Skjaldarmerki er einkennismerki sem sett er saman á ákveðinn hátt (samkvæmt reglum skjaldarmerkjafræðinnar) og er í evrópskri hefð einkum tengt við aðalstitla.
Uppruna skjaldarmerkja má rekja til riddara á miðöldum sem gerðu skjöld sinn og herklæði auðþekkjanleg á vígvellinum svo þeir þekktust hvort sem væri af vinum og óvinum. Í Englandi og Skotlandi er notkun skjaldarmerkja bundin við einstaklinga og erfist líkt og hver önnur eign, venjulega til elsta barns. Í sumum öðrum löndum er notkun skjaldarmerkja bundin við fjölskyldur.
Grunnur allra skjaldarmerkja er skjöldurinn sem getur verið af nokkrum gerðum. Skjaldarmerkjalitirnir raðast niður á grunnflötinn (feldinn) eftir ákveðnum reglum eftir því mynstri sem er á skildinum. Sjálft merkið (ef notað er merki) er síðan teiknað á skjöldinn. Talað er um höfuð, fót og skjaldarrönd þegar skjaldarmerkinu er lýst. Í sumum skjaldarmerkjum eru hlutir utan við sjálft skjaldarmerkið hlutar þess, svo sem skjaldberar (líkt og landvættirnir í skjaldarmerki Íslands), hjálmur með hjálmskrauti og kjörorð á borða fyrir neðan.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Skjaldarmerki, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.