Heiðar Guðjónsson

Heiðar Guðjónsson (f.

22. apríl 1972; áður þekktur sem Heiðar Már Guðjónsson) er íslenskur hagfræðingur og forstjóri Sýnar. Hann hefur starfar fyrir eigið fjárfestingafélag og verið formaður stjórnar Eykon Energy, og varaformaður stjórnar HS Veitna.

Ævi

Heiðar fæddist á Íslandi en ólst upp í Svíþjóð. Faðir hans er Guðjón Magnússon, fyrrverandi aðstoðarlandlæknir, prófessor og rektor og móðir hans Sigrún Gísladóttir, kennari og skólastjóri. Heiðar er kvæntur Sigríði Sól Björnsdóttur og eiga þau þrjú börn.

Heiðar lauk stúdentsprófi við Verslunarskóla Íslands og hagfræðigráðu við Háskóla Íslands.

Hann vann hjá Fjárvangi, Íslandsbanka, og stýrði vogunarsjóðnum GIR Capital Investment fyrir Kaupþing. GIR var kynntur fjárfestum á Íslandi á kynningarfundi á Hótel Holti „við lok síðasta árþúsunds“. Samkvæmt einum fundargestinum var útskýrt á fundinum hvernig hægt væri að forðast skattlagningu fjárfestingar í sjóðnum og boðin aðstoð við það. Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga, Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Lífeyrissjóður bænda og Stapi, lífeyrissjóður (þá Lífeyrissjóður Norðurlands) fjárfestu í GIR-sjóðnum á Caymaneyju.

Árið 2005 varð Heiðar meðeigandi í Novator Partners, London. Í frétt DV frá 2010 var Heiðar sagður „undanfarin ár [hafa] verið í innsta hring með Björgólfi Thor.“

Heiðar varaði við óumflýjanlegri leiðréttingu krónunnar, með tilheyrandi skakkaföllum í efnahagslífinu, frá árinu 2005. Heiðar hefur fullyrt í viðtali að engin lán tengd honum hafi nokkurn tímann verið afskrifuð, né heldur á eignarhaldsfélög sem hann átti hlut í eða sat í stjórn. Heiðar hefur lýst því yfir að hann telji að Ísland eigi að leggja niður íslensku krónuna og taka upp einhliða annan gjaldmiðil.

Hann fór fyrir hópi fjárfesta sem átti hæsta tilboð í opnu útboðsferli Sjóvár 2010. Heiðar hefur stefnt Seðlabanka Íslands vegna vanefnda í kringum útboð Sjóvár. Félagið var selt öðrum aðilum og í kjölfari birtist Heiðar í viðtali og sagði Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, hafa hótað að siga lögreglunni á hann og að tilboð hans hafi verið 5 milljörðum hagstæðara en tilboðið sem tekið var. DV hefur sakað hann um að taka stöðu gegn krónunni í aðdraganda bankahrunsins en hann hefur stefnt blaðinu fyrir meiðyrði. Heiðar segir Róbert Wessman dreifa lygum sem DV endurbirtir.

Heiðar gaf út bókina Norðurslóðasókn 2013 sem var á mestölulista Eymundsson haustið 2013.

Heiðar keypti kröfur á Glitni og Kaupþing og fór með þær í Héraðsdóm þar sem hann krafðist þess að gömlu bankarnir yrðu settir í þrot. Kröfuhafar Glitnis keyptu kröfurnar til að forða gjaldþroti og sömdu við ríkið um greiðslu um 500 milljarða í gegnum nauðasamninga.

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Eykon EnergySýn (fyrirtæki)

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SetningafræðiByggðasafn ReykjanesbæjarSveitarfélög ÍslandsGeirfuglHelgi Áss GrétarssonÞjóðvegur 26KölnLeigubíllRíkisútvarpiðGeorgíaNafnhátturForingjarnirEgilsstaðirSkálmöldFramsöguhátturJárnFellibylurNærætaUmmálStari (fugl)Wiki FoundationSævar Þór JónssonBandaríkinEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024Wayback MachineSumardagurinn fyrstiForseti ÍslandsSterk beygingKári StefánssonTom BradyÞorsteinn Guðmundsson (f. 1967)HesturHaraldur 5. NoregskonungurGunnar Theodór EggertssonListi yfir forseta BandaríkjannaFriðrik DórSýslur ÍslandsFramfarahyggjaDauðiTölfræðiÍslenska stafrófiðMiðtaugakerfiðSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirSnjóflóð á ÍslandiGasÚlfurThe Tortured Poets DepartmentListi yfir íslensk skáld og rithöfundaMeðalhæð manna eftir löndumÁratugurLekandiStaðreyndVery Bad Things20. öldinKalksteinnBerklarRagnarökHollenskaSameinuðu þjóðirnarBaldurÞjóðminjasafn ÍslandsMorgunblaðiðLundiHlutlægniAlfræðiritSeinni heimsstyrjöldinHallgerður HöskuldsdóttirPrótínmengiAlþýðuflokkurinnSelfossGuðmundur Ingi GuðbrandssonÁstþór MagnússonRómverska lýðveldiðSkrápdýrOblátaEvrópusambandiðPatreksfjörður🡆 More