Köln er stærsta borgin í þýska sambandslandinu Norðurrín-Vestfalíu með yfir 1,1 milljón íbúa (2018).
Hún er jafnframt fjórða stærsta borg Þýskalands og ein af fjórum milljónaborgum í Þýskalandi. Hún er hluti af Rín-Ruhr-stórborgarsvæðinu.
Skjaldarmerki Kölnar | Lega Kölnar í Þýskalandi |
---|---|
Upplýsingar | |
Sambandsland: | Norðurrín-Vestfalía |
Flatarmál: | 405,01 km² |
Mannfjöldi: | 1,1 milljón (2018) |
Þéttleiki byggðar: | 2.553/km² |
Hæð yfir sjávarmáli: | 53 m |
Vefsíða: | www.stadt-koeln.de |
Köln liggur við ána Rín nokkuð vestarlega í Þýskalandi og rétt fyrir sunnan Ruhr-héraðið. Hollensku landamærin eru 30 km til vesturs. Næstu stærri borgir eru Leverkusen til norðurs (10 km), Bonn til suðurs (25 km) og Aachen til vesturs (40 km).
Skjaldarmerki Kölnar sýnir ellefu svarta dropa á hvítum grunni. Fyrir ofan eru þrjár gullnar kórónur á rauðum grunni. Droparnir tákna hina heilögu Ursulu sem fórst ásamt tíu öðrum meyjum sem voru drepnar af húnum þegar þær voru á heimleið úr pílagrímsferð til Rómar. Kórónurnar minna á að borgin var áður hluti af þýska ríkinu. Rauði og hvíti liturinn er tákn Hansasambandsins en Köln var stofnfélagi í því sambandi.
Borgin hét á tímum Rómverja Colōnia Claudia Āra Agrippīnēnsium sem var síðar stytt í Colōnia Agrippīna eða bara Colonia og loks á miðöldum í Cöln. Það var ekki fyrr en á síðustu öld að rithátturinn Köln (með k-i) varð ofan á. Á frönsku og ensku heitir borgin Cologne.
Það voru Rómverjar sem stofnuðu borgina Köln og mun það hafa gerst árið 38 f.Kr. Rómverjar og germanski þjóðflokkurinn úbíar bjuggu þar saman í sátt og samlyndi. Borgin dafnaði vel, en hún var landamæraborg í nokkrar aldir. Árið 260 e.Kr. varð Köln að höfuðborg vesturhluta Rómaveldis, til 274. Konstantínus keisari leyfði gyðingum að setjast að í borginni í upphafi 4. aldar og er söfnuður þeirra í borginni elsti gyðingasöfnuður Þýskalands. Á svipuðum tíma var uppgangur kristninnar í Evrópu. Heimildir eru fyrir kristinni kirkju í Köln árið 355, en það væri elsta þekkta kirkja Þýskalands. Í tengslum við kristnu kirkjuna var heilög Úrsúla drepin af húnum, en tákn hennar er í skjaldarmerki borgarinnar enn í dag. Á sama ári réðust frankar á borgina, ræna hana og leggja hana undir sig. En Rómverjar náðu henni aftur á sitt vald. Frankar fluttu vestur og stofnsettu frankaríkið. Þeir hertóku borgina hins vegar á nýjan leik 454 og héldu henni eftir það. Nokkrir frankakonungar sátu gjarnan í Köln. Við Verdun-samningunum 843 var ríkinu skipt og lenti Köln þá í austurríkinu. 882 sigldu víkingar (normannar) upp Rínarfljót alla leið til Kölnar og rændu þeir hana. Frá og með þessum tíma jukust áhrif erkibiskupanna í borginni, en þeir urðu að kjörfurstum í þýska ríkinu. 1164 lét erkibiskupinn Rainald von Dassel flytja líkamsleifar vitringanna þriggja til Kölnar. Borgin verður þar með að mesta pílagrímsstað þýska ríkisins og eina af þremur merkustu pílagrímsstöðum Evrópu, ásamt Róm og Santiago de Compostela á Spáni.
Á 14. öld var Köln meðlimur í Hansasambandinu. 1367 var aðalfundur sambandsins haldinn í ráðhúsinu í Köln. Þar var myndað hernaðarbandalag gegn Valdimar IV Danakonungi. 1388 var gamli háskólinn í Köln stofnaður. Þetta var fjórði háskóli þýska ríkisins og næstelsti í núverandi Þýskalandi. Um þetta leyti var Köln stærsta borgin í ríkinu. Siðaskiptin urðu ekki í Köln. Lúterskir predikarar voru brenndir á báli 1529 og höfðu þeir ekki haft erindi sem erfiði. Hins vegar snerist erkibiskupinn Gebhard Truchsess von Waldburg til lútersku 1582 og var bannfærður fyrir vikið. Málið var tekið fljótt fyrir, því með lúterskum erkibiskupi Köln væru lútersku kjörfurstarnir í ríkinu þá í meirihluta. Slíkt varð að hindra með öllum ráðum. Köln hélst því kaþólsk og kom lítið sem ekkert við sögu í 30 ára stríðinu.
1669 tók Köln í síðasta sinn þátt í Hansadögum í Lübeck. Sambandið leystist upp eftir það. 1701 stofnaði Ítalinn Giovanni Battista Farina fyrstu ilmvatnsfyrirtæki heims. Hann bjó til og seldi Eau de Cologne, sem enn er þekkt vörumerki í dag. 1794 hertók franskur byltingarher borgina. Á næstu árum lögðu Frakkar niður háskólann og lokuðu ýmsum kirkjum og klaustrum. Einnig var erkibiskupsdæmið lagt niður. Íbúar Kölnar fengu franskt ríkisfang. Napoleon sjálfur sótti borgina heim í september 1804, skömmu eftir krýningu sína til keisara. Eftir tap Napoleons við Jena og Auerstedt 1814 yfirgáfu allir Frakkar borgina, sem við það verður þýsk á ný. Vínarfundurinn ákvað að gefa prússum borgina. Á prússneska tímanum var lokið við að reisa dómkirkjuna frægu. Borgin óx og dafnaði. 1850 fór íbúatalan yfir 100 þúsund. 1855 er fyrsta fasta brúin yfir Rín smíðuð síðan 953. Dómkirkjan var loks vígð 1880, 632 árum eftir fyrstu skóflustunguna. 1881 voru gömlu borgarmúrarnir rifnir til að skapa meira byggingapláss.
1914 töpuðu Þjóðverjar heimstyrjöldinni fyrri. 6. desember það ár hertóku Bretar borgina. Köln tilheyrði að vísu Weimar-lýðveldinu, en í borginni var farið eftir breskum lögum. 1924 var Hansaháhýsið reist í borginni en það var þá hæsta háhýsi Evrópu. Bretar hurfu úr borginni 1926. 4. janúar 1933 hittust Hitler og Franz von Papen ríkiskanslari í Köln til að ræða yfirtöku nasista á stjórn landsins. Köln varð fyrir gífurlegum loftásásum í heimstyrjöldinni síðari. Um 95% af miðborginni eyðilagðist. 6. mars hertóku Bandaríkjamenn borgina nær átakalaust, en áður höfðu nasistar sprengt brýrnar yfir Rín. Borgin var þá nær mannlaus. 1963 heimsækir John F. Kennedy Bandaríkjaforseti borgina.
Aðalknattspyrnufélag borgarinnar er 1. FC Köln. Það hefur þrisvar orðið þýskur meistari, síðast 1978, og fjórum sinnum bikarmeistari, síðast 1983.
Maraþonhlaup fer fram í borginni árlega á haustin. Hlaupið var fyrst haldið 1997 og er í tengslum við það einnig hlaupið Maraþon á línuskautum.
Hjólreiðakeppnin Rund um Köln er íþróttaviðburður sem haldinn hefur verið frá 1908. Þar með er hjólreiðakeppnin sú næstelsta innanborgar í Þýskalandi (á eftir Rund um Berlin). Hjólað er í kringum og í gegnum borgina og er nær öll borgin hertekin af hjólreiðafólki í heilan dag meðan keppnin stendur yfir.
Köln viðheldur vinabæjatengslum við eftirfarandi borgir:
|
Fyrirmynd greinarinnar var „Köln“ á þýsku útgáfu Wiki. Sótt apríl 2010.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Köln, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.