Sameinuðu Þjóðirnar

Sameinuðu þjóðirnar eru alþjóðasamtök stofnuð 1945 sem nú hafa 193 aðildarríki.

Öll almennt viðurkennd sjálfstæð ríki í heiminum, að Vatíkaninu undanskildu, eru nú meðlimir. Vatíkanið á eina varanlega áheyrnarfulltrúann og getur sóst eftir fullri aðild ef það kýs svo. Höfuðstöðvar samtakanna eru í New York-borg, þar sem aðildarríkin koma saman á reglulegum fundum til að taka ákvarðanir um margs konar mál sem samtökin koma að. Samtökin reka aukahöfuðstöðvar í Genf, Naíróbí og Vínarborg, auk Haag þar sem Alþjóðadómstóllinn er.

Sameinuðu þjóðirnar
Sameinuðu Þjóðirnar
Sameinuðu Þjóðirnar
Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna.
SkammstöfunSÞ (íslenska); UN (enska)
UndanfariÞjóðabandalagið
StofnunSem hernaðarbandalag: 1. janúar 1942
Sem alþjóðasamtök: 24. október 1945
GerðMilliríkjastofnun
HöfuðstöðvarFáni Bandaríkjana New York-borg, Bandaríkjunum
Meðlimir193 ríki; 2 áheyrnarríki
Opinber tungumálArabíska, enska, franska, kínverska, rússneska og spænska
AðalritariAntónio Guterres
Vefsíðawww.un.org
www.unric.org/is

Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar eftir lok síðari heimsstyrjaldar af sigurvegurum stríðsins í þeirri von að samtökin myndu koma í veg fyrir frekari stríð í framtíðinni vegna sameiginlegra öryggishagsmuna aðildarríkja. Núverandi uppbygging samtakanna ber vott um þær aðstæður sem uppi voru þegar þau voru stofnuð; sérstaklega sér þeirra stað í Öryggisráðinu, þar sem fimm ríki hafa fast sæti og neitunarvald. Þau eru: Alþýðulýðveldið Kína (leysti af hólmi Lýðveldið Kína), Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Rússland (leysti af hólmi Sovétríkin).

Sameinuðu þjóðirnar skiptast í sex stofnanir: allsherjarþingið, öryggisráðið, efnahags- og félagsmálaráðið, gæsluverndarráðið, aðalskrifstofuna og alþjóðadómstólinn. Að auki eru fjölmargar undirstofnanir, áætlanir og sjóðir; til dæmis Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, Alþjóðabankastofnanirnar og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðleg félagasamtök geta haft formlegt ráðgjafarhlutverk gagnvart Sameinuðu þjóðunum eða undirstofnunum þeirra.

Valdamesti og mest áberandi embættismaður Sameinuðu þjóðanna er aðalritarinn sem nú er portúgalski stjórnmálamaðurinn og diplómatinn António Guterres. Hann tók við embættinu 1. janúar 2017 og var endurkjörinn 8. júní 2021. Samtökin eru fjármögnuð með fjárframlögum frá aðildarríkjum.

Sameinuðu þjóðirnar, starfsmenn og undirstofnanir þeirra, hafa nokkrum sinnum unnið friðarverðlaun Nóbels þótt skoðanir séu skiptar um áhrifamátt þeirra. Margir telja Sameinuðu þjóðirnar mikilvægar fyrir frið og þróunarstarf, meðan aðrir telja samtökin áhrifalítil, hlutdræg og spillt.

Uppbygging

Sameinuðu þjóðirnar eru hluti af kerfi Sameinuðu þjóðanna sem nær yfir flókið net stofnana og annarra aðila. Mikilvægustu stofnanirnar eru aðalstofnanirnar fimm sem kveðið er á um í stofnsáttmálanum: Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, Efnahags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC), Alþjóðadómstóllinn og Aðalskrifstofa Sameinuðu þjóðanna. Sjötta aðalstofnunin, Gæsluverndarráð Sameinuðu þjóðanna, hætti starfsemi 1. nóvember 1994 þegar síðasta verndarríkið, Palaú, fékk sjálfstæði.

Fjórar af fimm aðalstofnunum eru staðsettar í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York-borg. Alþjóðadómstóllinn hefur aðsetur í Haag. Flestar undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna eru í nágrenni við höfuðstöðvar Sþ í Genf, Vín, og Naíróbí. Aðrar stofnanir hafa aðsetur víða um heim. Sex opinber tungumál Sameinuðu þjóðanna, sem eru notuð á alþjóðlegum fundum og á skjölum, eru arabíska, enska, franska, kínverska, rússneska og spænska. Samningur um réttindi og friðhelgi Sameinuðu þjóðanna veitir Sameinuðu þjóðunum og stofnunum þeirra friðhelgi frá landslögum þar sem þær starfa, til að tryggja hlutleysi þeirra gagnvart gistiríki og aðildarríkjum.

Neðan við aðalstofnanirnar sex starfar fjölbreytt safn aðila og stofnana, sem sumar eru eldri en Sameinuðu þjóðirnar sjálfar og njóta nær algers sjálfstæðis. Meðal þessara aðila eru undirstofnanirnar, rannsóknarstofnanir og menntastofnanir, áætlanir og sjóðir.

Allar stofnanir Sameinuðu þjóðanna fylgja Noblemaire-meginreglunni svokölluðu sem kveður á um laun sem séu aðlaðandi fyrir ríkisborgara í löndum þar sem laun eru hæst, og sem tryggja jöfn laun fyrir jafngild störf, óháð uppruna starfsfólks. Í reynd hefur Alþjóðleg embættismannanefnd, sem fer með mál starfsfólks Sameinuðu þjóðanna, vísað til hæstu launa opinberra starfsmanna í hverju landi. Laun starfsfólks eru skattlögð af samtökunum og stofnanir þeirra hafa umsjón með skattlagningunni.

Aðildarríki

Öll almennt viðurkennd ríki heims, fyrir utan Vatíkanið, eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum. Nýjasta aðildarríkið er Suður-Súdan sem gerðist aðili 14. júlí 2011. Stofnskrá Sameinuðu þjóðanna setur eftirfarandi skilyrði fyrir aðild:

Sameinuðu Þjóðirnar 
1) Þátttaka í hinum sameinuðu þjóðum er heimil öllum friðsömum ríkjum, sem takast á hendur skuldbindingarnar í þessum sáttmála og að áliti bandalagsins eru hæf og fús til að fullnægja þessum skuldbindingum.

2) Allsherjarþingið tekur ákvörðun um inngöngu hvers slíks ríkis eftir tillögu frá öryggisráðinu.

Sameinuðu Þjóðirnar 
Sameinuðu Þjóðirnar 
Í valdatíð Sukarnos varð Indónesía fyrsta og eina landið sem hefur sagt upp aðild að Sameinuðu þjóðunum.

Auk aðildarríkja eiga tvö lönd fasta áheyrnaraðild að allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna: Vatíkanið og Palestínuríki. Cookseyjar og Niue, sem bæði eru í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland, eru fullgildir aðilar að nokkrum af sérhæfðum stofnunum Sþ og hafa þar fullan rétt til samninga samkvæmt aðalskrifstofunni.

Indónesía er fyrsta og eina landið sem hefur sagt aðild sinni að Sameinuðu þjóðunum upp, til að mótmæla því að Malasía fengi tímabundið sæti í öryggisráðinu árið 1965 þegar löndin áttu í átökum. Indónesía stofnaði CONEFO Sameinuðu þjóðunum til höfuðs, en þau samtök urðu skammlíf og Indónesía gerðist aftur aðildarríki árið 1966.

G77

G77 er lauslegt bandalag þróunarríkja innan Sþ, sem á að styðja við sameiginlega efnahagslega hagsmuni meðlima og mynda samningsblokk innan Sþ. G77 var sett á fót af 77 ríkjum en í nóvember 2013 voru þátttakendur orðnir 133. Hópurinn var settur á stofn með sameiginlegri yfirlýsingu 77 ríkja 15. júní 1964 á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun (UNCTAD). Hópurinn hélt sinn fyrsta fund í Algeirsborg árið 1967 þar sem hann samþykkti Algeirsborgarskrána og lagði grunn að sameiginlegum stofnunum. Á 8. áratugnum tóku þróunarlöndum upp samþykkt um Nýskipan efnahagsmála og vinna hópsins breiddist út innan stofnana Sþ. Svipaðir hópar þróunarríkja starfa líka innan annarra stofnana Sþ, eins og G24 sem starfar innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Ísland

Alþingi Íslendinga samþykkti 25. júlí 1946 að sótt yrði um aðild Íslands að Sameinuðu þjóðunum. Þann 9. nóvember 1946 voru aðildarumsóknir Íslands, Svíþjóðar og Afganistans samþykktar. Þann 19. nóvember 1946 var Ísland boðið velkomið og Thor Thors varð fyrsti Fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.

Tilvísanir

Heimildir

Tengt efni

Tenglar

Sameinuðu Þjóðirnar   Þessi stjórnmálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Sameinuðu Þjóðirnar UppbyggingSameinuðu Þjóðirnar AðildarríkiSameinuðu Þjóðirnar TilvísanirSameinuðu Þjóðirnar HeimildirSameinuðu Þjóðirnar Tengt efniSameinuðu Þjóðirnar TenglarSameinuðu Þjóðirnar1945AlþjóðadómstóllinnAlþjóðasamtökGenfHaagNaíróbíNew York-borgSjálfstæðiVatíkaniðVínarborg

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Hermann HreiðarssonViðreisn1981-1990Hallgrímur PéturssonGunnar HelgasonMarianne E. KalinkeKárahnjúkavirkjunBreskt pundKirkjubæjarklausturLeifur heppniLífvaldVestfirðirAriel HenryGuðrún ÓsvífursdóttirFramkvæmdarvaldÍsland í seinni heimsstyrjöldinniListi yfir skráð trú- og lífsskoðunarfélög á ÍslandiMálsgreinSérnafnÞorskastríðinSveitarfélagið ÁrborgDagvaktinMartin ScorseseOkkarínaUnuhúsBjór á ÍslandiLandafræði FæreyjaSendiráð ÍslandsXXX RottweilerhundarHTMLHomo erectusForsetakosningar á Íslandi 2004SamtengingHouseMiðbæjarskólinnHallgrímskirkja (Hvalfirði)Borgarfjörður eystriMaría 1. EnglandsdrottningForsetakosningar á ÍslandiÚrvalsdeild karla í körfuknattleikListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Evrópukeppnin í knattspyrnu 2024Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnuKöngulóarkrabbiVíðir ReynissonLandsbankinnFermingKnattspyrnufélagið VíkingurAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)Harpa (tónlistar- og ráðstefnuhús)Krít (eyja)SnæfellsnesHandknattleikssamband ÍslandsKennimyndHólmavíkFornafnAlþingiSnæfell (Eyjabakkajökull)HermaðurHand-, fót- og munnsjúkdómurGuðmundur Felix GrétarssonSamyrkjubúskapurLandbrotOrsakarsögnListi yfir mótmæli og óeirðir á ÍslandiÞjóðhátíð í VestmannaeyjumVladímír PútínKortisólJóhann G. JóhannssonListi yfir risaeðlurAronFrosinnMyndhverfingJónas GuðmundssonSigríður Hrund PétursdóttirVesturbakkinnRúnar KristinssonStefán HilmarssonHera Björk Þórhallsdóttir🡆 More