Sumarólympíuleikarnir 1932

Sumarólympíuleikarnir 1932 voru haldnir í Los Angeles í Bandaríkjunum á tímabilinu 30.

júlí">30. júlí til 14. ágúst. Umgjörð leikanna var með glæsilegasta móti, en vegna heimskreppunnar og hins langa ferðalags voru þátttakendur innan við helmingur þess sem verið hafði í Amsterdam 1928.

Sumarólympíuleikarnir 1932
Hlið Ólympíuleikvangsins í Los Angeles.

Aðdragandi og skipulag

Los Angeles hafði sóst eftir að halda Ólympíuleikana árin 1924 og 1928, en ekki fengið. Að þessu sinni sóttist engin önnur borg eftir leikunum.

Ráðist var í endurbætur á aðalíþróttaleikvangi borgarinnar, sem tekinn hafði verið í notkun árið 1923. Völlurinn var einnig notaður árið 1984 þegar Ólympíuleikarnir voru á ný haldnir í Los Angeles.

Ýmsar nýjungar voru kynntar til sögunnar á leikunum. Má þarf nefna að ljósmyndir voru teknar við marklínu í spretthlaupum til að skera úr um sigurvegara. Þá var bryddað upp á þeirri nýjung að láta verðlaunahafa stíga upp á misháa palla við verðlaunaafhendingu.

Keppnisgreinar

Keppt var í 117 greinum. Fjöldi keppna í einstökum íþróttaflokkum er gefinn upp í sviga.

Einstakir afreksmenn

Sumarólympíuleikarnir 1932 
Matti Järvinen sigraði auðveldlega í spjótkastskeppninni, sem var finnsk sérgrein.

Finninn Paavo Nurmi hugðist keppa á sínum fjórðu Ólympíuleikum, en var meinað að taka þátt á þeirri forsendu að hann hefði þegið greiðslu fyrir keppni á íþróttamóti í Þýskalandi. Eftir leikana var úrskurðinum breytt og Nurmi beðinn afsökunar.

Bandaríska frjálsíþróttakonan “Babe” Didrikson Zaharias vann til gullverðlauna í 80 metra grindahlaupi og spjótkasti og silfurverðlauna í hástökki. Eftir að frjálsíþróttaferlinum lauk, sneri hún sér að golfíþróttinni og keppti á móti karlatvinnumanna mörgum áratugum áður en aðrar konur náðu að leika það eftir. Árið 1999 valdi Associated Press hana íþróttakonu 20. aldar.

Volmari Iso-Hollo frá Finnlandi sigraði í 3.000 metra hindrunarhlaupi. Hlaupið varð reyndar 3.460 metrar, þar sem starfsmaðurinn sem átti að telja hringina gleymdi sér við að fylgjast með öðrum keppnisgreinum og sleppti út hring. Þau mistök kostuðu Iso-Hollo heimsmet.

Sumarólympíuleikarnir 1932 
Japaninn Chūhei Nambu sigraði í þrístökki á nýju heimsmeti, 15,72 metrum.

Stanisława Walasiewicz sigraði í 100 metra hlaupi. Hún keppti fyrir Pólland þrátt fyrir að búa og hafa alist upp í Bandaríkjunum. Eftir dauða hennar árið 1980 kom í ljós að hún hafði kynfæri bæði karls og konu og varð ekki ekki með fullu skorið úr um líffræðilegt kyn hennar. Ólymíuhreyfingin viðurkennir hana þó enn sem verðlaunahafa í kvennaflokki.

Finnar unnu þrefalt í spjótkasti. Gullið kom í hlut Matti Järvinen sem var langöflugasti spjótkastari heims um þær mundir. Á árunum 1930 til 1936 bætti hann heimsmetið í greininni tíu sinnum í röð. Finnsku keppendunum þótti lítið til andstæðinga sinna á leikunum koma og hirtu ekki einu sinni um að fara úr æfingagöllunum meðan á keppninni stóð.

Ellen Preis frá Austurríki vann til gullverðlauna í skylmingum, tvítug að aldri. Þetta voru hennar fyrstu leikar, en hún átti eftir að keppa á hverjum einustu leikum til 1956.

Japanir komu mjög á óvart sundkeppni karla, þar sem þeir hlutu fimm af sex gullverðlaunum og alls ellefu af verðlaunapeningunum átján.

Helene Madison frá Bandaríkjunum vann til þriggja gullverðlauna í sundi. Hún var um þetta leyti langöflugasta sundkona heims og hafði sett sextán heimsmet á jafnmörgum mánuðum á tímabilinu 1930-31. Eftir Los Angeles-leikanna lék Madison í kvikmynd þar sem hún sýndi sundhæfileika sína, með þeim afleiðingum að bandaríska Ólympíunefndin leit á hana sem atvinnumann og hleypti henni ekki á Berlínar-leikana 1936.

Þátttaka Íslendinga á leikunum

Íþróttasamband Íslands skipaði fulltrúa í Ólympíunefnd á árinu 1931 til að kanna möguleikann á þátttöku í leikunum. Niðurstaðan varð sú að ferðalag til Los Angeles yrði alltof dýrt og kostnaðarsamt svo allar slíkar hugmyndir voru slegnar út af borðinu.

Verðlaunaskipting eftir löndum

Nr. Land Gull Silfur Brons Samtals
1 Sumarólympíuleikarnir 1932  Bandaríkin 41 32 30 103
2 Sumarólympíuleikarnir 1932  Ítalía 12 12 12 36
3 Sumarólympíuleikarnir 1932  Frakkland 10 5 4 19
4 Sumarólympíuleikarnir 1932  Svíþjóð 9 5 9 23
5 Sumarólympíuleikarnir 1932  Japan 7 7 4 18
6 Sumarólympíuleikarnir 1932  Ungverjaland 6 4 5 15
7 Sumarólympíuleikarnir 1932  Finnland 5 8 12 25
8 Sumarólympíuleikarnir 1932  Bretland 4 7 5 16
9 Sumarólympíuleikarnir 1932  Þýskaland 3 12 5 20
10 Sumarólympíuleikarnir 1932  Ástralía 3 1 1 5
11 Sumarólympíuleikarnir 1932  Argentína 3 1 0 4
12 Sumarólympíuleikarnir 1932  Kanada 2 5 8 15
13 Sumarólympíuleikarnir 1932  Holland 2 5 0 7
14 Sumarólympíuleikarnir 1932  Pólland 2 1 4 7
15 Sumarólympíuleikarnir 1932  Suður-Afríka 2 0 3 5
16 Sumarólympíuleikarnir 1932  Írland 2 0 0 2
17 Sumarólympíuleikarnir 1932  Tékkóslóvakía 1 2 1 4
18 Sumarólympíuleikarnir 1932  Austurríki 1 1 3 5
19 Sumarólympíuleikarnir 1932  Indland 1 0 0 1
20 Sumarólympíuleikarnir 1932  Danmörk 0 3 3 6
21 Sumarólympíuleikarnir 1932  Mexíkó 0 2 0 2
Sumarólympíuleikarnir 1932  Lettland 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1932  Nýja Sjáland 0 1 0 1
Sumarólympíuleikarnir 1932  Sviss 0 1 0 1
25 Sumarólympíuleikarnir 1932  Filippseyjar 0 0 3 3
26 Sumarólympíuleikarnir 1932  Spánn 0 0 1 1
Sumarólympíuleikarnir 1932  Úrúgvæ 0 0 1 1
Alls 116 116 114 346

Tags:

Sumarólympíuleikarnir 1932 Aðdragandi og skipulagSumarólympíuleikarnir 1932 KeppnisgreinarSumarólympíuleikarnir 1932 Einstakir afreksmennSumarólympíuleikarnir 1932 Þátttaka Íslendinga á leikunumSumarólympíuleikarnir 1932 Verðlaunaskipting eftir löndumSumarólympíuleikarnir 193214. ágúst30. júlíBandaríkinKreppan miklaLos AngelesSumarólympíuleikarnir 1928

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Dísella LárusdóttirMarokkóSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024MassachusettsE-efniPylsaListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiEfnafræðiRisaeðlurReykjavíkÁsgeir ÁsgeirssonEgill Skalla-GrímssonÞykkvibærÍbúar á ÍslandiListi yfir forsætisráðherra ÍslandsBandaríkinMarie AntoinetteFlóSvíþjóðForseti ÍslandsHafnarfjörðurPétur Einarsson (flugmálastjóri)MaríuerlaTaívanOkMaðurg5c8ySjónvarpiðRagnhildur GísladóttirSamningurJakobsstigarSmáralindÞýskalandMynsturLandsbankinnÁrbærKrónan (verslun)Snorra-EddaHerðubreiðAlþingiskosningar 2009ISO 8601SólstöðurKleppsspítaliEgilsstaðirJakob 2. EnglandskonungurBleikjaBoðorðin tíuKnattspyrnufélagið VíkingurListi yfir íslensk mannanöfnÝlirÁgústa Eva ErlendsdóttirÍslenska kvótakerfiðMoskvaBaldur ÞórhallssonTímabeltiPrag1918GaldurNáttúruvalBessastaðirMosfellsbærSeglskútaListi yfir íslensk póstnúmerFljótshlíðPálmi GunnarssonForsetakosningar á Íslandi 2012Java (forritunarmál)Skúli MagnússonLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisVilhjálmur Vilhjálmsson (söngvari)BárðarbungaBenedikt Kristján MewesPétur Einarsson (f. 1940)ISBNHalla TómasdóttirSagan af DimmalimmOrkumálastjóri🡆 More