17. Júlí: Dagsetning

17.

JúnJúlíÁgú
SuÞrMiFiLa
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
2024
Allir dagar

júlí er 198. dagur ársins (199. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 167 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 330 f.Kr. - Daríus 3. var myrtur af Bessusi landstjóra í Baktríu.
  • 561 - Jóhannes 3. varð páfi.
  • 1086 - Knútur Danakonungur, Benedikt bróðir hans og fleiri voru myrtir í dómkirkjunni í Óðinsvéum eftir að kirkjugrið höfðu verið rofin.
  • 1203 - Krossfararriddarar úr Fjórðu krossferðinni réðust á Konstantínópel, lögðu borgina undir sig og rændu og rupluðu. Alexíus 3. Angelus Býsanskeisari flúði borgina og fór í útlegð.
  • 1212 - Orrustan við Navas de Tolosa. Kristnu konungsríkin á Spáni unnu öruggan sigur á Almóhödum.
  • 1310 - Friðarsamningar voru undirritaðir í Helsingjaborg milli Svía, Dana og Norðmanna.
  • 1328 - Davíð, krónprins Skotlands (síðar Davíð 2.) giftist Jóhönnu, dóttur Játvarðs 2. Englandskonungs. Hann var þá fjögurra ára en brúðurin nýorðin sjö ára.
  • 1385 - Karl 6. Frakkakonungur gekk að eiga Ísabellu af Bæjaralandi.
  • 1429 - Karl 7. var krýndur konungur Frakklands í Reims.
  • 1453 - Hundrað ára stríðinu lauk með sigri Frakka í orrustunni við Castillon.
  • 1505 - Norska ríkisráðið dæmdi Kai von Ahlefeldt frá hirðstjórn á Íslandi.
  • 1601 - Elísabet, dóttir Tycho Brahe, giftist aðalsmanninum Franz Tengnagel í Prag.
  • 1676 - Eiturmálið komst í hámæli í Frakklandi þegar Marie-Madeleine-Marguerite d'Aubray var tekin af lífi fyrir að hafa myrt föður sinn og bræður með eitri.
  • 1683 - Orrustunni um Penghu lauk á Taívan.
  • 1695 - Skotlandsbanki var stofnaður.
  • 1743 - Sunnefumál: Sunnefa Jónsdóttir lýsti því yfir á Alþingi að Hans Wium sýslumaður væri faðir að barninu sem hún ól á meðan hún var fangi hans, en ekki Jón bróðir hennar.
  • 1751 - Innréttingarnar, hlutafélag um eflingu iðnaðar á Íslandi, voru stofnaðar á Þingvöllum að frumkvæði Skúla Magnússonar landfógeta.
  • 1761 - Fyrsti áfangi Bridgewater-skurðarins var opnaður í Bretlandi.
  • 1762 - Katrín 2. varð einvaldur í Rússlandi eftir að Pétur 3. var myrtur.
  • 1897 - Gullæðið í Klondike hófst.
  • 1918 - Nikulás 2. Rússakeisari, kona hans og börn ásamt þjónustufólki tekin af lífi í Ekaterínburg í Rússlandi.
  • 1930 - Þýska loftskipið Graf Zeppelin kom til Íslands og flaug yfir alla suðurströnd landsins. Það kom aftur ári síðar.
  • 1932 - Á Skólavörðuholti í Reykjavík var afhjúpuð stytta af Leifi heppna Eiríkssyni. Styttan var gjöf Bandaríkjamanna til Íslendinga í tilefni af þúsund ára afmæli Alþingis árið 1930.
  • 1936 - Spænska borgarastyrjöldin hófst.
  • 1942 - Orrustan um Stalingrad hófst.
  • 1945 - Potsdam-ráðstefnan hófst. Þar hitust Harry S Truman Bandaríkjaforseti, Jósef Stalín, leiðtogi Sovétríkjanna og Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands. Fundur þeirra stóð til 2. ágúst.
  • 1946 - Fyrsti landsleikur Íslands í knattspyrnu var leikinn í Reykjavík og voru Danir andstæðingarnir. Leiknum lauk með sigri Dana, 3:0.
  • 1963 - Minjasafnið á Akureyri héraðs- og byggðasafn Eyfirðinga, opnaði formlega við Aðalstræti 58 á Akureyri
  • 1969 - Bing Crosby leikari og söngvari kom til Íslands og dvaldist í nokkra daga við laxveiðar.
  • 1971 - Ítalía og Austurríki gerðu með sér samning um Suður-Týról.
  • 1975 - Mannað Appollógeimfar tengdist mönnuðu Sojúsgeimfari á braut um jörðu.
  • 1976 - Sumarólympíuleikar voru settir í Montréal.
  • 1979 - Einræðisherrann Anastasio Somoza Debayle í Níkaragva sagði af sér og flúði til Miami.
  • 1980 - Saddam Hussein var valinn forseti Íraks.
  • 1981 - Tvær göngubrýr á Hyatt Regency-hótelinu í Kansas City hrundu með þeim afleiðingum að 114 manns létust.
  • 1981 - Ísraelsher gerði sprengjuárás á byggingar í Beirút með þeim afleiðingum að 300 óbreyttir borgarar létust. Aðgerðin var fordæmd um allan heim.
  • 1987 - Dow Jones-vísitalan náði 2.500 stigum í fyrsta sinn við lokun markaða.
  • 1989 - Langferðabíll með 27 farþega hrapaði niður í 40 metra djúpt gil er hann fór út af veginum á Möðrudalsöræfum. Farþegarnir voru norrænir jarðfræðingar og sluppu flestir þeirra lítt meiddir.
  • 1989 - Bandaríska sprengjuflugvélin Northrop Grumman B-2 Spirit flaug jómfrúarflug sitt.
  • 1989 - Austurríki sótti um aðild að Evrópubandalaginu.
  • 1991 - Arnór Guðjohnsen jafnaði afrek Ríkharðs Jónssonar með því að skora fjögur mörk í landsleik í knattspyrnu gegn Tyrkjum.
  • 1992 - Slóvakíska þingið lýsti yfir sjálfstæði Slóvakíu.
  • 1994 - Brasilía sigraði Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla með 3-2 sigri á Ítalíu eftir vítaspyrnukeppni.
  • 1995 - Samsetta Nasdaq-vísitalan lokaði í yfir 1000 stigum í fyrsta sinn.
  • 1996 - Samband portúgölskumælandi landa var stofnað.
  • 1996 - TWA flug 800 sprakk undan strönd Long Island í Bandaríkjunum. Allir um borð, 230 manns, fórust.
  • 1998 - Bandaríska kvikmyndin Það er eitthvað við Mary var frumsýnd.
  • 1998 - 120 lönd samþykktu stofnun Alþjóðlega sakamáladómstólsins.
  • 1998 - Jarðneskum leifum Nikulásar 2. Rússakeisara og fjölskyldu hans var komið fyrir í kapellu í Sankti Pétursborg.
  • 1998 - Jarðskjálfti reið yfir Papúu Nýju-Gíneu með þeim afleiðingum að yfir 2000 létust.
  • 1998 - Blóðbaðið í Klečka hófst.
  • 2000 - Bashar al-Assad varð forseti Sýrlands.
  • 2002 - Apple gaf út safn netþjónshugbúnaðar, .Mac.
  • 2006 - Sjávarflóð í kjölfar neðansjávarjarðskjálfta við eyjuna Jövu í Indónesíu olli dauða 630 manns.
  • 2007 - Á alþjóðaflugvellinum Congonhas-São Paulo í Brasilíu rann farþegaþota út af flugbraut, yfir stóra umferðaræð á háannatíma og inn í vöruhús, þar sem hún sprakk. Allir um borð og nokkrir aðrir létust, samtals yfir 190 manns.
  • 2007 - Öflugur jarðskjálfti í Niigata í Japan olli bruna í stærsta kjarnorkuveri heims, Kashiwazaki-Kariwa-kjarnorkuverinu.
  • 2009 - 9 létu lífið í tveimur sjálfsmorðssprengjuárásum í Jakarta í Indónesíu.

Fædd

Dáin

Tags:

Gregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Heyr, himna smiðurBrúðkaupsafmæliTómas A. TómassonÆgishjálmurHljómsveitin Ljósbrá (plata)SMART-reglanGunnar Smári EgilssonPersóna (málfræði)Baldur ÞórhallssonPétur J. Thorsteinsson (sendiherra)UmmálHarry S. TrumanSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022París2020El NiñoBrennu-Njáls saga1974John F. KennedySaga ÍslandsÁslaug Arna SigurbjörnsdóttirVladímír PútínPétur Einarsson (f. 1940)Ellen KristjánsdóttirSoffía JakobsdóttirMerik TadrosHéðinn SteingrímssonListi yfir persónur í NjáluEfnafræðiHjálparsögnMosfellsbærOkjökullNeskaupstaðurVopnafjarðarhreppurFyrsti maíSólmánuðurEigindlegar rannsóknirTyrkjarániðFáni SvartfjallalandsGarðabærKötturLaxdæla sagaSvartfuglarUngfrú ÍslandListi yfir páfaKrónan (verslun)Ásdís Rán GunnarsdóttirListi yfir lönd eftir mannfjöldaLögbundnir frídagar á ÍslandiForsetningFáskrúðsfjörðurBretlandTyrklandÍslendingasögurBesta deild karlaHæstiréttur ÍslandsElísabet JökulsdóttirSeinni heimsstyrjöldinKári SölmundarsonAlaskaLýðræðiErpur EyvindarsonIkíngutSvíþjóðKríaÞjórsáListi yfir íslenskar kvikmyndirHringtorgHljómarFæreyjarGuðrún AspelundÍslenska sjónvarpsfélagiðC++EldurValdimarSagan af Dimmalimm🡆 More