Forseti Íslands: þjóðhöfðingi og æðsti embættismaður Íslands

Forseti Íslands er þjóðhöfðingi og æðsti embættismaður lýðveldisins Íslands.

Forsetinn er þjóðkjörinn til fjögurra ára í senn og er eini embættismaðurinn sem kjörinn er í beinni kosningu. Samkvæmt stjórnarskrá Íslands er forsetinn æðsti handhafi framkvæmdavaldsins og annar handhafi löggjafarvaldsins. Í reynd er þátttaka forsetans í löggjöf eða stjórnarathöfnum yfirleitt aðeins formsatriði þannig að hann hefur ekki aðkomu að efni löggjafar eða stjórnarathafna. Þó er viðurkennt að hann getur haft áhrif á stjórnarmyndunarviðræður og jafnvel skipað utanþingsstjórn ef aðstæður til þess eru uppi. Jafnframt hefur forsetinn vald til þess að synja lagafrumvarpi frá Alþingi staðfestingar og leggja það í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu en á það hefur reynt þrisvar í sögu embættisins. Í fjarveru forsetans fara forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar saman með vald forsetans.

Forseti Íslands: Kjörgengi, Hlutverk forseta, Ímynd forseta
Forsetaskjaldarmerki

Flest störf forsetans eru táknræn og er stundum sagt um embættið að það eigi að vera sameiningartákn þjóðarinnar. Á meðal hefðbundinna embættisverka forsetans er að flytja þjóðinni ávarp á nýársdag, að ávarpa Alþingi við setningu þess jafnframt því sem forsetinn setur Alþingi formlega, að veita fálkaorðuna og ýmis verðlaun á vegum embættisins og félagasamtaka. Forsetinn tekur einnig á móti erlendum þjóðhöfðingjum og öðrum hátt settum gestum í opinberum heimsóknum á Íslandi og fer sjálfur í opinberar heimsóknir til annara ríkja. Aðsetur forseta Íslands er á Bessastöðum á Álftanesi en embættið hefur jafnframt skrifstofu í húsinu Staðastað við Sóleyjargötu 1 í Reykjavík. Afmælisdagur forsetans hverju sinni er íslenskur fánadagur.

Frá tilurð embættisins við lýðveldisstofnunina 17. júní 1944 hafa sex einstaklingar gegnt embættinu. Þeirra fyrstur var Sveinn Björnsson, síðan Ásgeir Ásgeirsson og Kristján Eldjárn. Árið 1980 var Vigdís Finnbogadóttir kjörin forseti Íslands og varð þar með fyrsti kvenkyns þjóðkjörni þjóðhöfðinginn í heiminum. Ólafur Ragnar Grímsson náði kjöri árið 1996 og gegndi forsetaembættinu til ársins 2016, lengst allra forseta landsins. Í forsetakosningum þann 25. júní 2016 var Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur kjörinn forseti Íslands og gegndi embætti í 8 ár.

Kjörgengi

Forsetaefni skal skv. stjórnarskránni og lögum um framboð og kjör forseta Íslands vera minnst 35 ára auk þess að uppfylla sömu skilyrði og gerð eru um kosningarétt til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrðinu, en samkvæmt því þarf að eiga lögheimili á Íslandi til að eiga kosningarétt.

Forseti Íslands: Kjörgengi, Hlutverk forseta, Ímynd forseta 
Forsetafáni Íslands

Hlutverk forseta

  • Þingsetning
  • Staðfesting laga
  • Nýársávarp
  • Orðuveiting
  • Móttaka og opinberar heimsóknir til erlendra þjóðhöfðingja
  • Stjórnarmyndun (ef þingflokkar ná ekki saman um myndun ríkisstjórnar)

Ímynd forseta

  • Sameiningartákn þjóðarinnar
  • Verndari íslenskrar menningar
  • „Landkynning“

Synjun forseta á staðfestingu frumvarps til laga um fjölmiðla 2004

Ólafur Ragnar Grímsson neitaði fyrstur forseta Íslands að staðfesta lagafrumvarp vorið 2004. Um var að ræða frumvarp að lögum um fjölmiðla (fjölmiðlafrumvarpið). Ákvörðunin var umdeild, en Alþingi tók í framhaldi frumvarpið af dagskrá, þ.a. ekki þótti nauðsynlegt að leggja það fyrir dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og gera bar skv. stjórnarskrá Íslands.

Fjarvera

Þegar forseti er ófær um að sinna skyldum sínum vegna sjúkleika eða dvalar erlendis fara handhafar forsetavalds með vald Forseta Íslands. Í áttundu grein stjórnarskrárinnar er kveðið á um að Forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar fari með forsetavald í fjarveru forsetans. Ef nauðsynlegt er að skrifa undir lög í fjarveru forsetans þarf undirritun tveggja til að lög taki gildi. Það var lengi hefð fyrir því að einn af handhöfum forsetavalds fylgdi forseta á flugvöllinn en Guðni Th Jóhannesson afnam þá hefð þegar hann tók við embætti forseta árið 2016.

Allir handhafar forsetavalds hafa staðgengil ef þeir eru staddir erlendis á sama tíma og forsetinn. Það eru varaforsetar Alþingis, varaforseti Hæstaréttar og ríkisstjórnarflokkarnir gera samkomulag um hvaða ráðherra sé staðgengill forsætisráðherra.

Forsetar

Mynd Forseti Tók við embætti Lausn frá embætti Sat í Kjörtímabil Aldur í forsetatíð
Forseti Íslands: Kjörgengi, Hlutverk forseta, Ímynd forseta  Sveinn Björnsson 17. júní 1944 25. janúar 1952 2.778 daga 2 63 til 70 ára
Forseti Íslands: Kjörgengi, Hlutverk forseta, Ímynd forseta  Ásgeir Ásgeirsson 1. ágúst 1952 31. júlí 1968 5.844 daga 4 58 til 74 ára
Forseti Íslands: Kjörgengi, Hlutverk forseta, Ímynd forseta  Kristján Eldjárn 1. ágúst 1968 31. júlí 1980 4.383 daga 3 51 til 63 ára
Forseti Íslands: Kjörgengi, Hlutverk forseta, Ímynd forseta  Vigdís Finnbogadóttir 1. ágúst 1980 31. júlí 1996 5.844 daga 4 50 til 66 ára
Forseti Íslands: Kjörgengi, Hlutverk forseta, Ímynd forseta  Ólafur Ragnar Grímsson 1. ágúst 1996 31. júlí 2016 7.304 daga 5 53 til 73 ára
Forseti Íslands: Kjörgengi, Hlutverk forseta, Ímynd forseta  Guðni Th. Jóhannesson 1. ágúst 2016 31. júlí 2024 2.921 daga 2 48 til 56 ára

Sveinn Björnsson lést í embætti. Handhafar forsetavalds fóru með völd forseta fram að innsetningu Ásgeirs Ásgeirssonar í embættið þann 1. ágúst sama ár.

Tags:

Forseti Íslands KjörgengiForseti Íslands Hlutverk forsetaForseti Íslands Ímynd forsetaForseti Íslands Synjun forseta á staðfestingu frumvarps til laga um fjölmiðla 2004Forseti Íslands FjarveraForseti Íslands ForsetarForseti Íslands TenglarForseti ÍslandsAlþingiForsetakosningar á ÍslandiForseti AlþingisForsætisráðherra ÍslandsFramkvæmdavaldHæstiréttur ÍslandsLöggjafarvaldLýðveldiStjórnarskrá lýðveldisins ÍslandsUtanþingsstjórnÍslandÞjóðaratkvæðagreiðslaÞjóðhöfðingi

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

No-leikurÞjórsáMorfísÁbrystirTaubleyjaKatlaÍsbjörnJapanRúnirGrafarholt og ÚlfarsárdalurAlþingiskosningar 2007MeltingarkerfiðGunnar HelgasonMannsheilinnKnattspyrnaFerskvatnHéðinn SteingrímssonDelawareEvrópaSjómílaKelly ClarksonFæðingar- og foreldraorlof á ÍslandiViðtengingarhátturÁfengisbannVetrarólympíuleikarnir 1988ÍslandspósturInternetiðMo-DoSeðlabanki ÍslandsIndlandLoftbelgurTáknForsetningarliðurÁsdís Rán GunnarsdóttirEva LongoriaHollenskaJörðinÓlafur Egill EgilssonUnuhúsListi yfir íslensk kvikmyndahúsLandnámsöldBørsenJakob Frímann MagnússonGrikklandIcesaveIowaEiríkur Ingi JóhannssonPáskaeyjaSnjóflóðið í SúðavíkBenjamín dúfaListi yfir íslenska myndlistarmennSam WorthingtonSigríður Hrund PétursdóttirJakobsvegurinnErpur EyvindarsonGerður KristnýCSSPortúgalNorræna tímataliðTugabrotFylkiðAuður djúpúðga KetilsdóttirPatricia HearstSuðurskautslandiðListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurWillum Þór ÞórssonÁstralíaEyjafjallajökullJómsvíkinga sagaKatrín JakobsdóttirDiskó-flóiKóreustríðiðFæreyskaBrúðkaupsafmæli🡆 More