Vanúatú

Lýðveldið Vanúatú (bislama Ripablik blong Vanuatu; enska Republic of Vanuatu; franska République de Vanuatu) er eyríki í Suður-Kyrrahafi, 1.750 km austan við Ástralíu og 500 km norðaustan við Nýju-Kaledóníu, vestan við Fídjieyjar og sunnan við Salómonseyjar.

Eyjaklasinn telur 83 eldfjallaeyjar.

Ripablik blong Vanuatu
Republic of Vanuatu
République du Vanuatu
Fáni Vanúatú Skjaldarmerki Vanúatú
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
Long God yumi stanap (bislama)
Stöndum með guði
Þjóðsöngur:
Yumi, Yumi, Yumi
Staðsetning Vanúatú
Höfuðborg Port Vila
Opinbert tungumál bislama, enska og franska
Stjórnarfar Lýðveldi

Forseti Nikenike Vurobaravu
Forsætisráðherra Ishmael Kalsakau
Sjálfstæði
 • frá Bretlandi og Frakklandi 30. júlí 1980 
Flatarmál
 • Samtals
157. sæti
12.189 km²
Mannfjöldi
 • Samtals (2020)
 • Þéttleiki byggðar
181. sæti
307.815
19,7/km²
VLF (KMJ) áætl. 2023
 • Samtals 1,064 millj. dala (189. sæti)
 • Á mann 3.001 dalir (169. sæti)
VÞL (2021) Vanúatú 0.607 (142. sæti)
Gjaldmiðill vatú (VUV)
Tímabelti UTC+11
Þjóðarlén .vu
Landsnúmer +678

Upphaflega voru eyjarnar byggðar Melanesum. Fyrstu Evrópubúarnir sem komu þangað var spænskur leiðangur undir stjórn Portúgalans Fernandes de Queirós árið 1606. Queirós gerði tilkall til eyjanna fyrir hönd Spánarkonungs sem hluta af Spænsku Austur-Indíum, og nefndi stærstu eyjuna La Austrialia del Espíritu Santo. Á 18. öld hófu Evrópubúar að setjast þar að og 1880 gerðu bæði Bretland og Frakkland tilkall til yfirráða yfir hlutum eyjanna. 1906 settu löndin þar upp sameiginlegt yfirráðasvæði sem hét Nýju-Suðureyjar (New Hebrides). Á 8. áratugnum jókst þrýstingur á sjálfstæði sem fékkst árið 1980.

Frá sjálfstæði hefur Vanúatú gerst aðili að Sameinuðu þjóðunum, Breska samveldinu, Samtökum frönskumælandi ríkja og Kyrrahafseyjaráðinu.

Heiti

Nafn Vanúatú kemur úr orðinu vanua („land“ eða „heimili“) sem kemur fyrir í nokkrum ástrónesískum málum, ásamt orðinu tu sem merkir „standa“. Saman eiga orðin að tjá sjálfstæði landsins.

Landfræði

Vanúatú 
Kort af Vanúatú með höfuðborgina, Port Vila, á þriðju stærstu eyjunni.

Vanúatú er Y-laga eyjaklasi með um 83 tiltölulega litlar eldfjallaeyjar (65 byggðar) þar sem um 1300 km skilja milli nyrstu og syðstu eyjanna. Tvær af þessum eyjum (Matthew og Hunter-eyjar) eru undir stjórn og hluti af tilkalli Frakklands sem hlutar af franska samfélaginu á Nýju-Kaledóníu. Landið liggur milli 13. og 21. breiddargráðu suður og 166. og 171. lengdargráðu austur.

Þær fjórtán eyjar Vanúatú sem eru stærri en 100 ferkílómetrar eru, frá þeirri stærstu til þeirrar minnstu: Espiritu Santo, Malakula, Efate, Erromango, Ambrym, Tanna, Hvítasunnueyja, Epi, Ambae eða Aoba, Gaua, Vanua Lava, Maewo, Malo og Aneityum eða Anatom. Stærstu bæirnir eru höfuðborgin Port Vila á Efate, og Luganville á Espiritu Santo. Hæsti tindur Vanúatú er Tabwemasana-fjall, 1879 metrar yfir sjávarmáli, á eyjunni Espiritu Santo.

Vanúatú er um það bil 12.274 km² að stærð, en þar af er þurrlendi mjög lítið (um það bil 4.700 km²). Flestar eyjarnar eru brattar með óstöðugum jarðvegi og lítið af ferskvatni. Samkvæmt mati frá árinu 2005 eru aðeins 9% af landinu ræktanleg (7% landbúnaðarland og 2% ræktanlegt land). Ströndin er klettótt með rifjum og miklu dýpi þar sem ekkert landgrunn liggur undir eyjunum.

Á Vanúatú eru nokkur virk eldfjöll, eins og Lopevi, Yasur-fjall, og nokkur neðansjávareldfjöll. Eldvirkni er algeng og stöðug hætta á stórum eldgosum. Árið 2008 átti sér stað stórt neðansjávareldgos sem olli engu tjóni, og annað stórt eldgos varð árið 1945. Vanúatú er skilgreint sem sérstakt visthérað: Vanúatúregnskógar. Eyjarnar teljast til Ástralasíu, ásamt Nýju-Kaledóníu, Salómonseyjum, Ástralíu, Nýju-Gíneu og Nýja-Sjálandi.

Fjölgun íbúa á Vanúatú (áætluð 2,4% á ári árið 2008) setur aukinn þrýsting á takmörkuð úrræði til landnotkunar fyrir landbúnað, beit og veiðar. 90% af heimilum á Vanúatú stunda fiskveiðar og borða fisk, sem hefur valdið ofveiði í nágrenni við ströndina. Þótt eyjarnar séu skógi vaxnar eru merki um skógeyðingu. Þar hefur verið stundað skógarhögg, sérstaklega á verðmætum tegundum, auk sviðuræktunar til að búa til kókoshnetuplantekrur og nautgripabúgarða, þar sem nú sjást merki um jarðvegseyðingu og skriðuföll.

Á mörgum vatnasviðum ofar í landinu er skógum eytt og því dregur úr myndun ferskvatns. Meðhöndlun úrgangs, auk mengunar vatns og lofts, eru orðin vandamál í kringum þéttbýli. Takmörkuð störf í iðnaði og lítill aðgangur að mörkuðum hafa fest íbúa í sveitum í sjálfsþurftarbúskap sem setur mikið álag á vistkerfið. Árið 2019 var heilleikavísitala skóga á Vanúatú metin 8,83/10, sem setur landið í 18. sæti af 172.

Stjórnmál

Stjórnsýslueiningar

Vanúatú 
Héruð Vanúatú.

Frá 1994 hefur Vanúatú verið skipt í sex héruð. Ensku nöfnin á héruðunum eru mynduð úr fyrstu stöfunum í heitum eyjanna sem mynda þau:

  • Malampa (Malakula, Ambrym, Paama)
  • Penama (Pentecost, Ambae, Maewo)
  • Sanma (Santo, Malo)
  • Shefa (Shepherds-eyjar, Efate)
  • Tafea (Tanna, Aniwa, Futuna, Erromango, Aneityum)
  • Torba (Torres-eyjar, Banks-eyjar)

Héruðin eru sjálfstjórnareiningar með héraðsráð sem kosið er í í almennum kosningum. Héraðsráðin innheimta skatta og setja lög um málefni héraðanna, fjárhag þeirra og grunnþjónustu. Fyrir héraðsráðunum fara héraðsforsetar sem kosnir eru af héraðsráðinu og hafa sér til aðstoðar héraðsritara sem skipaður er af nefnd um opinbera þjónustu.

Framkvæmdavaldið í héraði er í höndum héraðsstjórnar sem héraðsformaður fer fyrir, en hann er skipaður af forsætisráðherra landsins samkvæmt ráði sveitarstjórnarráðherra. Héraðsstjórnin er venjulega mynduð af þeim flokki sem hefur meirihluta í héraðsráðinu. Staðbundið höfðingjaráð hefur ráðgefandi hlutverk gagnvart héraðsstjórninni í málefnum sem varða menningu og tungumál. Héraðsforseti situr í kjörmannaráði sem kýs forseta Vanúatú.

Héruðin skiptast í sveitarfélög (oftast eitt á hverri eyju) sem er stjórnað af sveitarstjórn og sveitarstjóra sem kosinn er af stjórn.

Íbúar

Tungumál

Bislama er þjóðtunga Vanúatú, en enska og franska eru líka opinber tungumál landsins og þau mál sem helst eru notuð í menntakerfinu. Hvort enska eða franska eru helst notuð fer eftir pólitískum átakalínum.

Bislama er kreólamál sem varð til í þéttbýli. Það byggist á málfræði og hljóðkerfisfræði úr melanesískum málum með orðaforða sem er að miklu leytu úr ensku. Bislama er helsta samskiptamál eyjaklasans og meirihluti íbúa lærir það sem annað mál.

Auk þessara mála eru 113 frumbyggjamál töluð á eyjunum. Öll nema þrjú eru suðureyjaálfumál, en hin þrjú eru pólýnesísk mál. Vanúatú er með flest tungumál á íbúa af öllum löndum heims, með aðeins 2000 mælendur að meðaltali á hvert tungumál. Öll málin, nema bislama, tilheyra eyjaálfumálagrein ástrónesískra mála.

Á síðustu árum hefur notkun frumbyggjamála látið undan síga fyrir bislama. Notkun þeirra minnkaði úr 73,1% 1999 í 63,2% 2009.

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar

Tags:

Vanúatú HeitiVanúatú LandfræðiVanúatú StjórnmálVanúatú ÍbúarVanúatú TilvísanirVanúatú HeimildirVanúatú TenglarVanúatúEnskaEyríkiFranskaFídjieyjarKyrrahafNýja-KaledóníaSalómonseyjarÁstralía

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Jóhannes Karl GuðjónssonSvartidauðiÍslenski þjóðbúningurinnListi yfir eldfjöll ÍslandsCésar AzpilicuetaIngólfur ÞórarinssonHvolpasveitinEgill ÓlafssonSauðféFiann PaulÚrvalsdeild karla í körfuknattleikGoogle TranslateBolungarvíkHjaltlandseyjarEgils sagaRagnar JónassonBrúðkaupsafmæliEldhúsStuðmennÓeirðirnar á Austurvelli 1949Hryðjuverkaárásirnar í Brussel í mars 2016SteinbíturÍslensk sveitarfélög eftir sveitarfélagsnúmerumBaldur ÞórhallssonÍslandsklukkanKatlaH.C. AndersenRúnar Alex RúnarssonÞorskastríðinElly Vilhjálms1874Árni Pétur GuðjónssonPorterölSvaðilfariMilljarðurAretha Franklin20. marsÍslenski þjóðhátíðardagurinnSamfylkinginJón GnarrFallbeygingAlþingiskosningarMarokkóÍslenski fáninnVerðbréfaeftirlit BandaríkjannaBorgarnesGullUmmálF-15 EagleAlbert GuðmundssonCovid-19 faraldurinnAskja (fjall)Ólafur Ólafsson (kaupsýslumaður)Eyjólfur SverrissonHálseitlarPóllandRéttindabyltinginBúkollaListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiRamadanÍrskaFermetriSauðárkrókurRyðfrítt stálLögbundnir frídagar á ÍslandiGrunnskólar á ÍslandiBarselónaJón Daði BöðvarssonListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðKjartan Ólafsson (tónlistarmaður)Leitin (eldstöð)Joe BidenAgnes MagnúsdóttirMyndrænt viðmótNicolás MaduroSveitarfélagið HornafjörðurGrænland🡆 More