Sigurður Ingi Jóhannsson: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2017-

Sigurður Ingi Jóhannsson (f.

20. apríl 1962) er fjármálaráðherra Íslands og formaður Framsóknarflokksins. Hann er leiðtogi Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi. Hann var forsætisráðherra Íslands frá 2016 til 2017 og innviðaráðherra frá 2017 til 2024.

Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ)
Sigurður Ingi Jóhannsson: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2017-

Fæðingardagur: 20. apríl 1962 (1962-04-20) (62 ára)
Fæðingarstaður: Selfoss
2. þingmaður Suðurkjördæmis
Flokkur: Merki Framsóknar Framsóknarflokkurinn
Nefndir: Atvinnuveganefnd, Forsætisnefnd
Þingsetutímabil
2009-2013 í Suðurk. fyrir Framsfl.
2013-2016 í Suðurk. fyrir Framsfl.
2016-2017 í Suðurk. fyrir Framsfl.
2017 í Suðurk. fyrir Framsfl.
= stjórnarsinni
Embætti
2013-2016 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
2013-2014 Umhverfis- og auðlindaráðherra
2016-2017 Forsætisráðherra
2016- Formaður Framsóknarflokksins
2017– Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Tenglar
Æviágrip á vef AlþingisVefsíða
Sigurður Ingi Jóhannsson: Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2017-
Sigurður Ingi ásamt Barack Obama bandaríkjaforseta og forsætisráðherrum Norðurlanda.

Sigurður Ingi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1982 og tók embættispróf í dýralækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann fékk almennt dýralæknaleyfi í Danmörku 1989 og á Íslandi 1990.

Sigurður Ingi var varaformaður Framsóknarflokksins 2013-2016. Sigurður Ingi var landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra 2013-2016, umhverfisráðherra 2013-2014 og gegnd embætti forsætisráðherra frá apríl 2016, er hann tók við embættinu við afsögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar eftir Wintris-málið svonefnda, eftir birtingu Panama-skjalanna fram yfir alþingiskosningar 2016 og baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt 30. október 2016 en gengdi embættinu til 11. janúar 2017.

Sigurður Ingi var kjörinn formaður Framsóknarflokksins 2. október 2016 með 52,6% atkvæða í baráttunni um embættið við Sigmund Davíð.

Sigurður Ingi sat í þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010.

Ásakanir um kynþáttafordóma

Á Búnaðarþingi 2022 lét Sigurður Ingi Jóhannsson falla ummæli um framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands sem almennt voru talin byggja á fordómafullum hugmyndum um kynþætti. Sigurður Ingi Jóhannsson baðst afsökunar á ummælunum en neitaði þó að þau hafi byggt á fordómafullum hugmyndum um kynþætti.

Deilt var um hvort ummælin hefðu varðað við lög og Arndís Anna K. Gunnarsdóttir spurði Sigurð Inga Jóhannsson opinberlega hvort hann telji ummæli sín falla undir skilgreiningar laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna á 72. fundi Alþingis þann 29.4.2022. Sigurður Ingi Jóhannsson svaraði því ekki en sagði málið vega þungt á fjölskyldu sína og vini.

Tenglar

Heimildir


Fyrirrennari:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Forsætisráðherra Íslands
(7. apríl 201611. janúar 2017)
Eftirmaður:
Bjarni Benediktsson
Fyrirrennari:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Formaður Framsóknarflokksins
(2. október 2016 –)
Eftirmaður:
enn í embætti
Fyrirrennari:
enginn
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Íslands
(20132016)
Eftirmaður:
Gunnar Bragi Sveinsson
Fyrirrennari:
Svandís Svavarsdóttir
Umhverfis- og auðlindaráðherra
(20132014)
Eftirmaður:
Sigrún Magnúsdóttir
Fyrirrennari:
Jón Gunnarsson
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
(30. nóvember 201728. nóvember 2021)
Eftirmaður:
Hann sjálfur sem innviðaráðherra
Fyrirrennari:
Hann sjálfur sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Innviðaráðherra
(28. nóvember 202110. apríl 2024)
Eftirmaður:
Svandís Svavarsdóttir
Fyrirrennari:
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Fjármálaráðherra
(10. apríl 2024 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


Tags:

196220. aprílFjármála- og efnahagsráðherra ÍslandsForsætisráðherra ÍslandsFramsóknarflokkurinnInnviðaráðherra ÍslandsSuðurkjördæmi

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

FæreyskaSætistalaBrúnei21. marsHandboltiÍslendingabókNorður-KóreaHeimdallurTónlistarmaðurSúrefniRauðisandurSiðaskiptin39ÞingvellirKópavogurNýfrjálshyggjaSkötuselurGuðmundur Franklín JónssonHamarhákarlarVestmannaeyjarÓlivínAgnes MagnúsdóttirStreptókokkarÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaHróarskeldaKínaGuðTyrklandJarðskjálftar á ÍslandiPersónuleikiWright-bræðurÍslenska kvótakerfiðPortúgalTröllMannsheilinnEskifjörðurListi yfir NoregskonungaLýðveldið FeneyjarRúmmálÞór IV (skip)HjaltlandseyjarSankti PétursborgHöfuðlagsfræðiSnæfellsjökullDjöflaeyStrandfuglar6Venus (reikistjarna)Íslensk krónaKirgistanListi yfir íslensk póstnúmerFjárhættuspilBankahrunið á ÍslandiSamnafnDjöflaeyjaSteingrímur NjálssonHalldór Auðar SvanssonÁstralíaPlayStation 21956Balfour-yfirlýsinginSúnníÍslenski hesturinnÍslenskir stjórnmálaflokkarLögaðiliJöklar á ÍslandiWikiStýrivextirÞekkingarstjórnunFrakklandJóhanna Guðrún JónsdóttirEggert PéturssonÖxulveldinFreyrAlþingiskosningar 2021TölfræðiBiblíanKváradagur🡆 More