Samkynhneigð

Samkynhneigð nefnist það þegar einstaklingur laðast tilfinningalega og/eða kynferðislega aðallega að einstaklingum af sama kyni og hann sjálfur.

Samkynhneigðir karlmenn eru oft kallaðir hommar, samkynhneigðar konur lesbíur.

Samkynhneigð
Hér sést forngrikkinn Saffó syngja fyrir Hómer, umkringd konum. Saffó var talin samkynhneigð og bjó í eynni Lesbos, þaðan er orðið lesbía komið. Málverkið er frá 1824.
Samkynhneigð
Édouard-Henri Avril, 1860

Samkynhneigð er ásamt tvíkynhneigð og gagnkynhneigð ein af þremur helstu flokkum á kynhneigðarskalanum. Ekki er vitað hvað veldur mismunandi kynhneigð í mönnum, en talið er að það orsakist af samspili erfðaþátta, hormóna, og umhverfisþátta og að fólk hafi ekki val um það. Vísbendingar eru um að umhverfi í móðurkviði ásamt erfðaþáttum geti spilað inn í. Vísbendingar benda ekki til þess að kynhneigð ráðist af uppeldi. Gagnkynhneigð er algengasta kynhneigðin, en mismunandi kynhneigðir eru nú taldar vera eðlilegur breytileiki innan margra dýrategunda. Sálfræðimeðferðir og önnur inngrip hafa ekki sýnt að þau geti haft áhrif á kynhneigð.

Í kringum 3,5% af fullorðnum skilgreina sig sem sam- eða tvíkynhneigð samkvæmt könnun sem gerð var í Bandaríkjunum 2011. Á milli 2% og 11% af fullorðnum hafa átt í einhverju kynferðislegu sambandi við einstakling af sama kyni. Í breskri könnun frá 2010 sögðust 95% Breta skilgreina sig sem gagnkynhneigða, 1,5% sem sam- eða tvíkynhneigða, og 3,5% voru óvissir eða svöruðu ekki spurningunni.

Samkynhneigð til forna

Samkynhneigð 
Lesbíur (Bandaríkin, 2013).

Viðhorf til samkynhneigðar hafa verið af ýmsu tagi í gegnum tíðina, allt frá algjöru samþykki samfélagsins til dauðarefsingar.

Hugtakið hefur heldur ekki alltaf haft sömu merkingu, og núverandi flokkunarkerfi passar oft hreinlega ekki við þá flokkun sem önnur samfélög hafa notað. Núverandi flokkun byggir að miklu leyti á tilfinningum einstaklingsins og hverjum hann laðast að, en í ýmsum samfélögum hefur sú flokkun ekki verið til og fólk þá flokkað eftir því með hverjum það stundar kynlíf eða hvaða hlutverki það gegnir í kynlífi.

Tekið var saman yfirlit yfir helstu menningarheima sem voru uppi fyrir tíma iðnbyltingarinnar. Af 42 menningarheimum voru 41% eindregið á móti samkynhneigð, hjá 21% var samkynhneigð tekin í sátt eða hunsuð, og hjá 12% var hugtakið ekki til. Í annarri samantekt af 70 menningarheimum var samkynhneigð til staðar hjá 41%, en hjá 59% var samkynhneigð sjaldgæf eða ekki til staðar.

Í þeim menningarheimum sem byggja á Abrahamstrú (Kristni, Íslam, Gyðingdómur) hefur verið harkaleg andstaða við endaþarmsmök og þau talin siðferðisbrot og brot á lögmálum náttúrunnar. Andstaða við endaþarmsmök var þó til staðar á undan Kristninni og var líka algeng í Grikklandi hinu forna. Platón kallaði þau ónáttúruleg.

Í Grikklandi hinu forna var kynlíf milli karlmanns og drengs algengt og þótti gegna góðu hlutverki í uppeldi unglinga. Gerður var greinarmunur á samkynja kynlífi og samböndum, rómantísk sambönd voru litin hornauga og vanalega ekki leyfð. Litið var niður á þá sem létu ríða sér (sér í lagi eftir unglingsaldur), en það sama átti ekki við um þá sem riðu. Flokkun Grikkja á samkynhneigð er því ekki beint sambærileg okkar. Lítið er vitað um samkynhneigðar konur í Grikklandi hinu forna, en ljóðskáldið Saffó frá eyjunni Lesbos skrifaði ástríðufull ljóð til bæði karla og kvenna og því var á 19. öld byrjað að nota nafn hennar og stað til að lýsa samkynhneigð í konum, lesbía og saffískt.

Hjá frumbyggjum Ameríku fyrir nýlendutímann var samkynhneigð í allt öðrum flokki sem er ekki sambærileg núverandi flokkun. Hjá þeim voru sumir taldir búa yfir tvöföldum anda og uppfylltu hlutverk nokkurs konar þriðja kyns í samfélaginu. Hlutverkið var að einhverju leyti trúarlegt og var hluti af trúarlegum athöfnum.

Lengst fram eftir var samkynhneigð litin hornauga á Íslandi. Orðin ergi og kynvilla voru notuð yfir samkynhneigð karlmanna, en þau þykja afar úrelt í dag.

Kynhneigð

Fólk upplifir kynhneigð á mismunandi máta. Þar að auki eru skilgreiningar og flokkanir hvorki þær sömu milli samfélaga né milli einstaklinga. Gróflega lýsir kynhneigð því hvaða flokki (karl eða kona) af mannfólki einhver laðast tilfinningalega og/eða kynferðislega að.

Oft haldast tilfinningaleg og kynferðisleg aðlöðun í hendur, en það þarf ekki að vera svo.

Nokkur fjölbreytileiki er í birtingarmyndum kynhneigðar og kynhegðunar fólks og hafa sumir lagt til að þetta megi setja fram á skala og lýsa kynhneigð frá gangkynhneigð til samkynhneigðar. Þekktasti skalinn er Kinsey-skalinn sem líffræðingurinn Alfreð Kinsey setti fram árið 1948 í riti sýnu þar sem hann lýsti kynhegðun almennings. Ritið olli nokkurri hneysklun. Skalar sem þessi eru að miklu leyti einföldun, en þykja oft þægilegir til flokkunar:

Stig á Kinsey-skalanum Lýsing
0 Eingöngu gagnkynhneigð
1 Aðallega gagnkynhneigð, smá samkynhneigð
2 Aðallega gagnkynhneigð, en töluverð samkynhneigð
3 Jöfn gagnkynhneigð og samkynhneigð
4 Aðallega samkynhneigð, en töluverð gagnkynhneigð
5 Aðallega samkynhneigð, smá gagnkynhneigð
6 Eingöngu samkynhneigð
X Engin saga um kynferðisleg sambönd,
engin viðbrögð við kynferðislegum spurningum

Sumir upplifa kynhneigð sem óhaggandi fyrirbæri, aðrir upplifa kynhneigð sem breytilegan hlut.

Að koma út úr skápnum

Samkynhneigð 
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, var fyrsti þjóðarleiðtoginn sem lýsti opinberlega yfir samkynhneigð sinni.
Samkynhneigð 
Tim Cook, forstjóri Apple, kom opinberlega út sem samkynhneigður árið 2014.

Gagnkynhneigð er algengasta kynhneigðin og því er oft reiknað með að einstaklingur sé gagnkynhneigður ef annað er ekki tekið fram. Það að gera öðrum grein fyrir kynhneigð sinni eða kynvitund er oft kallað að koma út úr skápnum eða að koma út. Það þarf ekki að vera gert með nokkurri yfirlýsingu heldur einungis með því að hætta að vera í felum með málefnið. Það að koma út er persónulegt ferli sem gerist á mismunandi tíma eftir fólki, þar sem upplifanir og tilfinningar fólks eru mismunandi. Eftir að einstaklingur áttar sig á því að hann laðist að einhverju leiti að sama kyni getur það tekið tíma fyrir sjálfsmynd hans að aðlagast því og fyrir viðkomandi að vera reiðubúinn að ganga á móti væntingum þess samfélags sem hann býr í.

Réttindabarátta

Undanfarna áratugi hefur réttindabarátta samkynhneigðra tekið stakkaskiptum. Í Bandaríkjunum þykir réttindabaráttan hafa byrjað af alvöru þegar kom til kasta milli mótmælenda og lögreglu við barinn Stonewall í New York borg árið 1969 og með tilkomu fyrstu kröfugöngunnar (gleðigöngunnar) árið þar á eftir. Þegar HIV og eyðni-faraldurinn geisaði um miðjan 9. áratug síðustu aldar meðal samkynhneigðra manna leiddi það til mikillar andstöðu frá almenningi og var réttindabaráttan lengi að hrista af sér mótlætið.

Á Íslandi var það Hörður Torfason sem var fyrstur til að lýsa opinberlega yfir samkynhneigð sinni árið 1975. Hann var þegar þjóðþekkt tónskáld. Í kjölfarið varð hann fyrir miklum fordómum og fluttist brott af Íslandi um tíma.

Árið 2010 voru samkynja hjónabönd lögleidd af íslenska ríkinu. Staða hinsegin fólks á Íslandi er nokkuð góð, sér í lagi samanborið við önnur lönd, og njóta samkynhneigðir fullra lagalegra réttinda. Félagslegt samþykki hefur stóraukist á örfáum áratugum. Þó eru enn til staðar fordómar í samfélaginu.

Félagssamtök á Íslandi

Tengt efni

Tenglar

Samkynhneigð 
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu

Íslensk félög, hópar og samtök

Alþjóðleg samtök

Tilvísanir

Tags:

Samkynhneigð til fornaSamkynhneigð KynhneigðSamkynhneigð Að koma út úr skápnumSamkynhneigð RéttindabaráttaSamkynhneigð Félagssamtök á ÍslandiSamkynhneigð Tengt efniSamkynhneigð TenglarSamkynhneigð TilvísanirSamkynhneigðKarlKyn (líffræði)Tilfinning

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Ólafur Darri ÓlafssonAriel HenryGísla saga SúrssonarÞjóðminjasafn ÍslandsAlmenna persónuverndarreglugerðinBarnavinafélagið SumargjöfKalda stríðiðMeðalhæð manna eftir löndumJohn F. KennedyHelsingiListi yfir þjóðvegi á ÍslandiFornafnSveitarfélagið ÁrborgGeorges PompidouÍslenskt mannanafnFáskrúðsfjörðurSvampur SveinssonÁrbærVífilsstaðirSumardagurinn fyrstiGrameðlaHin íslenska fálkaorðaPylsaLandvætturLánasjóður íslenskra námsmannaVopnafjarðarhreppurThe Moody BluesListeriaKnattspyrnaPatricia HearstXHTMLKnattspyrnufélagið VíðirBríet HéðinsdóttirHallgrímur PéturssonMerik TadrosÓfærðKeila (rúmfræði)Jörundur hundadagakonungurFramsöguhátturLögbundnir frídagar á ÍslandiSauðárkrókurÍslenskar mállýskurForsetakosningar á Íslandi 2004Wayback MachineMicrosoft WindowsGregoríska tímataliðFnjóskadalurNæfurholtEinar JónssonBaldur ÞórhallssonVerg landsframleiðsla1974MynsturSkuldabréfVestfirðirFrakklanddzfvtNáttúrlegar tölurKaupmannahöfnSýslur ÍslandsBoðorðin tíuKváradagurGuðlaugur ÞorvaldssonAgnes MagnúsdóttirTaívanKnattspyrnufélagið FramJohannes VermeerÓslóPáll ÓskarLeikurEvrópska efnahagssvæðiðMarokkó🡆 More