Þessi grein fjallar um embætti Dalai Lama, fyrir umfjöllun um núverandi Dalai Lama sjá greinina Tenzin Gyatso
Dalai Lama (á tíbetsku: ཏཱ་ལའི་བླ་མ་; nánast borið fram sem: taa la’i bla ma) er embætistitill eins aðalleiðtoga lamasiðar, helstu gerðar búddisma í Tíbet. Í þeirri grein búddisma eru prestar og munkar nefndir lama (kennari) og Dalai Lama er æðstur kennimanna í Gelug-reglu tíbetskrar búddista. Dalai Lamarnir voru einnig valdamestu stjórnmálaleiðtogar Tíbet frá því á sautjándu öld fram til ársins 1951 er Kínverjar hertóku Tíbet.
Þegar Dalai Lama deyr þá hefst leit að eftirmanni hans því að samkvæmt trú tíbetskra búddista endurholdgast Dalai Lama sem lítill drengur og á þessi hefð rætur aftur til fimmtándu aldar. Drengir sem eru fæddir rétt eftir andlát Dalai Lama eru kannaðir og fyrir þá eru lögð próf. Þegar hinn endurborni Dalai Lama þykir fundinn er viðkomandi drengur sendur í klaustur og bíður hans þar löng og mikil þjálfun og menntaferill.
Hingað til hafa verið fjórtán Dalai Lamar og sá fyrsti fæddist árið 1391 e. Kr. Flestir Tíbetar líta á Dalai Lama sem endurholdgun búddans Avalokiteshvara sem í Tíbet er nefndur Chenrezig, སྤྱན་རས་གཟིགས་ , búdda kærleikans og miskunnseminnar, og sýna þeir leiðtoga sínum mikla virðingu.
Núverandi Dalai Lama er Tenzin Gyatso. Hann fæddist 4. júlí 1935 í Norðaustur-Tíbet og er hann er fjórtánda endurholdgun Dalai Lama og er þjóðhöfðingi og andlegur leiðtogi flestra Tíbeta. Árið 1989 hlaut Dalai Lama friðarverðlaun Nóbels fyrir að stuðla að friðsamlegri baráttu Tíbeta fyrir sjálfstæði frá Kína en Dalai Lama hefur ávallt neitað að beita ofbeldi í baráttunni fyrir bættum hag landa sinna og frelsun Tíbet. Hann hefur haft mikil áhrif á fjölda fólks alls staðar í heiminum með boðskap sínum og persónuleika. Sérhver Dalai Lama er sögð vera sama sálin klædd nýju holdi.
Dalai Lama kom til Íslands 2009 og dvaldi þar í þrjá daga og hélt fyrirlestur í Laugardalshöll. Hann kom þann 31. maí 2009 og fór af landi 3. júní 2009. Hann tók þátt í samtrúarlegri friðarstund í Hallgrímskirkju þar sem fulltrúar allra stærstu trúfélaga landsins voru saman komnir. Hann fór einnig í heimsókn í Háskóla Íslands og tók þátt í pallborðsumræðum ásamt prófessorum af hugvísindasviði. Hann heimsótti líka Alþingi og sat á fund með utanríkismálanefnd Alþingis og ræddu um málefni Tíbets, umhverfis- og mannréttindamál. Þann 2. júní 2009 hélt hann fyrirlestur um lífsgildi, viðhorf og lífshamingju og svaraði spurningum áhorfenda í Laugardalshöll. Dalai Lama var mjög snortinn eftir heimsóknina til Íslands og þakkaði fyrir góðar móttökur.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Dalai Lama, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.