Refir: Rándýr af hundaætt

Refir eru lítil og meðalstór rándýr af hundaætt (Canidae).

Til eru um 27 tegundir refa. Refir lifa í flestum heimsálfum en algengastir þeirra eru rauðrefir (Vulpes vulpes). Refir eru þekktir úr þjóðsögum margra þjóða um allan heim.

Refur
Refir: Almenn einkenni, Flokkun, Tengt efni
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Spendýr (Mammalia)
Ættbálkur: Rándýr (Carnivora)
Ætt: Hundaætt (Canidae)
Ættflokkur: Vulpini

Nöfn á refum eru ólík nöfnum flestra annarra hunddýra. Karldýrið er oftast nefnd steggur eða högni en einnig kemur fyrir að það séu nefnt refur. Kvendýrið er nefnt læða eða bleyða en einnig kemur fyrir að það sé nefnt tófa. Afkvæmi refa kallast yrðlingar en í refarækt er þó oft talað um hvolpa.

Almenn einkenni

Refir: Almenn einkenni, Flokkun, Tengt efni 
Rauðrefur
Refir: Almenn einkenni, Flokkun, Tengt efni 
Heimskautarefur
Refir: Almenn einkenni, Flokkun, Tengt efni 
Eyðimerkurrefur

Flestir refir lifa í tvö til þrjú ár en geta lifað í allt að tíu ár og jafnvel lengur í dýragörðum. Flestar tegundir refa eru á stærð við holdugan heimiliskött og því töluvert minni en aðrar tegundir innan hundaættar, svo sem úlfar, sjakalar, og hundar.

Refir hafa venjulega hvasst trýni og þykkloðna rófu sem kölluð er tæfill. Flest önnur einkenni eru breytileg eftir heimkynnum refa. Eyðimerkurrefir hafa til að mynda stór eyru og snöggan feld en heimskautarefir hafa lítil eyru og þykkan og hlýjan feld.

Refir eru yfirleitt ekki hópdýr, ólíkt flestum öðrum tegundum innan hundaættar. Þeir eru jafnan einfarar og tækifærissinnar þegar kemur að æti. Þeir veiða oftast lifandi bráð en éta einnig hræ, ávexti og ber.

Refir eru frekar mannfælnir en hitt og verða seint taldir góð gæludýr. Það er helst að temja megi silfurrefi eins og í Rússlandi þar sem þeir hafa verið ræktaðir í um hálfa öld. Þrátt fyrir mannfælni villtra refa sjást þeir býsna oft nálægt mannabústöðum.

Flokkun

Til refa teljast eftirfarandi ættkvíslir:

Ættartré refa

 Vulpes 

  (V. chama)

 Bengalrefur (V. bengalensis)

  (V. pallida)

 Afganrefur (V. cana)

 Eyðimerkurrefur (V. zerda)

 Auðnarefur (V. macrotis)

 Heimskautarefur (V. lagopus)

 Sprettrefur (V. velox)

 Steppurefur (V. corsac)

 Tíbetrefur (V. ferrilata)

 Rauðrefur (V. vulpes)

 Sandrefur (V. rueppelli)

  • Otocyon
    • Otocyon megalotis
  • Urocyon
    • Grárefur, Urocyon cinereoargenteus
    • Eyjarefur, Urocyon littoralis

Tengt efni

Tenglar

Heimildir

Tags:

Refir Almenn einkenniRefir FlokkunRefir Tengt efniRefir TenglarRefir HeimildirRefirDýrategundHundaættRauðrefurRándýrÞjóðsaga

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

2016Guðmundur Árni Stefánsson1987Listi yfir landsnúmerBrúðkaupsafmæliHættir sagna í íslenskuBorgSvampdýrGamelanFiskurHalla Hrund LogadóttirHellisheiðarvirkjun2002VörumerkiArnaldur IndriðasonGuðmundar- og GeirfinnsmáliðLionel MessiGrænlandHeimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1930LissabonFramsöguhátturKristniSauryBiblíanÓlafur ThorsStefán MániSnæfellsbærAðalstræti 10Eldgosaannáll ÍslandsHvalfjarðargöngVerg landsframleiðslaYfirborðsflatarmálSnjóflóð á ÍslandiLoftslagValdaránið í Brasilíu 1964BarokkBrúttó, nettó og taraMiðaldirSveitarfélög ÍslandsDóri DNASádi-ArabíaSjálfstæðisflokkurinnKötturÁsgeir ÁsgeirssonFritillaria przewalskiiHagstofa ÍslandsHallgrímur PéturssonÞórarinn EldjárnRauðhólarListi yfir skammstafanir í íslenskuRómverskir tölustafirEvrópska efnahagssvæðiðÍsland í seinni heimsstyrjöldinniGotneskaEinokunarversluninSaga ÍslandsKapítalismiMesópótamíaHvalveiðarÁramótBankahrunið á ÍslandiFreyjaBenito MussoliniForsetakosningar á Íslandi 2020Ragnar JónassonÞjóðhátíð í VestmannaeyjumHalldór LaxnessSuðurlandsskjálftinn 29. maí 2008Stella í orlofiGuðni Th. JóhannessonKjarnorkuslysið í TsjernobylEvrópaForseti ÍslandsListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969🡆 More