Kalifornía: Fylki í Bandaríkjunum

Kalifornía (enska: California) er fylki á vesturströnd Bandaríkjanna.

Kalifornía liggur að Oregon í norðri, Nevada og Arizona í austri, Mexíkó í suðri og Kyrrahafinu í vestri. Höfuðborg fylkisins heitir Sacramento en Los Angeles er stærsta borg fylkisins. Meðal annarra þekktra borga í Kaliforníu eru San Francisco, Oakland, San Jose og San Diego.

Kalifornía
California
State of California
Fáni Kaliforníu
Opinbert innsigli Kaliforníu
Viðurnefni: 
The Golden State (Gullna fylkið)
Kjörorð: 
Eureka
Kalifornía merkt inn á kort af Bandaríkjunum
Staðsetning Kaliforníu í Bandaríkjunum
LandKalifornía: Iðnaður, Lýðfræði, Sýslur Bandaríkin
Varð opinbert fylki9. september 1850; fyrir 173 árum (1850-09-09) (31. fylkið)
HöfuðborgSacramento
Stærsta borgLos Angeles
Stjórnarfar
 • FylkisstjóriGavin Newsom (D)
 • VarafylkisstjóriEleni Kounalakis (D)
Þingmenn
öldungadeildar
  • Alex Padilla (D)
  • Laphonza Butler (D)
Þingmenn
fulltrúadeildar
Flatarmál
 • Samtals423.970 km2
 • Land403.932 km2
 • Vatn20.047 km2  (4,7%)
 • Sæti3. sæti
Stærð
 • Lengd1.220 km
 • Breidd400 km
Hæð yfir sjávarmáli
880 m
Hæsti punktur4.421 m
Lægsti punktur−85 m
Mannfjöldi
 (2023)
 • Samtals38.940.231
 • Sæti1. sæti
 • Þéttleiki97/km2
  • Sæti11. sæti
Heiti íbúaCalifornian
Tungumál
 • Opinbert tungumálEnska
 • Töluð tungumál
  • Enska: 56,1%
  • Spænska: 28,3%
  • Önnur: 15,6%
TímabeltiUTC−08:00 (PST)
 • SumartímiUTC−07:00 (PDT)
Póstnúmer
CA
ISO 3166 kóðiUS-CA
StyttingCalif., Cal., Cali.
Breiddargráða32°32'N til 42°N
Lengdargráða114°8'V til 124°26'V
Vefsíðaca.gov
Kalifornía: Iðnaður, Lýðfræði, Sýslur
Golden Gate brúin í San Francisco.

Kalifornía er um 424.000 ferkílómetrar að stærð — þriðja stærsta fylki Bandaríkjanna á eftir Alaska og Texas. Landslag fylkisins er afar fjölbreytt.

Á 19. öld skall á gullæðið í Kaliforníu. Fólk flykktist að og efnahagur fylkisins batnaði til muna. Snemma á 20. öld varð Los Angeles miðstöð skemmtanaiðnaðar í heiminum og stórt aðdráttarafl ferðamanna. Ef Kalifornía væri land myndi það vera á meðal tíu stærstu hagkerfa heims (á stærð við Ítalíu) og 35. fjölmennasta.

Iðnaður

Árið 2005 var Kalifornía talið 5. stærsta hagkerfi í veröldinni og ábyrgt fyrir allt að 13% af heildar framleiðslu Bandaríkjanna. Aðaliðnaður Kaliforníu er landbúnaður og hefur fylkið verið kallað brauðkarfa Bandaríkjanna. Á hæla þess kemur kemur hátækni, bæði flug og geimiðnaður auk þess sem fylkið er þekkt fyrir tölvutækni og Silicon Valley sem er staðsettur í San Jose er talin ein helsta miðstöð tölvuvæðingarinnar, bæði hugbúnaðarframleiðslu og einnig framleiðslu á tölvum og íhlutum. Í Kaliforníu er afþreyingariðnaður einnig mjög mikilvægur, bæði framleiðsla kvikmynda og tölvuleikja en þó fyrst og fremst framleiðsla sjónvarpsefnis.

Lýðfræði

Kalifornía er fjölmennasta fylki Bandaríkjanna, með um 39.53 milljónir íbúa. Samkvæmt U.S. Census Bureau 2000 þá er hlutfall kynþátta í ríkinu sem hér segir:

  • Hvítir - 59,5%
  • Svertingjar - 6,7%
  • Frumbyggjar (Indjánar) - 1%
  • Asíufólk - 10,9%
  • Hawaiian og aðrar eyjaþjóðir - 0.3%
  • Aðrir - 16.8%
  • Blanda af tveimur kynþáttum - 4,7%

Auk þess má geta að 32,4% flokka sig sem latinos eða upprunna frá Mið- og Suður-Ameríku.

Tungumál

Árið 2005 höfðu um 58% íbúa Kaliforníu ensku að móðurmáli (sem fyrsta mál), en um 28% töluðu spænsku, einkum er spænska útbreidd í suðurhluta fylkisins. Um 14% íbúanna tala ýmis tungumál (sem fyrsta mál), og eru ýmis Asíumál áberandi í hverfum innflytjenda. Alls eru töluð um 70 tungumál á svæðinu.

Sýslur

Fylkinu er skipt í 58 sýslur. Þær eru:

  • Alameda
  • Alpine
  • Amador
  • Butte
  • Calaveras
  • Colusa
  • Contra Costa
  • Del Norte
  • El Dorado
  • Fresno
  • Glenn
  • Humboldt
  • Imperial
  • Inyo
  • Kern
  • Kings
  • Lake
  • Lassen
  • Los Angeles
  • Madera
  • Marin
  • Mariposa
  • Mendocino
  • Merced
  • Modoc
  • Mono
  • Monterey
  • Napa
  • Nevada
  • Orange
  • Placer
  • Plumas
  • Riverside
  • Sacramento
  • San Benito
  • San Bernardino
  • San Diego
  • San Francisco
  • San Joaquin
  • San Luis Obispo
  • San Mateo
  • Santa Barbara
  • Santa Clara
  • Santa Cruz
  • Shasta
  • Sierra
  • Siskiyou
  • Solano
  • Sonoma
  • Stanislaus
  • Sutter
  • Tehama
  • Trinity
  • Tulare
  • Tuolumne
  • Ventura
  • Yolo
  • Yuba

Landsvæði og náttúrufar

Kalifornía: Iðnaður, Lýðfræði, Sýslur 
Tröllvaxin tré í Kaliforníu.

Miðdalur Kaliforníu er mesta landbúnaðarhérað fylkisins. Vestur af honum eru Sierra Nevada eða Snjófjöll. Í eða við fjöllin eru Yosemite-þjóðgarðurinn með háa kletta og fossa, Sequoia-þjóðgarðurinn og Kings Canyon-þjóðgarðurinn þar sem stærstu tré í heimi vaxa; rauðviður, Tahoe-vatn er stærsta stöðuvatn fylkisins og Mount Whitney er sem er hæsta fjall Bandaríkjanna 48 (utan Alaska og Hawaii).

Í norðri eru Fossafjöll (sem ná norður í gegnum Oregon og Washingtonfylki) þar sem eldkeilur eru áberandi fjöll. Lassen Peak gaus í byrjun 20. aldar. Lassen Volcanic-þjóðgarðurinn er umhverfis fjallið. Við norðurströndina vex strandrauðviður sem hefur að geyma hæstu eintök trjáa í heimi. Þar eru Redwood-þjóðgarðarnir.

Í suðaustur-Kaliforníu má finna eyðimerkur eins og Dauðadal sem er lægsti og heitasti staður Bandaríkjanna. Þar eru vaxa kaktusar og annar eyðimerkurgróður. Death Valley-þjóðgarðurinn er þjóðgarður sem nær yfir svæðið.

Um 45% fylkisins er skógi vaxið og er fjöldi furutrjáa. Í Hvítufjöllum má finna broddfuru sem er yfir 5000 ára gömul. Dýralíf er fjölbreytt. Meðal spendýra eru: fjallaljón, sléttuúlfar, svartbirnir, íkornar og stórhyrningar.

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Kalifornía IðnaðurKalifornía LýðfræðiKalifornía SýslurKalifornía Landsvæði og náttúrufarKalifornía TilvísanirKalifornía TenglarKaliforníaArizonaBandaríkinEnskaFylki BandaríkjannaKyrrahafLos AngelesMexíkóNevadaOaklandOregonSacramentoSan DiegoSan FranciscoSan Jose

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

ÖræfasveitPizzaHáskóli ÍslandsGullListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999TölfræðiÞjóðvegur 1LjóstillífunSkammstöfunLitla-HraunNorræn goðafræðiListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðFiann PaulNafnorðLandnámabókGuðmundur Ingi ÞorvaldssonJóhannes Sveinsson KjarvalHlaupárTívolíið í KaupmannahöfnJón Kalman StefánssonEllen DeGeneresLögmál NewtonsListi yfir íslenskar kvikmyndirÍslendingasögurÍbúar á ÍslandiNeymarÍslandOfviðriðBolludagurÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaEilífðarhyggjaSkapahárBjarni FelixsonDymbilvikaMarðarættHamsturAriana GrandeBYKOSund (landslagsþáttur)FerskeytlaYAskur YggdrasilsHættir sagna í íslenskuÖskjuhlíðarskóliSendiráð ÍslandsMalaríaDvergreikistjarnaSvartfuglarEgils sagaSögutímiStálEistneskaHornstrandirÞjóðveldiðOffenbach am MainXXX RottweilerhundarSteven SeagalMedinaVistarbandiðSkyrIstanbúlSpjaldtölvaJohan CruyffReykjavíkEgill Skalla-GrímssonStóra-LaxáHeimsmeistari (skák)MoldóvaGuðmundur Franklín JónssonRagnar loðbrókSkjaldarmerki ÍslandsÖnundarfjörðurPáll ÓskarLindýrSóley TómasdóttirEmomali RahmonSukarno🡆 More