Hryðjuverkaárásirnar Í Brussel Í Mars 2016

Þann 22.

mars 2016 milli 8:00–09:11 um morguninn að staðartíma urðu sprengingar á Zaventem flugvelli í Brussel og á neðanjarðarlestarstöðinni Maalbeek nálægt Evrópuþinginu. 32 létust (fyrir utan ódæðismennina) og yfir 250 slösuðust.

Hryðjuverkaárásirnar Í Brussel Í Mars 2016
Zaventem flugvöllurinn.
Hryðjuverkaárásirnar Í Brussel Í Mars 2016
Grunaðir hryðjuverkamenn úr eftirlitsmyndavél á flugvellinum. Leitað var að manninum lengst til hægri.

Sprengingarnar á flugvellinum urðu þar sem verið var að innrita farþega í flug. Um klukkutíma síðar varð sprenging í einum vagni neðanjarðarlestar. Að minnsta kosti 11 létust á flugvellinum og 20 á neðanjarðarlestarstöðinni. Allar almenningssamgöngur voru stöðvaðar í borginni og fólk var hvatt til að halda kyrru fyrir heima. Öryggisráðstafanir voru hertar í Belgíu og nágrannalöndunum.

Árásirnar voru gerðar fjórum dögum eftir að lögreglan í Belgíu hafði hendur í hári Salah Abdeslam, manns sem átti aðild að hryðjuverkaárásunum í París nóvember 2015.

Fórnarlömb

Fórnarlömb sprengjuárásanna, látnir og slasaðir, komu frá minnst fjörtíu löndum.

Ódæðismenn

Íslamska ríkið lýsti ábyrgð á árásunum. Þriðja mannsins er leitað frá flugvellinum en tveir sprengdu sig í loft upp þar. Ósprungin sprengja fannst þar. Sprengjusérfæðingar áttu síðar við hana og sprengdist hún að hluta án þess að skaða nokkurn.

Borin voru kennsl á tvo árásarmenn, bræðurna Khalid og Brahim el-Bakraoui. Þeir voru sjálfsmorðssprengjumennirnir á flugvellinum og á neðanjarðarlestarstöðinni. Þeir höfðu lent áður í útistöðum við lögreglu og setið í fangelsi. Leitað var að grunuðum manni, Najim Laachraoui í fyrstu en síðar var staðfest að hann hafði látist á flugvellinum. Hann bjó til sprengjurnar. Annars manns með hatt og gleraugu sem sást við hliðina á þeim sem sprengdu sig á flugvellinum var leitað.

Í byrjun apríl fannst Mohamed Abrini í sem leitað hafði verið í tengslum við hryðjuverkin í París. Hann var þriðji maðurinn sem sást á myndum fyrir sjálfsvígsárásina á Zaventem flugvellinum. Osama Krayon, sænskur ríkisborgari sem ólst upp í Malmö, var einnig ákærður fyrir morð vegna aðildar að hryðjuverkunum í Brussel.

Tilvísanir

Tags:

BrusselEvrópuþingið

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

FramsöguhátturLaufey Lín JónsdóttirHerðubreiðISO 8601Arnaldur IndriðasonMegindlegar rannsóknirSmokkfiskarBárðarbungaFrumtalaLuigi FactaÚkraínaSilvía NóttListi yfir íslenskar kvikmyndirÓlafur Egill EgilssonFriðrik DórSkotlandSjónvarpiðGeirfuglTenerífeHáskóli ÍslandsUnuhúsVatnajökullPáskarEinar Þorsteinsson (f. 1978)Listi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiÓlafsvíkFrosinnAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)GrindavíkListi yfir forsætisráðherra ÍslandsLeikurÞykkvibær2024Fjalla-EyvindurForsetakosningar á Íslandi 1996NæfurholtFyrsti maíFyrsti vetrardagurg5c8yHTMLEgill ÓlafssonHalldór LaxnessSvampur SveinssonGuðmundar- og GeirfinnsmáliðSandgerðiValdimarÁratugurLandspítaliBretlandJón Sigurðsson (forseti)GarðabærHektariSvartahafAlfræðiritReynir Örn LeóssonEnglandGoogleBríet HéðinsdóttirEinmánuðurÞjóðleikhúsið26. aprílÞóra FriðriksdóttirDísella LárusdóttirForsetakosningar á Íslandi 2020JökullÍþróttafélag HafnarfjarðarForsetakosningar á Íslandi 2004Fimleikafélag HafnarfjarðarÚrvalsdeild karla í körfuknattleikKnattspyrnufélag ReykjavíkurSaga ÍslandsÍsafjörðurSnípuætt🡆 More