settir í Los Angeles.
  • 1946 - Bifreið var ekið í fyrsta sinn úr Fljótum um Lágheiði og til Ólafsfjarðar og tók ferðin 6 klukkustundir.
  • 1950 - Skúli Guðmundsson setti Íslandsmet í hástökki sem stóð í 10 ár.
  • 1951 - Örn Clausen varð Norðurlandameistari í tugþraut, þá 22 ára gamall.
  • 1961 - Brú var vígð yfir Hornafjarðarfljót og var hún þá næstlengsta brú Íslands, 255 metrar.
  • 1964 - Íslensk málnefnd var stofnuð þegar Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, undirritaði reglugerð þess efnis.
  • 1971 - 162 létust í árekstri Boeing 727-farþegaþotu og herþotu í Japan.
  • 1977 - Stálvík í Garðabæ hleypti af stokkunum fyrsta skuttogara, sem smíðaður var á Íslandi, Stálvík, SI.
  • 1980 - Vanúatú fékk sjálfstæði frá Bretlandi og Frakklandi.
  • 1980 - Jerúsalemlögin voru samþykkt af ísraelska þinginu.
  • 1993 - Bæjarhátíðin Neistaflug var haldin í fyrsta sinn í Neskaupstað.
  • 1994 - Langferðabíll með 32 erlenda ferðamenn valt út af veginum fyrir ofan Bólstaðarhlíð í Austur-Húnavatnssýslu. Fjölmargir slösuðust og ellefu voru lagðir á sjúkrahús.
  • 1997 - 18 fórust í skriðu í Snowy Mountains í Ástralíu.
  • 1998 - Obuchi Keizo tók við af Ryūtarō Hashimoto sem forsætisráðherra Japans.
  • 1998 - Skemmtistaðurinn Tunglið við Lækjargötu gjöreyðilagðist í eldsvoða.
  • 2000 - Stafkirkja var vígð í Vestmannaeyjum. Hún var gjöf frá Norðmönnum.
  • 2002 - Eftir Enron- og Worldcom-hneykslin undirritaði George W. Bush Sarbanes-Oxley-lögin um ábyrgð stjórnarmanna og aukið gagnsæi.
  • 2003 - Síðasta Volkswagen bjallan var framleidd í Mexíkó. Þá höfðu 21.529.464 bílar af þessari gerð verið framleiddir frá 1938.
  • 2004 - Yfir 15 létust þegar sprenging varð í gasröri utan við belgíska bæinn Ath.
  • 2006 - Árásin á Qana: 54 almennir borgarar létust í loftárás Ísraelshers á bæinn Qana í suðurhluta Líbanon.
  • 2010 - Airblue flug 202 hrapaði við Islamabad í Pakistan. Allir 152 um borð fórust. Þetta var versta flugslys í sögu Pakistan.
  • 2012 - Rafmagnsleysið á Indlandi 2012: 620 milljónir manna voru án rafmagns í versta rafmagnsleysi sögunnar.
  • 2017 - Vladimír Pútín rak 755 bandaríska erindreka frá Rússlandi vegna viðskiptaþvingana.

Fædd

Dáin


Tags:

Gregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

EvrópaMyriam Spiteri DebonoMerik TadrosSovétríkinListi yfir íslensk skáld og rithöfundaÁstþór MagnússonLuigi FactaKristján 7.Ingólfur ArnarsonKári SölmundarsonHarvey WeinsteinStórborgarsvæðiBrúðkaupsafmælidzfvtForsetakosningar á ÍslandiEiríkur Ingi JóhannssonKatlaJóhannes Haukur JóhannessonRonja ræningjadóttirÖskjuhlíðTaugakerfiðSandgerðiHernám ÍslandsAladdín (kvikmynd frá 1992)GarðabærPragLokiListi yfir fylki og yfirráðasvæði Bandaríkjanna eftir stærðTómas A. TómassonListi yfir íslensk kvikmyndahúsListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðMoskvaJónas HallgrímssonGeysirBaldurKommúnismiIstanbúlMaðurÓlafur Grímur BjörnssonSeljalandsfossLánasjóður íslenskra námsmannaAndrés ÖndDanmörkListi yfir íslenska tónlistarmennIngvar E. SigurðssonGuðmundar- og GeirfinnsmáliðSkipNafnhátturHringtorgForsætisráðherra ÍslandsEgyptalandÍslenska sjónvarpsfélagiðKynþáttahaturBikarkeppni karla í knattspyrnuSönn íslensk sakamálÍbúar á ÍslandiKlóeðlaDropastrildiÓfærufossKristrún FrostadóttirHTMLLeikurDagur B. EggertssonJakob Frímann MagnússonSvissEnglar alheimsins (kvikmynd)Jón Sigurðsson (forseti)FramsóknarflokkurinnGrameðlaHljómarSauðárkrókurTröllaskagiBreiðdalsvík1. maíJón Baldvin HannibalssonGuðrún PétursdóttirCharles de Gaulle🡆 More