Vilborg Yrsa Sigurðardóttir (f.
24. ágúst 1963 í Reykjavík) er íslenskur rithöfundur og verkfræðingur. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1983, lauk BS gráðu í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1988 og MS prófi í sömu grein frá Concordia University í Montreal í Kanada árið 1997.
Rithöfundaferill Yrsu hófst árið 1998 er hún sendi frá sér sína fyrstu bók sem, barnabókina, Þar lágu Danir í því. Í kjölfarið komu út nokkrar barnabækur til viðbótar en árið 2005 kom fyrsta bók Yrsu ætluð fullorðnum, spennusagan Þriðja táknið. Hún hlaut mjög góðar viðtökur og bókin hefur verið þýdd á hátt í 30 tungumál og gefin út í yfir 100 löndum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Yrsa Sigurðardóttir, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.