António Costa: Forsætisráðherra Portúgals

António Luis Santos da Costa (f.

17. júlí 1961) er portúgalskur stjórnmálamaður úr Sósíalistaflokknum sem er fyrrverandi forsætisráðherra Portúgals.

António Costa
António Costa: Forsætisráðherra Portúgals
Costa árið 2017.
Forsætisráðherra Portúgals
Í embætti
26. nóvember 2015 – 2. apríl 2024
ForsetiAníbal Cavaco Silva
Marcelo Rebelo de Sousa
ForveriPedro Passos Coelho
EftirmaðurLuís Montenegro
Persónulegar upplýsingar
Fæddur17. júlí 1961 (1961-07-17) (62 ára)
Lissabon, Portúgal
ÞjóðerniPortúgalskur
StjórnmálaflokkurSósíalistaflokkurinn
MakiFernanda Tadeu (g. 1987)
Börn2
HáskóliHáskólinn í Lissabon
UndirskriftAntónio Costa: Forsætisráðherra Portúgals

Æviágrip

Costa var kjörinn á héraðsþing Lissabon árið 1982 og gekk í Sósíalistaflokkinn árið 1986. Hann var kjörinn á portúgalska þingið árið 1991. Costa gekk fyrst í ríkisstjórn árið 1995 og varð þingmálaráðherra í stjórn António Guterres árið 1997. Hann varð síðan dómsmálaráðherra Portúgals árið 1999 og gegndi því embætti til ársins 2002, en þá töpuðu Sósíalistar þingkosningum og lentu í stjórnarandstöðu. Árið 2004 var Costa kjörinn á Evrópuþingið fyrir Flokk evrópskra sósíalista.

Þegar Sósíalistar komust aftur til valda í Portúgal árið 2005 varð Costa innanríkisráðherra. Hann sagði af sér árið 2007 svo hann gæti gefið kost á sér í borgarstjórnarkosningunum í Lissabon. Costa vann kosninguna og varð borgarstjóri höfuðborgarinnar frá og með 1. ágúst 2007. Hann vann endurkjör í borgarstjóraembættið árin 2009 og 2013, með auknum meirihluta í bæði skiptin.

Eftir lélegt fylgi Sósíalista í Evrópuþingskosningum ársins 2014 bauð Costa sig fram á móti sitjandi aðalritara Sósíalistaflokksins, António José Seguro, sem forsætisráðherraefni flokksins í næstu þingkosningum. Hann vann sigur með 68% atkvæða og Seguro sagði í kjölfarið af sér sem flokksleiðtogi. Costa var kjörinn til að taka við af honum með 96% atkvæða.

Costa sagði af sér sem borgarstjóri Lissabon árið 2015 til þess að geta einbeitt sér að því að leiða kosningabaráttu Sósíalistaflokksins fyrir þingkosningar sama ár. Í kosningunum lofaði Costa að draga úr aðhaldi í ríkisútgjöldum, fella niður óvinsælan virðisaukaskatt á veitingastaði og endurreisa nokkur gömul fríðindi fyrir opinbera starfsmenn.

Í kosningunum lentu Sósíalistar í öðru sæti og fengu 32,3% atkvæða. Sósíalistum tókst að mynda minnihlutastjórn með stuðningi portúgalska Kommúnistaflokksins og Græningjaflokksins. António Costa var því útnefndur forsætisráðherra Portúgals þann 26. nóvember 2015.

Stuðningur Portúgala við Sósíalistaflokkinn jókst verulega á stjórnartíð Costa. Sósíalistarnir unnu mestu kosningasigra sögu sinnar í héraðskosningum árið 2017 og komust í 158 sveitarstjórnir af 308. Í þingkosningum árið 2019 unnu Sósíalistar sigur og urðu stærsti flokkurinn á portúgalska þinginu með um 36,65% atkvæða og 106 þingmenn.

Í október 2021 höfnuðu vinstriflokkar á portúgalska þinginu fjárlagafrumvarpi stjórnar Costa sem leiddi til þess að Marcelo Rebelo de Sousa forseti rauf þing og kallaði til nýrra þingkosninga í janúar næsta ár. Þegar kosningarnar voru haldnar þann 30. janúar 2022 unnu Sósíalistar óvæntan stórsigur og náðu hreinum meirihluta á portúgalska þinginu.

Costa sagði af sér þann 7. nóvember 2023 vegna lögreglurannsóknar á spillingu innan stjórnar hans sem tengdist samningum um vinnslu liþíums í norðurhluta Portúgals, byggingu vetnisframleiðslustöðvar og gagnavers í hafnarbænum Sines. Rannsóknin hafði leitt til handtöku starfsmannastjóra Costa, Vítors Escária, og fjögurra annarra manna, fyrr sama dag. Costa sagðist sjálfur ekki vera grunaður um að tengjast málinu.

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Pedro Passos Coelho
Forsætisráðherra Portúgals
(26. nóvember 20152. apríl 2024)
Eftirmaður:
Luís Montenegro


Tags:

Portúgal

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

AusturríkiHættir sagna í íslensku1986TröllRamadanAmazon KindleAlinKlórítÞingvallavatnKreppan miklaForsætisráðherra ÍsraelsGuðmundur Franklín JónssonHöskuldur Dala-KollssonBandamenn (seinni heimsstyrjöldin)Lögbundnir frídagar á ÍslandiListi yfir ráðuneyti ÍslandsSúðavíkurhreppurÞorramaturDanmörkPaul McCartneyÍslendingasögurBjörg Caritas ÞorlákssonÍslandSvampur SveinssonVarmafræðiLómagnúpurLandnámabók1973MongólíaHilmir Snær GuðnasonNígeríaRíkissjóður ÍslandsÓlafsvíkQInternet Movie DatabaseJSvartidauðiSymbianEyjafjallajökullSeyðisfjörðurSérsveit ríkislögreglustjóraRosa ParksKnattspyrnaÞjóðveldiðAnnars stigs jafnaLissabonSpendýrKirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu á ÍslandiNorður-MakedóníaSleipnirSýrlenska borgarastyrjöldinRisaeðlurHjartaÞingkosningar í Bretlandi 2010ÞSamlífiKváradagurLandnámsöldHitaeiningFimmundahringurinnBúddismiBoðorðin tíuMalavíSkemakenningNorðursvæðiðFjármálSvartfuglarÞór (norræn goðafræði)RúmmálHelCarles PuigdemontSigurjón Birgir SigurðssonFæreyjarKári Steinn KarlssonTónstigi19786Benjamín dúfa🡆 More