Brussel (sem hefur þrjú opinber nöfn, á frönsku heitir hún: Bruxelles, á hollensku: Brussel og á þýsku: Brüssel) er höfuðborg Belgíu, og þar að auki höfuðborg Flæmingjalands og frönskumælandi menningarsvæðisins í Belgíu, og aðalaðsetur flestra helstu stofnana Evrópusambandsins, vegna þessa er Brussel stundum kölluð „höfuðborg Evrópu“.
Atlantshafsbandalagið hefur haft höfuðstöðvar sínar þar frá 1967 þegar það flutti þangað frá París. Borgin stendur inni í miðju landi.
Brussel | |
---|---|
Hnit: 50°50′48″N 04°21′09″A / 50.84667°N 4.35250°A | |
Land | Belgía |
Svæði | Brussel-höfuðborgarsvæðið |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Philippe Close |
Flatarmál | |
• Samtals | 33,09 km2 |
Mannfjöldi (2022) | |
• Samtals | 188.737 |
• Þéttleiki | 5.700/km2 |
Tímabelti | UTC+1 (CET) |
• Sumartími | UTC+2 (CEST) |
Póstnúmer | 1000 (Brüssel) 1020 (Laken) 1120 (Neder-Over-Heembeek) 1130 (Haren) |
Svæðisnúmer | 02 |
Vefsíða | www |
Brussel-höfuðborgarsvæðið varð til í núverandi mynd við samruna 19 sveitarfélaga eða gemeenten / communes, en þau mynda enn sjálfstæðar heildir að flestu leyti. Ýmis önnur sveitarfélög renna einnig saman við þessa heild, þar má t.d. nefna Anderlecht og Waterloo.
Bæði franska og hollenska eru opinber mál á höfuðborgarsvæðinu.
Vinsælt kennileiti borgarinnar er Manneken Pis, eða Peðlingur piss eins og hann hefur verið kallaður á íslensku.
-Orðsifjar borgarinnar eru ekki vitaðar með vissu en fremst er giskað á að heitið sé germanskt fremur en rómanskt og sett saman úr Broek -votlendi (sbr. enska brook -lækur & þýska bruch -mýri), og "salur". Sbr ennfremur Brooklyn af svipuðum toga.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Brussel, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.