Píka

Píka (eða sköp) eru ytri kynfæri konu.

Píkan nær yfir munaðarhólinn, ytri og inni skapabarmana, snípinn, risvefinn, leggangaopið, þvagrásaropið, og andarkirtlana. Á píkunni má líka sjá skaparifuna (bilið milli ytri skapabarmanna), fitukirtla, og kynfærahár.

Píka
Mismunandi kvensköp, í sumum tilfellum rökuð

Í víðari skilningi getur orðið píka líka verið notað til að vísa til hluta innri kynfæra konunnar, svo sem legganganna.

Hlutar píkunnar

Skapabarmarnir

Skapabarmarnir eru sá hluti píkunnar sem sést hvað best. Í konunni eru tvö pör af skapabörmum:

  • Ytri skapabarmarnir eru stærri. Þeir eru fósturfræðilega skyldir pung karlmanna.
  • Innri skapabarmar eru húðfelling sem kemur milli ytri skapabarmanna.

Munaðarhóllinn

Píka 
Munaðarhóllinn.

Munaðarhóllinn er mjúkt lag af fituvef á fremri hluta píkunnar og liggur yfir lífbeininu (beininu í mjaðmargrindinni sem finna má fyrir í fremri hluta klofsins). Bæði kyn hafa munaðarhól, en hann er meira áberandi í konum, munaðarhóllinn virkar eins og púði og verndar lífbeinið þegar fólk stundar samfarir. Skaparifan (bilið milli ytri skapabarmanna) nær inn á neðri hluta munaðarhólsins. Við kynþroska koma kynfærahár á munaðarhólinn og á ytri skapabarmana.

Snípurinn

Snípurinn er hluti af kynfærum kvenkyns spendýra. Sýnilegi hluti snípsins sést þar sem innri skapabarmarnir mætast, fyrir ofan þvagrásaropið. Snípurinn er afar næmur og er helsta örvunarsvæði píkunnar, í snípshúfunni er áætlað að séu um 8.000 taugaendar.

Snípurinn myndast út frá ákveðnum vef í fóstri sem kallast kynhnjótur. Ef fóstrið er útsett fyrir karlhormónum verður kynhnjóturinn að typpi, annars verður hann að sníp.

Þvagrásaropið og leggangaopið

Píka 
1. Snípshúfan 2. Sýnilegi hluti snípsins 3. Innri skapabarmar 4. Þvagrásaropið 5. Leggangaopið 6. Spöngin 7. Endaþarmsopið.

Á svæðinu milli skapabarmanna má finna tvö op. Þvagrásaropið er fyrir neðan snípinn, þar fyrir neðan er leggangaopið. Þvagrásaropið er smátt, út úr því kemur þvag, leggangaopið er mun stærra og þaðan koma börn út við fæðingu.

Leggangaopið er stundum hulið að hluta til af meyjarhaftinu, sem er þunn himna sem getur rofnað í fyrsta sinn sem kona stundar samfarir. Vegna þessa var meyjarhaftið notað til að skera úr um hvort kona væri hrein mey í sumum samfélögum, þó að haftið geti alveg eins rofnað við íþróttaiðkun eða þegar túrtappar eru settir upp. Í mörgum stúlkum er meyjarhaftið svo lítið að það sést ekki, eða þá að það vantar alveg.

Í aftari (neðri) hluta leggangaopsins má finna stóru andarkirtlana sem seyta slími og sleipiefni. Stóru andarkirtlarnir samsvara klumbukirtlinum í mönnum (sem framleiðir forsæðisvökva). Litlu andarkirtlarnir eru í aftari vegg legganganna og samsvara blöðruhálskirtlinum í mönnum (sem framleiðir sæðisvökva).

Neðanmálsgreinar

Tilvísanir

Tengt efni

Píka 
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
Píka

This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Píka, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.

Tags:

Píka Hlutar píkunnarPíka NeðanmálsgreinarPíka TilvísanirPíka Tengt efniPíkaKynfæriLeggöngSnípurÞvagrás

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

DanmörkJúgóslavíaStykkishólmurJurtFrumeindDróniLindáÓðinnHvalfjörðurBúðardalurHernám ÍslandsJoe BidenRíkissjóður ÍslandsEyjafjallajökullJakobsvegurinnKnattspyrnufélagið VíkingurRómarganganVestmannaeyjarSpánnME-sjúkdómurFinnlandTjaldurStari (fugl)LinuxNoregurÁramótaskaup 2016GrænlandÞorvaldur ÞorsteinssonForsetakosningar á ÍslandiBæjarins beztu pylsurVetniMeltingarkerfiðKúrdarLettlandDreifkjörnungarRíkisútvarpiðWiki FoundationHættir sagna í íslenskuSturlungaöldHafskipsmáliðListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiTáknAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)JólasveinarnirLangisjórTúrbanliljaHringrás vatnsHólar í HjaltadalSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirIMovieBjörgólfur GuðmundssonWayback MachineKylian MbappéHlíðarfjallBaldur Már ArngrímssonKristnitakan á ÍslandiC++Sveitarfélög ÍslandsListi yfir persónur í NjáluGiftingEldeyForsetakosningar í BandaríkjunumMegindlegar rannsóknirSvartfjallalandEiríkur rauði ÞorvaldssonBorgarhöfnHöfrungarKennitalaABBAPýramídiFiskurVífilsstaðavatnVigdís FinnbogadóttirOrðflokkurÁstralíaBostonMannsheilinn🡆 More