Sjálfstætt Fólk

Sjálfstætt fólk er skáldsaga eftir Halldór Laxness sem var gefin út í fjórum bindum á árunum 1933-1935: Landnámsmaður Íslands, Skuldlaust bú, Erfiðir tímar og Veltiár.

Seinna meir voru bindin sameinuð í eina bók og er sú bók nefnd Sjálfstætt fólk. Bókin er ein þekktasta íslenska skáldsagan, hún er kennd á framhaldsskólastigi á Íslandi. Sagan er jafnan talin tilheyra félagslegri raunsæisstefnu í bókmenntafræðum og má ætla að hún gerist á árunum 1899-1921 á Íslandi.

Sjálfstætt Fólk
Bókarkápa Sjálfstæðs fólks.

Söguþráður

Sagan fjallar um Guðbjart Jónsson, Bjart í Sumarhúsum, fjölskyldu hans og örlög þeirra. Sagan hefst þó á frásögn um Kólumkilla. Guðbjartur vann í 18 ár fyrir hreppstjórann í sveitinni meðal annars sem smali, en þá hafði hann loks safnað nægu fé til þess að kaupa sér sitt eigið land. Hann tók við landi er hafði verið í eyði sökum reimleika. Gunnvör og Kólumkilli voru draugar og höfðu tekið sér þar bólfestu og rekið fyrrum ábúendur í burtu. Bjartur trúði ekki á drauga og lét það ekki aftra sér frá því að hefja búskap í Veturhúsum. Hann breytti nafninu á bænum í Sumarhús og reisti nýtt býli. Hann giftist stuttu síðar Rósu, sem lést af barnsförum ári síðar. Bjartur var úti í leit að á þegar Rósa lést. Ásta Sóllilja, dóttir Rósu, rétt lifði af. Bjartur var mikill kvæðamaður og lagði ekki mikið í nútímakveðskap, heldur vildi rím og hefðbundna bragarhætti. Síðari hluti sögunnar fjallar að mestu um Ástu Sóllilju.

Helstu sögupersónur

En auk þess kemur móðir Finnu, Hallbera, amma Guðbjartssonanna mikið við sögu.

Eitt og annað

  • Sænski leikstjórin Ingmar Bergman hafði áhuga á að kvikmynda verk upp úr Sjálfstæðu fólki. Þannig segir frá í Regn í rykið eftir Thor Vilhjálmsson, sem tók viðtal við hann í Malmö á sjötta áratug 20. aldar: „Þó lýsir hann [Ingmar Bergman] áhuga sínum á Sjálfstæðu fólki eftir Laxness. Árum saman, segir hann: hefur mig langað til að gera kvikmynd byggða á fyrri hluta verksins. En það vantar peninga. Ég hef lengi reynt að fá peninga til þess en ekki tekist, sagði Bergman“.
  • Talið er að móðir Finnu eigi sér fyrirmynd í ömmu Halldórs, en persónur líkar ömmunni eru tíðar í verkum hans.[heimild vantar]

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Sjálfstætt Fólk SöguþráðurSjálfstætt Fólk Helstu sögupersónurSjálfstætt Fólk Eitt og annaðSjálfstætt Fólk TilvísanirSjálfstætt Fólk TenglarSjálfstætt Fólk1899192119331935BókmenntafræðiHalldór Laxness

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Lars PetterssonHríseyStjórnarráð ÍslandsIndianaKartaflaKærleiksreglanWikiPedro 1. BrasilíukeisariListi yfir skráð trú- og lífsskoðunarfélög á ÍslandiBjörn Sv. BjörnssonSætistalaLokbráSpánnFæreyjarBelgíaHöfuðbókJúlíus CaesarNürnberg-réttarhöldinListi yfir fugla ÍslandsKjósarhreppurHlíðarfjallHalla TómasdóttirJón GnarrÁramótUngmennafélag GrindavíkurSkotlandKaleoFæðukeðjaParísLandafræði ÍslandsArnaldur IndriðasonKynfrumaÁratugurBessastaðirNáttúruvalDagur jarðarRúnar RúnarssonÞorgrímur ÞráinssonSumarólympíuleikarnir 1920Hómer SimpsonUppstigningardagurHandknattleiksfélag KópavogsÁtökin á Norður-ÍrlandiHáskólinn í ReykjavíkKúrdistanRáðherraráð EvrópusambandsinsÞorsteinn GylfasonCarles PuigdemontMínus (hljómsveit)BerserkjasveppurMorfísViðtengingarhátturEiffelturninnMannakornMiðmyndHallgerður HöskuldsdóttirHraunBrekkuskóliListi yfir morð á Íslandi frá 1874–1969Listi yfir íslensk skáld og rithöfundaNeskaupstaðurBrennu-Njáls sagaSkörungurRímStúdentaráð Háskóla ÍslandsBragfræðiSpaugstofanNjálsbrennaHamskiptinSamfylkinginSnjóflóð á ÍslandiSpaceXFrosinnÍslenskur fjárhundurNorræna tímatalið🡆 More