Niue er eyríki í Suður-Kyrrahafi um 2.400 km norðaustur af Nýja-Sjálandi innan þríhyrningsins sem dreginn er milli Tonga, Samóa og Cookseyja í Pólýnesíu.
Land Niue er um 261 ferkílómetrar og íbúar um 1600 talsins. Eyjan er stundum kölluð „Kletturinn“ (enska: The Rock) sem er dregið af alþýðuheitinu „Klettur Pólýnesíu“. Niue er upplyft kóralrif og ein af stærstu kóraleyjum heims. Landslag eyjarinnar einkennist af tveimur þrepum, þar sem annars vegar eru háir klettar og hálendisslétta úr kalksteini í um 60 metra hæð yfir sjávarmáli, og hins vegar hallandi strandslétta sem endar í lágum klettum við ströndina. Umhverfis eyjuna er kóralrif og eina leiðin inn fyrir það er á vesturströndinni þar sem höfuðborgin, Alofi, er.
Niue | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Ko e Iki he Lagi | |
Höfuðborg | Alofi |
Opinbert tungumál | enska, niueska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn
|
Konungur | Karl 3. |
Landstjóri | Cindy Kiro |
Forsætisráðherra | Dalton Tagelagi |
Tengdarríki | Nýja-Sjálands |
• Stjórnarskrársamþykkt Niue | 19. október 1974 |
• Sjálfstæði í utanríkismálum | 1994 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) | 188. sæti 261,46 km² 0 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar | 194. sæti 1.620 6,71/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2003 |
• Samtals | 0,01 millj. dala (228. sæti) |
• Á mann | 5.800 dalir (164. sæti) |
Gjaldmiðill | nýsjálenskur dalur (NZD) |
Tímabelti | UTC-11 |
Þjóðarlén | .nu |
Landsnúmer | +683 |
Niue er með heimastjórn en er þó í sambandi við Nýja Sjáland hvað varðar ýmis utanríkismál og þjóðhöfðingja. Landið er hluti af Konungsríki Nýja-Sjálands. Íbúar Niue eru þannig nýsjálenskir ríkisborgarar og þjóðhöfðingi Nýja-Sjálands, Karl 3. Bretakonungur, er jafnframt þjóðhöfðingi Niue sem konungur Nýja-Sjálands. Milli 90 og 95% af fólki sem er upprunnið á Niue býr á Nýja-Sjálandi. Þar búa líka um 70% þeirra sem tala niuesku sem er pólýnesískt mál, skylt tongversku. Á Niue eru tvö opinber tungumál og um 30% íbúa tala bæði niuesku og ensku. Um 11% tala aðeins ensku en um 46% tala aðeins niuesku.
Pólýnesar settust að á Niue um 900 e.Kr. og fleiri landnemar komu frá Tonga á 16. öld. Allt til upphafs 18. aldar virðist ekki hafa verið um neina ríkisstjórn eða þjóðhöfðingja að ræða á Niue en eftir 1700 tóku íbúarnir sér konunga að dæmi Tonga eða Samóa. Fyrsti Evrópubúinn sem kom auga á eyjuna var James Cook árið 1774. Hann nefndi eyjuna Villimannaeyju (Savage Island) þar sem eyjarskeggjar vörnuðu honum landgöngu og höfðu, að því er honum sýndist, blóð á tönnunum, sem var í raun rauður banani. Næsta heimsókn Evrópumanna var frá Trúboðsfélagi Lundúna árið 1846. Íbúar snerust smám saman til kristni á síðari hluta 19. aldar. Árið 1887 bauð konungurinn, Fata-a-iki, Bretlandi yfirráð á eyjunni til að tryggja vernd gegn öðrum nýlenduveldum, en Bretar þáðu ekki boðið fyrr en árið 1900. Árið 1901 var eyjan sameinuð Nýja Sjálandi. Íbúar fengu heimastjórn í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1974.
Niue er ekki aðili að Sameinuðu þjóðunum en á aðild að sumum undirstofnunum þeirra, eins og UNESCO og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.. Fulltrúum landsins er boðið, ásamt fulltrúum Cookseyja, að taka þátt í fundum Sameinuðu þjóðanna sem opnir eru öllum löndum. Niue hefur verið aðili að Kyrrahafsráðinu frá 1980.
Niue er 269 km² upplyft kóralrif í Suður-Kyrrahafi, austan við Tonga. Auk þess eru þrjú kóralrif innan efnahagslögsögu Niue:
Fyrir utan þessi rif er Albert Meyer-rif, um 5 km að lengd og breidd, minnsta dýpt 3 metrar, 326 km suðvestan við Niue sem ekki hefur gert formlegt tilkall til þess, og Haymet-sker, 1.273 km austsuðaustur af Niue sem óvissa ríkir um.
Niue er ein af stærstu kóraleyjum heims. Meðfram ströndinni eru brattir kalksteinsklettar sem liggja að hálendissléttu í um 60 metra hæð yfir sjávarmáli. Umhverfis eyjua er kóralrif og eina leiðin inn fyrir það er um sund á miðri vesturströndinni, nálægt höfuðborginni, Alofi. Margir kalksteinshellar eru við sröndina.
Eyjan er sporöskjulaga, um 18 km á breidd, með tvær stórar víkur sem ganga inn í vesturströndina. Alofi-vík er í miðjunni og Avatele í suðri. Milli þeirra er skaginn Halagigie Point. TePā Point er lítill skagi nálægt byggðinni á Avatele í suðvestri. Flestir íbúar búa við vesturströndina, í kringum höfuðborgina og í norðvesturhlutanum.
Hluti af jarðveginum á eyjunni hefur óvenjulega efnasamsetningu. Þetta er mjög veðraður hitabeltisjarðvegur með mikið magn járn- og áloxíða (oxisol) og kvikasilfurs, og er mjög geislavirkur. Það er næstum ekkert úran en geislavirku núklíðin Th-230 og Pa-231 leiða sundrunarferlin. Þetta er sams konar efnasamsetning og finnst náttúrulega í djúpsjávarseti, en rannsóknir benda til þess að þessi efni eigi sér uppruna í mikilli veðrun kórals og stuttri dvöl neðansjávar fyrir um 120.000 árum. Hitauppstreymi, þar sem lágur jarðhiti dregur djúpsjó upp á yfirborðið gegnum gisinn kóralinn á örugglega þátt í þessari efnasamsetningu.
Engin neikvæð heilsufarsleg áhrif geislunar eða frá öðrum snefilefnum hafa komið fram í rannsóknum, og útreikningar sýna að geislavirknin er líklega allt of lítil til að finnast í fólki. Þessi óvenjulegi jarðvegur er ríkur af fosfati, en í mjög óaðgengilegu formi, sem járnfosfat, eða crandallít. Talið er að svipaðan jarðveg megi finna á eyjunum Lifou og Mare við Nýju-Kaledóníu, og Rennell á Salómonseyjum, en ekki er vitað um aðra staði þar sem hann finnst.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni eru íbúar eyjarinnar viðkvæmir fyrir húðkrabbameini. Andlát vegna húðkrabbameins var 2.482 á 100.000 íbúa árið 2002, sem er miklu meira en í nokkru öðru landi.
Niue liggur handan við daglínuna miðað við Nýja-Sjáland. Tímamismunurinn er 23 tímar á veturnar og 24 tímar á sumrin þegar Nýja-Sjáland tekur upp sumartíma.
Niue skiptist í 14 þorp (sveitarfélög). Hvert þorp hefur sitt þorpsráð sem kýs sér formann. Þorpin eru líka kjördæmi. Hvert þorp kýs einn þingmann á Þing Niue.
Alofi norður og Alofi suður eru bæði hluti af höfuðborg Niue, Alofi (614 íbúar).
Nr. | Þorp | Íbúar (manntal 2017) | Stærð km2 | Þéttleiki (km−2) |
---|---|---|---|---|
Motu (sögulegt ættbálkahérað í norðurhlutanum) | ||||
1 | Makefu | 70 | 17,13 | 4,1 |
2 | Tuapa | 112 | 12,54 | 8,9 |
3 | Namukulu | 11 | 1,48 | 7,4 |
4 | Hikutavake | 49 | 10,17 | 4,8 |
5 | Toi | 22 | 4,77 | 4,6 |
6 | Mutalau | 100 | 26,31 | 3,8 |
7 | Lakepa | 87 | 21,58 | 4 |
8 | Liku | 98 | 41,64 | 2,4 |
Tafiti (sögulegt ættbálkahérað í suðurhlutanum) | ||||
9 | Hakupu | 220 | 48,04 | 4,6 |
10 | Vaiea | 115 | 5,40 | 21,3 |
11 | Avatele | 143 | 13,99 | 10,2 |
12 | Tamakautoga | 160 | 11,93 | 13,4 |
13 | Alofi suður | 427 | 46,48 | 12,8 |
14 | Alofi norður | 170 | ||
Niue | 1.784 | 261,46 | 6,8 |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Niue, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.