Forsetakosningar Á Íslandi 2024

Forsetakosningar á Íslandi 2024 munu fara fram 1.

júní">1. júní 2024. Sitjandi forseti, Guðni Th. Jóhannesson, sem setið hefur tvö kjörtímabil sem forseti Íslands gaf ekki kost á sér til endurkjörs og er því ljóst að nýr forseti verður kjörinn, sá sjöundi frá stofnun lýðveldisins.

Framkvæmd

Samkvæmt stjórnarskrá Íslands er forseti er kjörinn í beinum leynilegum kosningum af þeim sem kosningarrétt hafa í alþingiskosningum. Sá sem fær flest atkvæði í kosningunum telst rétt kjörinn forseti.

Þessar forsetakosningar eru þær fyrstu sem fara fram samkvæmt nýjum kosningalögum sem samþykkt voru árið 2021 og gilda um allar kosningar á Íslandi, en áður giltu sérstök lög um forsetakosningar. Helsta nýbreytnin í nýju kosningalögunum eru að forsetakosningar fara framvegis fram fyrsta laugardag í júní, en þó ekki ef það er laugardagurinn fyrir hvítasunnudag, þá skulu kosningarnar fara fram einni viku síðar, en samkvæmt eldri lögum var miðað við seinasta laugardag í júní. Framboðsfrestur er til hádegis 26. apríl og skal kjörskrá einnig liggja fyrir þann sama dag. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 2. maí hjá sýslumönnum.

Til að vera í framboði þarf forsetaefni að skila inn að lágmarki 1500 en að hámarki 3000 meðmælum frá kjósendum sem þurfa að koma úr öllum landsfjórðungum í samræmi við hlutfallslega skiptingu kjósenda á milli þeirra. Í forsetakosningunum 2020 var í fyrsta skipti leyft með sérstakri lagabreytingu að meðmælum væri safnað rafrænt en það var gert sérstaklega með vísan til heimsfaraldurs COVID-19. Með nýju kosningalögunum frá 2021 var þó gert ráð fyrir að rafræn söfnun meðmæla yrði í boði til frambúðar. Opnað var fyrir rafræna söfnun meðmæla á vefnum Island.is þann 1. mars 2024. Þar geta væntanlegir frambjóðendur stofnað meðmælasöfnun og kjósendur geta skráð meðmæli með frambjóðendum með rafrænum skilríkjum sínum. Mun fleiri einstaklingar stofnuðu meðmælasöfnun með þessum hætti en þeir sem gáfu út nokkra opinbera tilkynningu um framboð.

Frambjóðendur

Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti Íslands, tilkynnti í nýársávarpi sínu 1. janúar 2024 að hann yrði ekki í framboði eftir átta ára setu í embættinu. Nokkrir frambjóðendur komu fram fljótlega eftir það en flest framboðin komu þó fram eftir miðjan marsmánuð.

Hér að neðan er fjallað um framboð þeirra sem tilkynnt hafa sérstaklega um framboð sitt þannig að um það hafi verið fjallað af fjölmiðlum. Auk neðangreindra hafa fjölmargir stofnað meðmælasöfnun á vefnum Island.is án þess að gera nokkuð annað til að kynna framboð sitt. Í einhverjum tilfellum stofnuðu einstaklingar slíka meðmælasöfnun fyrir mistök. Þann 18. apríl 2024 voru 82 einstaklingar með virka rafræna meðmælasöfnun og enn fleiri höfðu áður verið með slíka söfnun í gangi en lokað henni.

Skiluðu inn framboðum

Eftirtaldir 13 frambjóðendur skiluðu inn framboðum til landskjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests á hádegi þann 26. apríl. Landskjörstjórn úrskurðar um gildi framboða í síðasta lagi 2. maí.

Frambjóðandi Titill Lýst yfir framboði Heimildir
Arnar Þór Jónsson Hæstaréttarlögmaður 3. janúar 2024
Ásdís Rán Gunnarsdóttir Fyrirsæta 3. janúar 2024
Ástþór Magnússon Viðskiptamaður og stofnandi Friðar 2000 3. janúar 2024
Baldur Þórhallsson Prófessor í stjórnmálafræði 20. mars 2024
Eiríkur Ingi Jóhannsson Sjómaður 6. apríl 2024
Halla Hrund Logadóttir Orkumálastjóri og aðjúnkt við Harvard-háskóla 7. apríl 2024
Halla Tómasdóttir Rekstrarhagfræðingur 17. mars 2024
Helga Þórisdóttir Forstjóri Persónuverndar 27. mars 2024
Jón Gnarr Leikari og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur 2. apríl 2024
Katrín Jakobsdóttir Forsætisráðherra Íslands 5. apríl 2024
Kári Vilmundarson Hansen
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Leikkona 4. apríl 2024
Viktor Traustason Atvinnulaus

Aflýst framboð

Frambjóðandi Titill Lýsti yfir framboði Hætti við framboð Upplýsingar Heimildir
Agnieszka Sokolowska Verkefnastjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og sjálfstætt starfandi túlkur 1. mars 2024 Skilaði ekki inn framboði
Angela Snæfellsjökuls Rawlings Listamaður 21. mars 2024 Skilaði ekki inn framboði.
Axel Pétur Axelsson Hlaðvarpsstjórnandi og samsæriskenningarmaður 31. desember 2023 Skilaði ekki inn framboði
Búi Baldvinsson Kvikmyndagerðarmaður 2. mars 2024 8. mars 2024 Búi tilkynnti framboð sitt á Facebook síðu sinni 2. mars en tók færsluna út og fjarlægði meðmælasöfnun sína 8. mars.
Sigríður Hrund Pétursdóttir Fjárfestir og fyrrverandi formaður Félags kvenna í atvinnulífinu 12. janúar 2024 26. apríl 2024 Tilkynnti á lokadegi framboðsfrests að hún hefði fallið frá framboði.
Guðbergur Guðbergsson Fasteignasali 22. mars 2024 Skilaði ekki inn framboði.
Guðmundur Felix Grétarsson Rafveituvirki 3. apríl 2024 Skilaði ekki inn framboði.
Guðni Þór Þránd­ar­son Efnafræðingur 21. mars 2024 Skilaði ekki inn framboði
Halldór Laxness Halldórsson Skemmtikraftur 1. janúar 2024 6. janúar 2024 Þann 2. janúar ákvað Halldór að skilyrða framboðið sitt við eldgos á Reykjanesi þann 6. janúar 2024, það er að segja að ef að gjósa myndi þann dag, myndi hann fara í framboð, sem gerðist ekki.
Húni Húnfjörð Viðskiptafræðingur 2. mars 2024 Skilaði ekki inn framboði
Margrét Friðriksdóttir Fjölmiðlakona 22. mars 2024 28. mars 2024 Margrét stofnaði meðmælalista 22. mars en 28. mars tók hún meðmælalistann til baka vegna fjölda frambjóðanda og vegna þess að það var aldrei nein alvara með framboði hennar.
Snorri Óttarsson Húsasmiður 4. mars 2024 3. apríl 2024 Snorri stofnaði til meðmælasöfnunar 4. mars en fjarlægði hana 3. apríl.
Tómas Logi Hallgrímsson Björgunarsveitarmaður 5. janúar 2024 20. mars 2024 20. mars tók Tómas Logi framboð sitt til baka vegna fárra undirskrifta og lýsti í kjölfarið yfir stuðningi við framboð Baldurs Þórhallssonar.

Mögulegir frambjóðendur

Ýmis önnur nöfn voru nefnd í þjóðarumræðunni um mögulega frambjóðendur, þar á meðal voru Dagur B. Eggertsson, Davíð Oddsson, Bjarni Benediktsson, Eva María Jónsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Magnús Geir Þórðarson, Róbert Spanó, Svafa Grönfeldt, Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason, Fannar Jónasson, Óttarr Proppé, Gerður Kristný Guðjónsdóttir, Stefán Eiríksson, Haraldur Þorleifsson, Lilja Alfreðsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Andri Snær Magnason, Pawel Bartoszek, Þóra Arn­órs­dótt­ir, Þorgrím­ur Þrá­ins­son og Al­freð Gísla­son öll í umræðunni.

Tilvísanir

Tags:

Forsetakosningar Á Íslandi 2024 FramkvæmdForsetakosningar Á Íslandi 2024 FrambjóðendurForsetakosningar Á Íslandi 2024 TilvísanirForsetakosningar Á Íslandi 20241. júní2024Forseti ÍslandsGuðni Th. JóhannessonLýðveldisstofnunin

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Benito MussoliniSeðlabanki ÍslandsMünchenarsamningurinnJárnKváradagurSigríður Hrund PétursdóttirLangreyðurTúnfífillÞjóðernishyggjaÁsgeir ÁsgeirssonLestölvaHöskuldur ÞráinssonBesta deild karlaBjarni Benediktsson (f. 1908)EvraDaði Freyr PéturssonWiki FoundationMohamed SalahBoðhátturÝsaVeðurHvíta-RússlandJónas HallgrímssonÓðinnAriel HenryKvennaskólinn í ReykjavíkHáskólinn í ReykjavíkOrkumálastjóriVEgils sagaSúrefniListi yfir skammstafanir í íslenskuOfurpaurLega NordMatarsódiRíkisútvarpiðListi yfir íslenskar kvikmyndirIngimar EydalIndónesíaRSSSterk sögnListi yfir skráð trú- og lífsskoðunarfélög á ÍslandiRussell-þversögnBaldur Már ArngrímssonKleópatra 7.Gossip Girl (1. þáttaröð)Látra-BjörgJón Jónsson (tónlistarmaður)ÍslendingasögurArnar Þór JónssonTahítíHæstiréttur ÍslandsAkureyrarkirkjaEinar Sigurðsson í EydölumBoðorðin tíuDýrGrikklandAdolf HitlerFálkiSkólakerfið á ÍslandiLeviathanBárðarbungaNúmeraplataPragSjálfsofnæmissjúkdómurEgill Skalla-GrímssonBjarni Benediktsson (f. 1970)Harpa (mánuður)Guðmundur Felix GrétarssonBlóðbergVetniJörðinBerserkjasveppurGvam🡆 More