23. September: Dagsetning

23.

ÁgúSeptemberOkt
SuÞrMiFiLa
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
2024
Allir dagar

september er 266. dagur ársins (267. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 99 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1241 - Snorri Sturluson, skáld, rithöfundur, goðorðsmaður og lögsögumaður, var veginn í Reykholti í Borgarfirði.
  • 1459 - Fyrsta orrusta Rósastríðanna í Englandi, bardaginn á Blore Heath, átti sér stað.
  • 1529 - Tyrkir settust um Vínarborg.
  • 1608 - Umsátur pólska hersins um Þrenningarklaustur heilags Sergíusar hófst.
  • 1846 - Plánetan Neptúnus var uppgötvuð.
  • 1906 - Hornsteinn var lagður að húsi landsbókasafnsins á Arnarhólstúni í Reykjavík.
  • 1906 - Elsta heildverslun Íslands tók til starfa, heildverslun Ó. Johnson og Kaaber.
  • 1922 - Oddur Oddsson, 74 ára og Oddný Hannesdóttir, níræð, voru gefin saman í Reykjavík og varð hún þar með elsta brúður landsins.
  • 1932 - Ibn Sád sameinaði ríkin Nejd og Hejaz og bjó til Sádí-Arabíu.
  • 1941 - Snorrahátíð haldin í hátíðarsal Háskóla Íslands í minningu 700 ára dánarafmælis Snorra Sturlusonar.
  • 1943 - 270 kjósendur afhentu Alþingi áskorun um að ganga ekki frá sambandsslitum við Dani eins og á stæði.
  • 1963 - Eggert Gíslason skipstjóri á Sigurpáli GK, setti met í síldarafla. Á einu sumri hafði hann aflað 31.439 mál og tunnur.
  • 1963 - Badmintondeild KR var stofnuð.
  • 1973 - Yfir Suðvesturland gengu leifar fellibylsins Ellenar og olli veðrið miklu tjóni á húsum, bátum og bílum. Í Reykjavík náði vindhraði 200 kílómetrum á klukkustund.
  • 1981 - Hornsteinn var lagður að Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík.
  • 1982 - Amine Gemayel var kosinn forseti Líbanon.
  • 1983 - Gulf Air-flug 771 hrapaði í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eftir að sprengja sprakk í farangursrými. 117 létust.
  • 1985 - Blaðamaðurinn Giancarlo Siani var myrtur af glæpasamtökunum Camorra.
  • 1988 - Kvikmyndin Í þokumistrinu var frumsýnd.
  • 1989 - Borgarastyrjöldin í Líbanon: Vopnahlé tók gildi.
  • 1993 - Nýr flugvöllur var tekinn í notkun á Egilsstöðum. Flugbrautin er 2000 metra löng og kostaði völlurinn 790 milljónir króna.
  • 1994 - Á Öxnadalsheiði var afhjúpað minnismerki í tilefni af því að bundið slitlag var komið á allan þjóðveginn á milli Reykjavíkur og Akureyrar.
  • 1995 - Argentínumaðurinn Bill Gaede var handtekinn í Arisóna og kærður fyrir iðnaðarnjósnir.
  • 1998 - Íslenska kvikmyndin Dansinn var frumsýnd.
  • 2002 - Banni við einnota drykkjarumbúðum var aflétt í Danmörku.
  • 2003 - Bandaríska sjónvarpsþáttaröðin One Tree Hill hóf göngu sína á The WB Television Network.
  • 2005 - Bandaríska kvikmyndin Líkbrúðurin var frumsýnd.
  • 2008 - 11 létust í skotárás á skóla í Kauhajoki í Finnlandi.
  • 2009 - Ræningjar rændu peningageymslu öryggisfyrirtækisins G4S í Västberga syðst í Stokkhólmi. Ræningjarnir notuðu meðal annars bæði þyrlu og sprengiefni.
  • 2019 - Rússland lögfesti Parísarsamkomulagið.


Fædd

Dáin

Tags:

Gregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

ÍslandsbankiHvíta-RússlandRómarganganÆðarfuglAkureyriKnattspyrnaRíkissjóður ÍslandsLega NordLatibærGarðabærEignarfornafnMeðalhæð manna eftir löndumFjárhættuspilAuðunn BlöndalStuðmennNorðurmýriLögreglan á ÍslandiKynþáttahaturÞingkosningar í Bretlandi 1997BandaríkinTitanicCristiano RonaldoBretlandKonungur ljónannaKosningarétturSiglufjörðurVísindaleg flokkunEvrópska efnahagssvæðiðFramsóknarflokkurinnSovétríkinSjómílaÞorskurÍslenski hesturinnJónas HallgrímssonEmil HallfreðssonEldgosaannáll ÍslandsHelgi BjörnssonDýrMaóismiEinar Már GuðmundssonSkjaldarmerki ÍslandsForsetakosningar á Íslandi 2016ÍsafjörðurTyrkjarániðÞrymskviðaSimpson-fjölskyldan, þáttaröð 4RisaeðlurSnæfellsjökullBostonJarðskjálftar á ÍslandiJóhann JóhannssonÓlafur Ragnar GrímssonTáknJóhann G. JóhannssonAlfræðiritBacillus cereusSteypireyðurSaga ÍslandsÞróunarkenning DarwinsStýrikerfiEldfellFriðrik DórFacebookSólstafir (hljómsveit)SkógafossJöklar á ÍslandiKrókódíllSnorri SturlusonIngimar EydalHallgerður HöskuldsdóttirHowlandeyjaÍslandTahítíBerlínarmúrinnÞingvellirÞjóðleikhúsiðParísTrúarbrögð🡆 More