Hjólreiðar

Hjólreiðar eru notkun reiðhjóla til samgangna, ferðalaga, afþreyingar eða íþróttaiðkunar.

Reiðhjól komu fyrst fram á sjónarsviðið á 19. öld. Talið er að yfir milljarður reiðhjóla séu í notkun í heiminum, sem er rúmlega tvöfalt meira en fjöldi bifreiða. Reiðhjól eru helsti samgöngumáti fólks víða um heim.

Hjólreiðar
Keðjuverkun (e: Critical Mass) er hjólreiðaviðburður sem fer fram í borgum um allan heim.

Reiðhjól eru almennt talinn mjög orkunýtinn samgöngumáti á stuttum og meðallöngum leiðum. Hjólreiðar hafa þannig ýmsa kosti samaborið við vélknúin ökutæki, sérstaklega í og við þéttbýli, eins og aukna hreyfingu hjólreiðafólks, minni notkun kolefniseldsneytis og orku almennt, og minni mengun. Þau taka minna pláss en bifreiðar, bæði á leiðinni, ekki síst þegar talin eru helgunarsvæði stofnbrauta, og á upphafs- og áfangastað í formi bílastæða. Þau draga þannig úr álagi á umferð og umferðarmannvirki. Ókostir hjólreiða eru einkum þeir að hjólreiðafólk er berskjaldaðra í árekstri og gagnvart veðri, auk þess sem hjólreiðar á lengri leiðum eru aðallega á færi fólks í sæmilegri líkamsþjálfun. Þá er erfiðara að ferja stærri hluti á reiðhjóli, en í löndum þar sem mikið er hjólað sést fólk með ísskápa og stök húsgögn á reiðhjólum eða í hjólakerrum.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur smíðað reiknilíkan sem gerir borgaryfirvöldum kleift að reikna út þann sparnað sem hlýst af því að fleiri stunda hjólreiðar til samgangna. Reiknilíkanið tekur einungis á fækkun ótímabærra dauðsfalla og reiknar út frá því peningagildi hvers mannárs sem ekki tapast. Umhverfisávinningur, fækkun veikindadaga og annar sparnaður er því ekki talinn með í líkaninu. Líkanið skilar þeim niðurstöðum að núverandi hjólreiðar á Íslandi koma í veg fyrir nokkur ótímabær dauðsföll árlega. Líkanið byggir á viðamiklum rannsóknum og tekur mið af samanburði á öllum dánarorsökum hjólreiðafólks (enska: all-cause mortality) og ber saman við fólk sem hjólar ekki. Það tekur því líka tillit til hættu vegna umferðarslysa.

Hjólreiðar hafa verið ólympíugrein frá upphafi og er keppt í fjórum greinum: götuhjólreiðum, brautarkeppni, fjallahjólreiðum og BMX. Alþjóða hjólreiðasambandið hefur umsjón með alþjóðlegum hjólreiðakeppnum.

Saga hjólreiða til samgangna á Íslandi

Reiðhjól voru notuð á Íslandi upp úr aldamótunum 1900. Myndir í skjalasöfnum, blaðaauglýsingar og frásagnir bera því vitni. Á áratugunum eftir stríð jókst kaupmáttur og fólksbílar litu út sem nútímaleg samgöngulausn. Í kjölfar hippatímabíls, olíukreppu og umhverfisvakningar komu fram áætlanir um að byggja sérstakt net stíga til hjólreiða. Ítrekað voru lögð fram frumvörp á Alþingi um að koma stígum í vegalög og fjármagna þannig gerð þeirra. Það var svo árið 2007 sem lagabreyting gerði ríkinu kleift að setja fé í stígagerð til hjólreiða og göngu. Fram að því var bara heimilt að setja fé í vegagerð og reiðstíga. Eftir Bankahrunið árið 2008 var settur aukinn kraftur í gerð stíga og í fyrsta skipti gerðir sérstakir hjólastígar í Reykjavík.

Tilvísanir

Hjólreiðar   Þessi íþróttagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Hjólreiðar   Þessi samgöngugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

AfþreyingReiðhjólSamgöngurÍþrótt

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Listi yfir morð á Íslandi frá 2000Ungfrú ÍslandGarðar Thor CortesThe Moody BluesVopnafjarðarhreppurFimleikafélag HafnarfjarðarEllen KristjánsdóttirPáskarJohn F. KennedyDómkirkjan í ReykjavíkIkíngutSamningurHeiðlóaHarpa (mánuður)SeljalandsfossInnflytjendur á ÍslandiViðtengingarhátturDanmörkB-vítamínÍslandsbankiLjóðstafirRaufarhöfn2024Ísland Got TalentMöðruvellir (Eyjafjarðarsveit)ÓslóKorpúlfsstaðirÞingvallavatnFullveldiEinar JónssonFiskurSaga ÍslandsMynsturSkordýrKeflavík, íþrótta- og ungmennafélagLokiBaldur ÞórhallssonGuðrún AspelundSöngkeppni framhaldsskólannaHerðubreiðHljómsveitin Ljósbrá (plata)IstanbúlKartaflaKári StefánssonSveppirHringtorgSjómannadagurinnHéðinn SteingrímssonMaríuhöfn (Hálsnesi)KírúndíÍslenskt mannanafnVerg landsframleiðslaStöng (bær)Pálmi GunnarssonBandaríkinTikTokSamfylkinginHektariNorður-ÍrlandListi yfir landsnúmerHermann HreiðarssonHrafna-Flóki VilgerðarsonSæmundur fróði SigfússonSíliAlþingiskosningar 2021Stefán MániÓðinnInnrás Rússa í Úkraínu 2022–ÍtalíaLogi Eldon GeirssonPúðursykurSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirGarðabærKóngsbænadagur🡆 More