Atlantshafsbandalagið (einnig NATÓ eftir enskri skammstöfun á nafni þess: North Atlantic Treaty Organisation eða OTAN eftir franskri skammstöfun á heiti þess, (l'Organisation du traité de l'Atlantique nord)) er hernaðarbandalag.
Skrifað var undir stofnsáttmála bandalagsins í Washington D.C. 4. apríl 1949.
Atlantshafsbandalagið North Atlantic Treaty Organization Organisation du traité de l'Atlantique nord | |
---|---|
Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins (2020) sjást hér grænlituð. | |
Skammstöfun | NATO (enska); OTAN (franska) |
Einkennisorð | Animus in consulendo liber |
Stofnun | 4. apríl 1949 |
Gerð | Hernaðarbandalag |
Höfuðstöðvar | Brussel, Belgíu |
Meðlimir | |
Opinber tungumál | Enska, franska |
Framkvæmdastjóri | Jens Stoltenberg |
Yfirmaður hermálanefndarinnar | Rob Bauer |
Yfirmaður Evrópuherstjórnarinnar | Christopher G. Cavoli |
Yfirmaður herstjórnarmiðstöðvarinnar | Philippe Lavigne |
Vefsíða | www.nato.int |
Kjarni bandalagsins er 5. grein stofnsáttmálans þar sem því er lýst yfir að árás á eitt bandalagsríki í Evrópu eða Norður-Ameríku jafngildi árás á þau öll. Sú grein var hugsuð til að gera Sovétríkjunum það ljóst að innrás inn í Vestur-Evrópu jafngilti stríðsyfirlýsingu við Bandaríkin og allan hernaðarmátt þeirra. Á móti stofnuðu Sovétríkin ásamt bandamönnum sínum í Austur-Evrópu Varsjárbandalagið. Hernaðarbandalögin tvö léku síðan aðalhlutverk í Kaldastríðinu og því vígbúnaðarkapphlaupi og kjarnorkuvopnavæðingu sem einkenndu það. Innrás Sovétmanna í Vestur-Evrópu varð aldrei að veruleika og 5. grein NATO-samningsins hefur aðeins verið notuð einu sinni en það var 12. september 2001 eftir hryðjuverkaárás á Bandaríkin.
Lög um inngöngu Íslands í NATO voru samþykkt á Alþingi, 30. mars 1949. Þau voru mjög umdeild og talsverðar óeirðir urðu í sambandi samþykkt þeirra á Austurvelli. Andstæðingar NATO-aðildar kröfðust þjóðaratkvæðis um þetta mikilvæga mál en ekki var orðið við því. Hins vegar var því lofað að aldrei yrði erlendur her á íslenskri grundu á friðartímum. NATO ásamt Bandaríkjaher rak Keflavíkurherstöðina á Miðnesheiði frá 1951 til 2006.
Stofnfélagar (1949): | Ríki sem fengu inngöngu síðar:
|
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Atlantshafsbandalagið, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.