Ólympsguðir

Ólympsguðir eða guðirnir tólf (á forngrísku Δωδεκάθεον < δώδεκα (dodeka) „tólf“ + θεοί (þeoi) „guðir“) voru meginguðirnir í grískri goðafræði (og síðar einnig í rómverskri goðafræði).

Þeir voru taldir búa á Ólympsfjalli í Grikklandi. Elsta ritaða heimildin um helgiathafnir þeim til heiðurs er í hómeríska sálminum til Hermesar. Oftast voru Ólympsguðirnir taldir vera: Seifur, Hera, Póseidon, Demetra, Ares, Aþena, Apollon, Artemis, Hefæstos, Afródíta, Hermes og Díonýsos. Samsvarandi guðir Rómverja voru: Júpíter, Júnó, Neptúnus, Ceres, Mars, Mínerva, Apollon, Díana, Vúlkan, Venus, Merkúríus og Bakkus. Hades (hjá Rómverjum: Plútó) var venjulega ekki talinn til Ólympsguða vegna þess að hann dvaldist í undirheimum en ekki á Ólympsfjalli. Stundum var Hestía (hjá Rómverjum: Vesta) talin til Ólympsguða. Þegar Díonýsosi var boðið í hópinn urðu Ólympsguðir þrettán en úr því að þrettán var talin óheillatala yfirgaf Hestía hópinn til þess að forðast illdeilur.

Ólympsguðir
Ólympsguðir eftir Monsiau frá síðari hluta 18du aldar.

Þegar í fornöld var þó á reiki hverjir tilheyrðu hópnum. Um 430 f.Kr. taldi sagnaritarinn Heródótos að Ólympsguðir væru eftirfarandi: Seifur, Hera, Póseidon, Hermes, Aþena, Apollon, Alfeifur, Krónos, Rhea og þokkagyðjurnar þrjár. Fornfræðingurinn þýski Ulrich von Wilamowitz-Moellendorff taldi að útgáfa Heródótosar væri rétt.

Ólympsguðir komust til valda eftir að Seifur hafði leitt þá til sigurs í baráttunni gegn frændum sínum Títönunum. Seifur, Hera, Póseidon, Demetra, Hestía og Hades voru systkin. Ares, Hermes, Hefæstos, Afródíta, Aþena, Apollon, Artemis, þokkagyðjurnar þrjár, Herakles, Díonýsos, Heba og Persefóna voru öll börn Seifs. Í sumum útgáfum goðsagnanna var Hefæstos þó eingetinn af Heru og Afródíta var samkvæmt Hesíódosi dóttir Úranosar og því föðursystir Seifs.

Tilvísanir

Tengt efni

  • Di consentes

Tenglar

  • „Hvar bjuggu rómversku guðirnir? Voru þeir líka á Ólympsfjalli með grísku guðunum?“. Vísindavefurinn.

Tags:

AfródítaApollonAresArtemisAþena (gyðja)BakkusCeresDemetraDíana (gyðja)DíonýsosForngrískaGrikklandGrísk goðafræðiHadesHefæstosHeraHermesJúnóJúpíter (guð)Mars (guð)Merkúríus (guð)MínervaNeptúnus (guð)Plútó (guð)PóseidonRómversk goðafræðiSeifurVenus (gyðja)VulcanusÓlympsfjall

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

1999Sameinuðu þjóðirnarHrossagaukurFæreyjarBahamaeyjarListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999Ísland í seinni heimsstyrjöldinniGuðni Th. JóhannessonAlfræðiritViðreisnReikniritListi yfir íslensk skáld og rithöfundaWikipediaVíetnamstríðiðSérnafnSendiráð ÍslandsTaylor SwiftSalómonseyjarLýsingarorðSæmundur fróði SigfússonLýsingarhátturMarokkóStefán EiríkssonÓmar RagnarssonLandnámsöldVatnajökullAtlantshafsbandalagiðRaufarhöfnKnattspyrnufélagið ÞrótturMaría 1. EnglandsdrottningOrðflokkurForsetakosningar á Íslandi 2024Nafnorð í þýskuGjaldmiðillSíldÍslenska karlalandsliðið í handknattleikLýðræðiFrelsiðSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaRímIngólfur ÞórarinssonForsíðaHlutlægniListi yfir bein í beinagrind mannsinsPíratarÍslenskaSjálfbær þróunSkarð í vörSkyrLandsfjórðungurHeklaSMART-reglanHin íslenska fálkaorðaSeyðisfjörðurFjölmiðlafrumvarpiðEldgosaannáll ÍslandsAlþingiskosningar 2017Miðflokkurinn (Ísland)NafnorðHrafna-Flóki VilgerðarsonInnflytjendur á ÍslandiSteinsteypaAuður Ava ÓlafsdóttirEvrópaN-reglurFyrsta málfræðiritgerðinKristrún FrostadóttirFullveldiSilfurbergForsetakosningar á Íslandi 1980GæsalappirSamband ungra sjálfstæðismannaVistarbandiðEgill Skalla-GrímssonIndónesíaBrúttó, nettó og tara🡆 More