Arabar: þjóðarbrot sem býr í íkjunum

Arabar er hugtak sem haft er um fólk sem hefur arabísku að móðurmáli, tilheyrir arabískri menningu eða getur rakið ætt sína til Arabíu.

Arabar eru fjölmennastir í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Flestir kenna þeir sig einnig við heimaland sitt og jafnvel héruð eða ættbálka. Þessi dreifða búseta og örar breytingar á seinni árum valda því að öll arabamenning er ekki steypt í nákvæmlega sama far. Trúarbrögð eru ekki heldur ótvírætt einkenni. Þótt stærstur hluti araba aðhyllist íslam, er kristni gömul í löndum þeirra en reyndar fækkar því fólki hlutfallslega.

Arabar: þjóðarbrot sem býr í íkjunum
Nokkrir þekktir arabar

Giskað er á, að fjöldi araba nemi samtals allt að 300 – 350 milljónum manna. En þeir eiga heima í mjög mörgum löndum, og nákvæma tölu er ómögulegt að reikna.

Saga

Orðið arabar finnst fyrst notað um hóp af fólki fyrir um þrjú þúsund árum. Ýmsar skýringar eru gefnar á upphaflegri merkingu, einkum hirðingjar í eyðimörkum.

Þáttaskil urðu í sögu araba snemma á sjöundu öld, þegar Múhameð hóf að kenna ný trúarbrögð, sem fengu mikinn hljómgrunn á meðal þeirra. Í kjölfarið fylgdu landvinningar, og stórveldi risu. Þar á meðal voru Kálifadæmin og Ottómanveldið, sem stóð frá 1299 til 1922.

Menningaráhrif frá aröbum

Á miðöldum fór að gæta í Evrópu menningaráhrifa frá aröbum í vísindum. Þeir miðluðu meðal annars margvíslegri fornmenningu og arabískum tölum. Að einhverju leyti höfðu þeir einnig áhrif í myndlist, tónlist og bókmenntum.

Heimildir

Tags:

ArabískaArabíuskaginnHugtakKristniMið-AusturlöndNorður-AfríkaÍslam

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

TrúarbrögðHvalfjarðargöngKvennaskólinn í ReykjavíkLykillÁramótaskaup 2016Jón ArasonLögbundnir frídagar á ÍslandiHagstofa ÍslandsFramfarahyggjaSigurður Ingi JóhannssonGuðni Th. JóhannessonDaniilFinnlandGreinirÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaStefán HilmarssonHafþór Júlíus BjörnssonÞingkosningar í Bretlandi 1997ÝsaSúmersk trúarbrögðKylian MbappéÍslenska stafrófiðKínaBerlínarmúrinnApríkósaDýrDauðarefsingHámenningHólar í HjaltadalBesta deild karlaListi yfir íslenska tónlistarmennHeilkjörnungarHljómskálagarðurinnNguyen Van HungEldeyFranska byltinginListi yfir skammstafanir í íslenskuPersóna (málfræði)AkureyrarkirkjaSkólakerfið á ÍslandiRóbert WessmanLögreglan á ÍslandiÞjóðsögur Jóns ÁrnasonarBaldurFlateyjardalurBorgarhöfnVigdís FinnbogadóttirÍsöldSvíþjóðHowlandeyjaHollenskaEvrópska efnahagssvæðiðSigmund FreudKópavogurJava (forritunarmál)Egils sagaForsíðaSporger ferillStýrikerfiGamli sáttmáliKentuckyHlíðarfjallViðtengingarhátturÞorvaldur ÞorsteinssonKennimyndLuciano PavarottiPylsaMoskvaHæstiréttur ÍslandsMennta- og menningarmálaráðherra ÍslandsAndlagLoftbelgurSkjaldbreiðurSjálfsofnæmissjúkdómurYrsa Sigurðardóttir🡆 More