Veður

Veður eru hvers kyns fyrirbrigði, sem verða í lofthjúpum, einkum jarðar.

Veður Veður Veður
Árstíðir
Tempraða beltið
VorSumarHaustVetur
Hitabeltið
Þurrkatími • Regntími
Óveður
StormurFellibylur
Skýstrokkur • Öskubylur
Úrkoma
ÞokaSúldRigning
SlyddaHaglélSnjókoma
Viðfangsefni
VeðurfræðiVeðurspá
Loftslag • Loftmengun
Hnattræn hlýnunÓsonlagið
Veðurhvolfið

Yfirleitt á veður við skammtímafyrirbrigði í veðrahvolfi jarðar, sem sjaldan vara lengur en nokkra daga. Fyrirbrigði í lofthjúpnum sem vara langan tíma nefnast loftslag eða veðurfar. Veðurfræði er vísindagrein sem fjallar um veður og veðurfar og þeir sem hana stunda nefnast veðurfræðingar.

Veður
Ágætisveður

Veðurfyrirbrigði eiga oftast rætur sínar að rekja til hitamismunar á mismunandi stöðum á hnettinum, sem orsakast meðal annars af því að svæði nálægt miðbaug fá meiri orku frá sólinni en svæði sem eru nær heimskautunum. Önnur orsök hitamismunar á jörðinni er að mismunandi yfirborð, svo sem úthöf, skóglendi og jöklar, drekka í sig mismikið ljós og hitna því mismikið þegar sólin skín á þá. Vatnsgufa gegnir lykilhlutberki í veðri jarðar, en þegar hún þéttist myndast vatnsdropar eða ískristallar sem mynda skýin, sem sum gefa úrkomu.

Mismunandi hiti veldur því að heitara eða kaldara loft rís eða sekkur. Þegar heitt loft þenst út og lyftist upp vegna minni eðlisþyngdar, sogast kaldara loft inn í staðinn, sem veldur vindum á yfirborðinu. Vegna svigkrafts leitar loft til hægri við vindstefnu á norðurhveli, en til vinstri á suðurhveli. Veðrakerfi, s.s. hæðir og lægðir, myndast vegna samspils þrýstikrafts og svigkrafts. Fellibyljir eru víðáttumiklar og öflugar lægðir sem myndast yfir hafi í hitabeltinu. Skýstrokkar eru litlar, en mjög krappar lægðir sem geta myndast hvar sem er, en eru afar sjaldgæfar eftir því sem nær dregur heimskautum.

Gerðar eru veðurathuganir á veðurathugunarstöðvum víða um heim, sem eru ýmist mannaðar eða sjálfvirkar. Veðurstofa Íslands framkvæmir veðurathuganir og fylgist með og spáir fyrir veðri á Íslandi og umhverfi þess. Alþjóða veðurfræðistofnunin er alþjóðleg stofnun á svið veðurfræði og skyldra greina.

Sjá einnig

Veður   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

JörðLofthjúpurLoftslagVeðrahvolfVeðurfræði

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Bankahrunið á ÍslandiSveitarfélagið ÁrborgHjálpJöklar á ÍslandiFlateyriSúrefnismettunarmælingÆvintýri TinnaSkuldabréfMannshvörf á ÍslandiFiskurKansasArnaldur IndriðasonSovétríkinLanganesbyggðStella í orlofiHólmavíkHlíðarfjallPáskarKeila (rúmfræði)SvartidauðiUngverjalandLína langsokkurViðskiptablaðiðLögverndað starfsheitiSnorri MássonEvrópusambandiðLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisSkíðastökkSturlungaöldBæjarins beztu pylsurSilungurmoew8Bikarkeppni karla í knattspyrnuEinar Már GuðmundssonGerjunDýrForsíðaSjálfstæðisflokkurinnVesturbær ReykjavíkurSvíþjóðHringrás kolefnisMaríuhöfnÞórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirLömbin þagna (kvikmynd)HaförnEiríkur Ingi JóhannssonForsetningCharles DarwinFyrsti vetrardagurEldeyEtanólFriðrik DórEgill ÓlafssonVísindaleg flokkunGoðafossÍslenska stafrófiðGvamBoðhátturPétur J. Thorsteinsson (sendiherra)Sigurjón KjartanssonMeðalhæð manna eftir löndumHafnarfjörðurHafþór Júlíus BjörnssonÁhrifavaldurMaíÁstþór MagnússonTáknLega NordÓlympíuleikarnirÓlafur Darri ÓlafssonOkkarínaSveppirJónsbókForsetakosningar á ÍslandiBandaríkinNo-leikur🡆 More