Gerlar

Gerlar eða bakteríur (fræðiheiti: Bacteria) eru stór og mikilvægur hópur dreifkjörnunga.

Þeir eru yfirleitt flokkaðir sem sérstakt ríki aðgreint frá ríkjum forngerla og fjórum ríkjum heilkjörnunga eða sem sérstakt yfirríki eða lén. Þar til á 9. áratug 20. aldar voru gerlar og forngerlar flokkaðir saman í ríkið Monera en á grundvelli erfðafræðirannsókna eru þessir tveir hópar nú aðgreindir í tvö ríki.

Gerlar
Escherichia coli stækkaðar 25.000 sinnum
Escherichia coli stækkaðar 25.000 sinnum
Vísindaleg flokkun
Ríki: Bacteria
Fylkingar
  • Acidobacteria
  • Actinobacteria Cavalier-Smith 2002
  • Aquificae Reysenbach 2001
  • Bacteroidetes
  • Caldiserica Mori et al. 2009
  • Chlamydiae
  • Chlorobi
  • Chloroflexi Garrity og Holt 2001
  • Chrysiogenetes Garrity og Holt 2001
  • Blágerlar (Cyanobacteria Cavalier-Smith 2002)
  • Deferribacteres Garrity og Holt 2001
  • Deinococcus-Thermus
  • Dictyoglomi
  • Fibrobacteres
  • Firmicutes Gibbons og Murray 1978
  • Fusobacteria
  • Gemmatimonadetes Zhang et al. 2003
  • Verrucomicrobia
  • Nitrospirae
  • Planctomycetes
  • Proteobacteria Cavalier-Smith 2002
  • Spirochaete
  • Thermodesulfobacteria
  • Thermomicrobia
  • Thermotogae
  • Verrucomicrobia

Gerlar eru algengustu lífverur sem til eru og finnast nánast alls staðar í náttúrunni, í jarðvegi, vatni og lofti, auk þess sem þeir lifa í sambýli við aðrar lífverur og eru í mörgum tilfellum nauðsynlegir líkamsstarfssemi lífveranna. Nokkrir gerlar valda þó sýkingum og teljast því sýklar, en sýklalyf eru notuð til að vinna á þeim.

Formgerð

Gerlar 
Ýmsar formgerðir finnast meðal gerla.

Dæmigerð gerilfruma er um 0,5 til 1,0 µm að þvermáli og um 0,5 til 5,0 µm að lengd. Til samanburðar eru háræðar vanalega 5-10 µm að þvermáli. Einstaka tegundir baktería geta þó vikið töluvert frá þessu stærðarbili. Þannig verða til dæmis Thiomargarita namibiensis og Epulopiscium fishelsoni allt að hálfur millimetri (500 µm) að lengd og eru því sýnilegir berum augum. Smæstu gerlarnir eru um 0,2 míkrómetrar að þvermáli.

Algengustu formgerðir gerla eru annars vegar kúlulögun, en hana hafa svokallaðir kúlugerlar eða kokkar (dregið af gríska orðinu κόκκος sem þýðir korn), og hins vegar ílöng gerð, en hana hafa svokallaðir stafgerlar eða bacillusar (dregið af latneska orðinu baculus sem þýðir stafur eða prik).

Tilvísanir

Tags:

1981-199020. öldinDreifkjörnungarErfðafræðiForngerlarFræðiheitiHeilkjörnungarLén (flokkunarfræði)Ríki (flokkunarfræði)

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Listi yfir skráð trú- og lífsskoðunarfélög á ÍslandiFiann Paul24. aprílKeilirÁhrifavaldurÓpersónuleg sögnAndri Snær MagnasonKviðdómurTaekwondoHvalveiðarRussell-þversögnSálin hans Jóns míns (hljómsveit)Listi yfir persónur í NjáluListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Jóhanna SigurðardóttirFrosinnÍslenska karlalandsliðið í knattspyrnuTom BradyGuðmundar- og GeirfinnsmáliðÁstralíaSpendýr23. aprílIndónesía1. maíBesti flokkurinnEinar Sigurðsson í EydölumFallorðGoðafossListi yfir íslenska sjónvarpsþættiForsetakosningar á Íslandi 1980Forseti ÍslandsPáll ÓskarJárnSveinn BjörnssonHarpa (mánuður)Spænska veikinForsetakosningar á Íslandi 1996Idol (Ísland)HvítasunnudagurPersónufornafnKúrdarFyrri heimsstyrjöldinLangisjórGæsalappirSödertäljeSigríður Hrund PétursdóttirFjárhættuspilMaría meyMannslíkaminnMorð á ÍslandiMannakornFimleikafélag HafnarfjarðarLatibærME-sjúkdómurRíkisstjórn ÍslandsÁbendingarfornafnYrsa SigurðardóttirPierre-Simon LaplaceRíkissjóður ÍslandsMaríuhöfnFornafnPragForsetakosningar á Íslandi 2020JarðgasEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024GoogleFlatarmálVÞorskastríðinAlþingiskosningar 2021ÍsafjörðurListi yfir úrslit MORFÍSÍsöldBjarkey GunnarsdóttirVatnajökullÞýska🡆 More