Heims um ból er frumortur jólasálmur eftir Sveinbjörn Egilsson.
Heims um ból er þó oftast sunginn við sama lag og hið fræga jólakvæði Stille Nacht! Heilige Nacht! og því hefur sá misskilningur komið upp að Heims um ból sé þýðing, en svo er ekki. Hinn upprunalegi Stille Nacht er eftir séra Joseph Mohr og lagið eftir organistann Franz Gruber og var hvortveggja samið árið 1818. Matthías Jochumsson þýddi sálminn á íslensku og heitir þýðing hans: Hljóða nótt, heilaga nótt. En kvæði Sveinbjörns er þó lang oftast sungið við lag Franz Gruber eins og áður sagði.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Heims um ból, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.